31.05.1958
Efri deild: 113. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1652 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)
56. mál, sjúkrahúsalög
Frsm. (Alfreð Gíslason) :
Herra forseti. Í gildandi sjúkrahúsalögum eru ákvæði um rekstrarstyrk til opinberra sjúkrahúsa úr ríkissjóði.
Þessi styrkur er mismunandi og fer það aðallega eftir stærð sjúkrahúsanna. Sjúkrahús, sem hafa færri en 20 rúm, fá 5 kr. á dag, sjúkrahús, sem hafa milli 20 og 100 rúm, fá 10 kr. á dag, og sjúkrahús, sem hafa 100 rúm eða fleiri, fá 20 kr. á dag.
Í hv. Nd. kom fram frv. til l. um breyt. á sjúkrahúsalögum, þar sem lagt er til, að breytt verði þessum ákvæðum um dagstyrki sjúkrahúsanna.
Breytingin var í því fólgin að jafna þennan mismun á milli sjúkrahúsa, þannig að hvert sjúkrahús fengi 15 kr. á hvern legudag nema þau stærstu, sem haft hafa 20 kr., þau skyldu áfram fá sömu upphæð. Í hv. Nd. var gerð breyting á þessu frv. á þann veg, að gerður skuli eftir sem áður nokkur munur á sjúkrahúsum, en á annan hátt en nú gildir.
Það er lagt til, að almenn sjúkrahús svo og einkasjúkrahús, sem áður hafa notið dagstyrkja úr ríkissjóði, fái 10 kr. á legudag, enn fremur að sjúkrahús, sem að dómi landlæknis eru vel búin tækjum og hafa a. m. k. tvo fastráðna lækna, skuli fá 15 kr. á legudag, og loks, að fjórðungssjúkrahús skuli fá 20 kr. á legudag. Þannig kemur frv. fyrir þessa hv. deild.
Hv. heilbr.- og félmn. hefur haft frv. til athugunar og leggur til einróma, eins og fram kemur á þskj. 598, að frv. verði samþykkt með tveim breytingum. Fyrri breytingin er sú, að fjórðungssjúkrahús skuli fá 25 kr. á legudag í stað 20 kr. og að lögin skuli ekki öðlast gildi nú þegar, heldur 1. jan. 1959. Aðrar eru breytingarnar ekki, og ég tel ekki þörf á að hafa um það fleiri orð. En að lokum langar mig til, ekki sem frsm. hv. heilbr.- og félmn., heldur persónulega að benda á orðalag, sem mér fellur ekki sem allra bezt í frv.
Í 1. og 2. tölulið er talað um bæjar-, sýslu- eða sveitarfélag. Ég teldi réttara að segja: bæjar-, sýslu- eða hreppsfélag, vegna þess að sveitarfélag er löngu viðurkennt samheiti bæjarfélags, sýslufélags og hreppsfélags. Ég veit, að þetta er mjög á reiki í gildandi lögum, en tel æskilegt, að sá gamli greinarmunur, sem er á þessum orðum, fái að haldast. Þess vegna vil ég leyfa mér að bera fram skriflega brtt. við 1. gr., að í stað „sveitarfélags“ í 2. og 3. tölulið komi á báðum stöðum: hreppsfélags.