21.10.1957
Efri deild: 6. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í C-deild Alþingistíðinda. (1692)

19. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Hv. þm. Alfreð Gíslason tók fram, að aðalástæðan fyrir því, að hann væri meðflm. að þessu máli, væri sú, að hann teldi, að fjárhagur Reykjavíkurbæjar væri þannig, að hann gæti ekki greitt sinn hluta af andvirði borsins og ekki staðið við þá samninga, sem bærinn hefur gert við ríkissjóð.

Út af þessu vil ég taka það fram, að mér sýnist ekki vera hægt að fara þá leið til þess að leysa fjárhagsvandræði Reykjavíkurbæjar að brjóta niður tolla- og aðflutningsgjaldakerfið, heldur verði að finna til þess aðrar leiðir. Ég vil í því sambandi alveg sérstaklega benda á, að ríkisstj. hefur boðizt til þess, eins og hv. þm. raunar tók fram, að leysa Reykjavíkurbæ frá samningi um borinn og standa eitt að því að eignast hann, eins og raunar í öndverðu var gert ráð fyrir, en leigja síðan eða láta borinn í té gegn sanngjörnu gjaldi til þess að vinna þau verk, sem honum eru ætluð. Og ég ætla, að ríkisstj. geti ekki betur gert, en að bjóðast til þess að leysa málið á þennan hátt. Á þetta vil ég minna. Þess vegna sýnist mér algerlega ástæðulaust að hugsa sér, að það sé hægt með þessum rökum að fá þetta frv. fram, en frv. mundi verða til þess að raska mjög því tekjukerfi, sem ríkissjóður og framleiðslan byggir á.

Varðandi það, sem hv. 6. þm. Reykv. (GTh) tók fram, vil ég segja, að ég benti á, að þau rök, sem greind eru í frumvarpsgreinargerðinni, fá ekki staðizt, og vil rifja það upp aftur. Það er misskilningur alger, sem þar er sagt um jeppabifreiðarnar, og það fær heldur ekki staðizt að bera borkaupin saman við veiðarfæragerð og bátasmíðar innanlands. Ég taldi mig einnig hafa gert grein fyrir því, að aðflutningsgjöld þau, sem gert er ráð fyrir að greidd séu af borum, séu í samræmi við aðflutningsgjöld af mörgum hliðstæðum tækjum. Ég veit, að allir sjá í hendi sér, að ef menn færu inn á þá braut að undanþiggja þessi tæki, mundu vitaskuld koma kröfur um stórkostlegar undanþágur hliðstæðra tækja, sem ég greindi frá. Og hverjum dettur í hug, að þingið gæti staðið á því að samþykkja þessa breytingu, en fella síðan till., sem kæmu fram um að gera jafnt undir höfði tækjum eins og flökunarvélum, mjólkurvinnsluvélum, raforkuvélum o. s. frv. Það er ómögulegt að slíta þetta úr samhengi. Tollamálin verða að skoðast í heild.

Það er rétt, sem hv. þm. tók fram, að af sumum tækjum til landbúnaðar eru aftur lægri gjöld og sumum tækjum til sjávarútvegs, t.d. eins og bátavélum. En aftur á móti stendur hitt, sem ég benti á, að af mörgum tækjum, sem eru algerlega hliðstæð þessu, einmitt alveg hliðstæð, að mér sýnist, er gert ráð fyrir sams konar gjöldum og í þessu tilfelli.

Hv. þm. sagði, að hvað sem þessum samanburði liði, sem hann vildi ekki svo mjög fara út í og mótmælti ekki, þá stæði það, að þetta tæki væri of dýrt. Það gæti verið ástæða til þess að ræða þetta atriði mikið. En ég vil aðeins benda á eitt: Segjum, að við byggjum ekki hér við neitt uppbótakerfi,hvorki uppbætur á útfluttar framleiðsluvörur né niðurgreiðslur á vörum innanlands, sem margir teldu að væri æskilegast, og þá sá háttur hafður hér í staðinn fyrir uppbótakerfið að skrá gengi krónunnar þannig, að framleiðsluatvinnuvegirnir gætu staðizt án uppbóta. Það er staðreynd, að þá mundi þessi bor vera dýrari, en hann er nú, þótt gjöldin séu greidd, eins og lög gera ráð fyrir. E. t. v. sýnir þetta gleggsta mynd af samhenginu í málinu.

Þessu vildi ég bæta við það, sem ég hafði tekið fram varðandi þetta mál. En eins og ég sagði áðan, finnst mér eðlilegt, að hv. fjhn. fái málið og að það verði afgreitt fljótt. Og ég vil segja það sem mína skoðun, að mér finnst það óafsakanlegt af Reykjavíkurbæ að hafa ekki staðið við samninginn um borinn og greitt gjöldin, þannig að borinn kæmist í notkun. En það er önnur saga, sem er kannske ekki ástæða til að fara að ræða svo mikið hér fram og aftur. Hér er það höfuðmálið, hvort hv. Alþ. getur fallizt á frv. eða ekki, ríkisstj. sýnist það alls ekki vera hægt, eins og málavextir eru.