08.05.1958
Neðri deild: 89. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1632 í B-deild Alþingistíðinda. (1588)

150. mál, atvinna við siglingar

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það, sem ég segi, skal verða örstutt. Ég vil aðeins taka það fram til leiðbeiningar fyrir hv. þm. A-Húnv., að það, sem hann heldur að sé í einum lögum, er í tvennum lögum, og sumt af því, sem hann heldur að sé í lögunum um atvinnu við siglingar, er ekki í þeim lögum.