14.02.1958
Efri deild: 52. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (1781)
13. mál, landhelgisbrot
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég skil ekki, af hvaða tilefni hv. 1. þm. N-M. er að blanda Sjálfstfl. í þetta mál. Hann kvartaði hér á þingfundi í gær, að mál væri ekki afgreitt úr nefnd, og ég veit ekki betur, en stjórnarflokkarnir ráði í nefndum, en ekki Sjálfstfl. Það er eins og hv. þm. hafi gaman af því að vera að létta skapi sínu og koma með slettur til Sjálfstfl. í máli, sem honum kemur ekkert við. Hann getur vitaskuld fengið afgreitt mál án allra aðgerða Sjálfstfl.