18.04.1958
Efri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (1719)

126. mál, siglingalög

Frsm. meiri hl:

(Eggert Þorsteinsson) : Herra forseti. N. hefur rætt þetta mál á nokkrum fundum sínum, og eftir að hafa leitað umsagna allmargra hlutaðeigandi aðila, sem hugsanlegt var að gætu átt hér hlut að máli, þ. e. a. s. viðkomandi stéttarfélaga, skipafélaga o. s. frv., varð að lokum einróma samþykkt nefndarinnar að flytja þá rökstuddu dagskrá, sem á þskj. 396 er. Vil ég að ósk hv. þm. Seyðf. koma því hér með á framfæri, að hann tekur aftur minnihlutanál. á þskj. 378 og mun fylgja því meirihlutaáliti, sem útbýtt hefur verið nú á þskj. 596.

Það kom m. a. fram í umsögnum þessara aðila, að hér er um allviðkvæmt mál að ræða og af þeim sökum einum væri rétt; að það hlyti frekari umr. eða viðræður milli þeirra aðila, sem hér eiga hlut að máli, auk þess sem það kom fram í umr. í n., að þeir möguleikar, sem nú virðast fram undan hjá íslenzku þjóðinni um að stækka sín friðunartakmörk um fiskveiðilandhelgi, kunni að geta orkað til breyttra aðstæðna hvað viðkemur björgunum eða starfsemi björgunarskipa. Af þessum ástæðum öllum þykir n. eðlilegt og rétt að afgreiða málið ekki nú, en afgr. það með hinni velviljuðu rökstuddu dagskrá, sem á þskj. 396 er, og eins og ég áðan sagði, er nefndin öll einróma. Þó að út hafi komið tvö nál., þá er nefndin nú einhuga um þá rökstuddu dagskrá, sem á þskj. 396 er, og þm. Seyðf. hefur ákveðið að draga sitt nál. á þskj. 378 til baka.