29.10.1957
Efri deild: 13. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (1697)
19. mál, tollskrá o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það voru aðeins örfá orð í tilefni af einu atriði í ræðu hv. frsm. meiri hl. En út af ræðu hans að öðru leyti er ekki ástæða til þess að segja margt, því að í henni komu ekki fram nein ný rök fyrir þessu máli, og hann gerði enga tilraun til að hnekkja þeim rökum, sem minni hl. hv. fjhn. hefur fært fyrir sínu máli. En þetta, sem kom mér til þess að segja örfá orð, var það, að nú tók hv. þm. upp á því að halda því fram, að það væri einstök óbilgirni af fjmrh. og fjmrn, að halda bornum, eins og hann mun hafa komizt að orði.
Ég hygg, að þessum hv. þm. sé það vel ljóst, og það er auðvitað a. m. k. öllum öðrum hv. þm. ljóst, að það ber að greiða tolla af vörum, áður en þær eru afhentar til notkunar. En hv. þm. leyfir sér að kalla það óbilgirni, að fjmrn. vill halda sér við lögin að þessu leyti og að það þarf að greiða tollinn, áður en innflutningurinn getur átt sér stað.
Mér finnst vera fáheyrt að heyra þetta af munni þingmanns. En út af þessu vil ég segja það sem mína skoðun, að mér finnst hv. þm., sem er borgarstjóri í Reykjavík, hafa sýnt í þessu máli alveg einstæðan ómyndarskap með því að gera samninga við ríkisstj. um sameign á bornum, gorta af framkvæmd sinni í því efni, eins og hann hefur gert, raupa af henni og telja til mikilsverðrar forgöngu í málefnum Reykvíkinga, en skorta síðan manndóm til að standa við samninginn, þegar til á að taka, hafa ekkert nema refjar í stað þess að ganga hreinlega fram og standa við þær skuldbindingar, sem hann hefur tekið að sér, og við samning, sem hann hefur gert. Og ekki nóg með það. Hann heldur málinu svo gersamlega í sjálfheldu, að hann vill ekki heldur losa sig við samninginn. Hann vill hvorki standa við samninginn né losa sig við hann. Þetta er svo einstæður ómyndarskapur, að ég sé sérstaka ástæðu til þess að benda á hann í tilefni af því, að þessi hv. þm. var að tala um, að fjmrn. héldi bornum með óbilgirni.