24.05.1958
Efri deild: 106. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)
150. mál, atvinna við siglingar
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég skal ekki fara að ræða þetta mál efnislega. Það hefur mikið verið um það rætt í sjútvn. og m. a. gefizt tækifæri til þess að ræða við fulltrúa frá þeim félagssamtökum, sem þessi mál snerta hvað mest, samtök vélstjóra og mótorista. Það er sameiginleg skoðun þeirra manna allra, að í þessu frv. felist engin framtíðarlausn eða frambúðarákvæði um það efni, sem það fjallar um.
Undanfarið hefur n. verið starfandi að því að endurskoða þessa löggjöf, en hún hefur ekki lokið störfum. Það hafa því verið eindregin tilmæli samtaka vélstjóranna, að afgreiðslu þessa máls yrði frestað a. m. k. til haustsins og málinu vísað til ríkisstj. í trausti þess, að lokið yrði þeim undirbúningi að endurskoðun löggjafarinnar, sem unnið hefur verið að undanfarið. Ég hef ekki séð ástæðu til þess, að Alþ. hlypi fram fyrir skjöldu í þessum málum. Það hafa ekki verið leidd rök að því, að svo knýjandi nauðsyn bæri til þess að setja þá löggjöf, sem þetta frv. fer fram á, að ég hafi talið mér rétt eða skylt að fylgja þessu frv. Þess vegna leyfi ég mér án þess að fara að ræða málið efnislega að taka upp þá till. samtaka vélstjóra, að málinu verði vísað til ríkisstj. til frekari undirbúnings og athugunar, og vænti, að hæstv. forseti beri þá till. mína upp.