25.02.1958
Efri deild: 56. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í C-deild Alþingistíðinda. (1717)
126. mál, siglingalög
Flm. (Eggert Þorsteinsson) :
Herra forseti. Frv. það, sem ég hef leyft mér að flytja hér fyrir hönd stjórnar Sjómannafélags Reykjavíkur á þskj. 251, er hvorki stórt né mikið að sniðum, enda — eins og í lok grg. þess segir — aðeins um nauðsynlega leiðréttingu að ræða. Það, sem er höfuðatriði frv., er nánast það, að það er ætlazt til þess, að aukinn hluti björgunarlauna fari nú til skipshafnar, og er nánast, um það að breyta þeim skiptareglum, sem þar hafa gilt frá fornu fari. Það þykir nú eðlilegt og rétt af þeim, sem hlut eiga að máli, að þessi hlutur hinna starfandi sjómanna verði nokkuð hækkaður frá því, sem áður hefur verið, og miðar frv. að því, að 40% fari nú til skipshafnar í stað 331/3% áður.
Því er ekki að leyna, að nokkuð er hlutur skipstjóra rýrður með samþykkt þessa frv. frá því, sem áður var, eða því, sem nú er í gildandi lögum. Þess ber þó að gæta, að hér er gerð tilraun til þess að leiðrétta þann misskilning, sem verið hefur í lögunum, kannske hefur átt við á þeim tíma, er lögin voru upphaflega sett, að miða við kaup skipshafnar, þ. e. a. s. fastakaupið eða þá tryggingu, sem sjómönnum er tryggð í hinum einstöku tilfellum. Í þess stað á nú að miða við tekjur manna næsta mánuð á undan, og mun það nokkuð bæta úr því, sem frv. rýrir að öðru leyti hlut skipstjórans.
Eftir gildandi l. hefur skipstjóri helming þess hluta, sem til skipshafnarinnar gengur, og síðan aftur sinn hluta miðað við kaup af því, sem endanlega skiptist á milli skipshafnarinnar í heild. Með frv. þessu er lagt til, að hlutur skipstjóra verði einungis miðaður við tekjur hans, eins og áður sagði, næsta mánuð á undan, eins og annarra skipverja.
Ég tel, að með þessum orðum sé ljóst, hvað frv. felur í sér, og þurfi á þessu stigi ekki frekari framsögu við. Það er, eins og ég sagði í upphafi, ekki um neina byltingu að ræða á gildandi lögum, heldur aðeins um það, sem gæti heyrt undir nauðsynlega leiðréttingu.
Ég vildi svo að lokum óska þess, að málinu yrði að lokinni þessari umr. vísað til hæstv. sjútvn.