05.11.1957
Efri deild: 17. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (1712)
19. mál, tollskrá o. fl.
Forseti (BSt) :
Það, sem ég sagði, ber ekki að skoða sem nokkurn skæting, heldur er hitt staðreynd, að málið hefur tvisvar verið tekið af dagskrá af völdum hv. 1. flm. frv., sökum þess að deildin var ekki fullskipuð, og á föstudaginn nefndi hann aðeins einn þm., sem væri fjarstaddur sökum lasleika, hv. þm. N-Ísf. (GTh: Það voru 2 þm. Sjálfstfl. fjarstaddir.) Það var vitað, að hv. þm. Vestm. var fjarstaddur sökum dvalar utanlands, og slíkt er ekki hægt að taka til greina, vegna þess að þeir menn, sem fara utan, á meðan þingið stendur, og ekki hafa varamenn, afsala sér, á meðan þeir eru utanlands, öllum rétti til þátttöku í þingmálum, og það er ekki hægt að taka til greina. Á föstudaginn var það tekið af dagskrá vegna þess, samkvæmt ósk hv. 1. flm., að einn þm. var fjarstaddur sökum lasleika. Nú er það vitað, að tveir þm. eru fjarstaddir sökum lasleika. Eins og ég hef áður bent á, mundu verða vandkvæði með þetta mál, ef ætti að taka tillit til slíks, og ég benti á það á föstudaginn, að eins og menn vita, þá er að ganga smitandi veiki í bænum, sem margir leggjast í, og m. a. eru þingmenn farnir að leggjast í þeirri veiki, og ég sé ekki, að það eigi að taka þetta tillit með einn frekar en annan, ekki frekar hv. þm. N-Ísf. en aðra, t. d. hv. þm. S-Þ. og hv. 4. landsk. þm. Þess vegna er það, að ég mun ekki taka málið á dagskrá, fyrr en líkur eru til, að d. geti verið fullskipuð. Vitanlega getur alltaf komið eitthvað það fyrir, frá því að dagskrá er ákveðin og þar til fundur er settur, að einhver sé forfallaður, en ég mun ekki taka það á dagskrá, fyrr en líkur eru til, að d. sé fullskipuð, og tel það alveg í samræmi við það, sem gert hefur verið undanfarið. Eru þetta ekki neinar slettur til eins eða neins. Þetta er bara staðreynd. Svona hefur það verið, og svona verður það, úr því að það hefur verið undanfarið.