18.03.1958
Neðri deild: 68. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (1791)
153. mál, eftirlit til varnar ofeyðslu hjá ríkinu
Flm. (Jón Pálmason) :
Herra forseti. Hæstv. ráðh. hefur nú haldið hér nokkuð langa ræðu og talað mjög hógværlega um þetta mál og lýst að ýmsu leyti sinni afstöðu og sínum skoðunum, og eins og gefur að skilja, er ýmislegt af því, sem hæstv. ráðh. sagði rétt, en annað miður, og finn ég ástæðu til að fara út í ýmis þau atriði, sem hæstv. ráðh. nú vék að.
Það kom fram seint í ræðu hæstv. ráðh., að hann nefndi það, að hér væri ætlunin að setja eins konar yfirráðherra á fjármálasviðinu, sem við yfirskoðunarmenn ættum að vera, og nefndi mig sérstaklega í því sambandi og að við myndum komast í sama vanda að þessu leyti eins og ráðherrar.
Nú vil ég hugga hæstv. ráðh. með því að benda á, að við þessir yfirskoðunarmenn, sem nú eru, erum nú allir saman heldur gamlir menn, og um þessa menn á að skipta á hverju ári, svo að Alþingi hefur það á valdi sínu að fela þetta öðrum mönnum og yngri, hvenær sem því sýnist. Hæstv. ráðh. þarf þess vegna ekki sérstaklega að vera hræddur við okkur, þessa sem nú erum, nema kannske eitt eða tvö ár eða svo. Þar að auki er það algerlega misskilningur á þessu frv. hjá hæstv. ráðh., að það sé ætlunin, að þessir menn hafi nokkurt fjárveitingavald, það er ekki ætlunin. Þeim er ekki ætlað samkvæmt þessu frv. að veita neitt fé, ekki ákveða lán, ekki ákveða ábyrgðir, þeir eiga bara að vera til eftirlits um það, að ekki sé gengið of langt í þessu, eins og gert hefur verið, og að því sé slegið föstu, að enginn ráðherra, sem oft virðist vera tilhneiging með, ákveði fjárveitingar, ákveði ábyrgðir, ákveði lán. Þeir eiga að vera til varnar gegn því, að þetta sé gert, nema því aðeins að þeir sem umboðsmenn Alþingis samþykki það. En að þeir eigi að hafa nokkurt frumkvæði eða vald til þess að veita nokkurt fé, það er alger misskilningur, ef hæstv. ráðh. eða nokkur annar hefur skilið frv. á þá leið.
Um það atriði, sem ráðh. vék að, að það væri kannske fjarstæðast að fela endurskoðendum ríkisreikninga þetta mál, þá er það auðvitað atriði, sem getur verið eðlilegt deilumál, hvort það væri rétt, að Alþingi kysi í þetta sérstaka nefnd, aðra en yfirskoðunarmenn, eða fæli þeim það, enda hefur verið um það ekki algerlega samkomulag, það get ég játað. En hitt er vafalaust frá mínu sjónarmiði og mætti vera frá sjónarmiði allra alþm., að hverjum sem falið er þetta starf, þá verða það að vera menn, sem eru kosnir af Alþingi og starfa á ábyrgð þess.
Í því frv., sem hér liggur fyrir Alþingi og er frá hæstv. fjmrh., er gert ráð fyrir þriggja manna nefnd, sem eigi að hafa eftirlit á þessu sviði, og þar er farið inn á sömu villigötuna og framkvæmdin hefur verið að því leyti til, að það er ætlazt til þess, að ríkisstj. tilnefni tvo þessa menn, þ. e. a. s. tilnefni einn þeirra alveg ákveðið, og annar sé ráðuneytisstjórinn í fjmrn., sem sagt að tveir af þremur þessum mönnum séu frá framkvæmdarvaldinu, en aðeins einn frá Alþingi. Hvort sem yrði farið út á þá leið, að yfirskoðunarmenn eða einhverjir aðrir menn hefðu þetta vald, þá tel ég það tvímælalaust sjálfsagt, að það séu menn, sem allir eru kosnir af Alþingi.
Ég skal svo fara nokkuð gegnum þau atriði, sem hæstv. ráðh. vék að og að sumu leyti eru réttmæt, að öðru leyti ekki.
Hæstv. ráðh. kom hér með samanburð á umframgreiðslum frá 1924 og fram á þennan dag og vildi telja, að prósentvís hefðu verið miklu hærri umframgreiðslur á vissum tímabilum og einkum á tímabilinu 1940–49. Þetta kann vel að vera að sé rétt, ég hef ekkert út í það farið, ég hef ekki borið það saman. Það getur vel verið, að þetta sé prósentvís hærra þá. En við verðum að gæta að því, að þá var stríðstími. Á því tímabili var stríðstími og þess vegna meira hopp á greiðslum, en ella hefur verið um að ræða. En hitt verð ég að segja, að það er miklu meiri ástæða og miklu réttara frá mínu sjónarmiði að taka tölurnar sjálfar, heldur en reikna þetta út prósentvís, og sannleikurinn er sá, að samkvæmt þeirri skýrslu, sem hér fylgir í grg, þessa frv., er það auðsætt, að umframgreiðslurnar sum síðustu árin, sem skýrslan nær yfir, eru allt að því 10 sinnum hærri, en öll fjárlagaútgjöldin voru fyrsta árið, sem þessi hæstv. ráðh. var fjmrh.
Það stendur nú svo á, að við erum jafngamlir sem þingmenn, en þessi hæstv. ráðh. tók við fjármálaráðherraembættinu 1934 og við fjárl., sem samþykkt voru 1933. Samkvæmt þeim fjárlögum voru öll útgjöld samkvæmt sjóðsyfirliti áætluð það ár 12 millj. kr., rétt losaði 12 millj., ég held 36 þús. kr. í viðbót. Árið 1957 er síðasta ár, sem við höfum áætlun um, því að ég tek ekki enn þá almennilega mark á áætluninni fyrir 1958 vegna þess, hve mikið vantar inn á fjárlögin, og 1957 er áætlunin um öll útgjöld fjárlaganna og útflutningssjóðs, sem líka er ríkisstofnun, hvorki meira né minna en 1.243 millj., þ. e. a. s. útgjöld fjárl. 811 millj., tekjur útflutningssjóðs voru áætlaðar 540 millj. kr., en af þeim átti samkvæmt áætlun að fara 1/5 eða 108 millj. kr. í ríkissjóð, og þá eru eftir 432 millj. þar til útgjalda og þess vegna öll útgjöldin áætluð á árinu 1957, hvað sem þau nú kunna að verða, hvorki meira né minna en 1.243 millj. Það er 103 sinnum hærra, en voru öll útgjöld fjárlaganna fyrsta árið, sem þessi hæstv. ráðh. var fjmrh., og það kemur upp, að sum síðustu árin hafa umframgreiðslurnar orðið allt að því 10 sinnum hærri í krónutölu heldur en öll útgjöld fjárlaganna voru fyrsta árið, sem þessi hæstv. ráðh. stjórnaði fjármálunum.
Nú vitum við það auðvitað allir, að það er ekki hægt — og það hefur mér aldrei dottið í hug að færa alla sök á þessu á þennan hæstv. ráðh., þótt hann hafi verið lengst fjmrh. af öllum. En vegna þess að hann hefur verið lengst fjmrh., þá á hann að vísu meiri sök á því, heldur en aðrir. En þar eru margir, sem eiga hlut að máli.
Þá er það þetta atriði, sem hæstv. ráðh. talaði um, hann vildi eingöngu miða við rekstrarútgjöld. Það get ég engan veginn fallizt á, því að það eru alveg eins útgjöld, þótt það séu ekki rekstrarútgjöld, það sem varið er til framkvæmda, lánað út o. s. frv., sem alltaf eru stórar upphæðir.
Þess vegna er það rétt regla, sem tekin er, að taka inn á fjáraukalög öll útgjöld, alveg eins þau, sem eru kölluð eignahreyfingar, eins og hin, sem eru rekstrarútgjöld, og það eru sannarlega ekki minni upphæðir. Sumar ríkisstj. og ekki sízt síðustu árin eyða umfram heimildir í eignahreyfingum í framkvæmdum og útlánum, meira en er á rekstrarreikningi, því að þar eru oft og einatt stærstu upphæðirnar ákveðnar á þann veg.
Þá var hæstv. ráðh. að tala um það, að t. d. lausaskuldir ríkisins, lán til togarakaupa o. s. frv., þetta væri óvenjulegt að taka á fjáraukalög. Þetta get ég ekki fallizt á, því að það hefur verið regla alla tíð að taka á fjárlög allt það, sem er greitt utan fjárlaga, enda þótt það sé til nauðsynlegra hluta, og það gefur að skilja, að ástæðurnar til umframgreiðslna eru mjög mismunandi. Sumar eru eðlilegar og ekki gott að koma í veg fyrir þær, aðrar eru beinlínis fyrir það, að fjárveitingarvaldið er tekið úr höndum Alþingis og lagt í hendur ráðherranna.
Ég get t. d. alveg viðurkennt það hjá hæstv. ráðh., að upphæð eins og vegaviðhald, það er allt annars eðlis, en bein fjárframlög, eyðsla hjá ríkisstofnun, sem stafar af auknum mannafjölda og auknum kostnaði alla vega lagað. Vegaviðhald hefur nú í rauninni lengst af verið skoðað sem áætlunarupphæð, sem ekki er gott að koma í veg fyrir, þótt eitthvað fari fram úr áætlun.
En það er allt öðru máli að gegna með vegaframkvæmdir. Nú vitum við það, alþm., að ár eftir ár hefur hv. fjvn. lagt í það meiri vinnu, en flest annað að skipta nákvæmlega niður fjárveitingum til vegaframkvæmda og skipta því svo nákvæmlega niður, að það er hnitað upp á 5.000 kr., og það er barátta um það milli héraða á hverju einasta þingi, hvernig eigi að vera skipt vegafé, þ. e. vegaframkvæmdafé. En það kemur núna fram ár eftir ár, að það er ekki farið eftir þessu, og síðast er það á þeim reikningi, sem við höfum hér fyrir framan okkur fyrir árið 1956, að þá var eytt til þjóðvega umfram fjárlög hátt á aðra milljón, eða 1.770 þús., og þar með er raskað allri þeirri áætlun, allri þeirri vinnu, sem hv. fjvn. hefur lagt í það að skipta á milli héraða, og þetta er gert án þess, að það sé nokkurt eftirlit með því haft frá þingsins hálfu. Þetta má segja að sé eitt af smærri atriðunum. En þetta sýnir, hvernig farið er með fjárveitingavaldið. Og þar sem svo er ástatt, eins og verið hefur og er, að við höfum áhugasama og duglega vegamálastjóra, þegar einstakir vegir eru teknir út úr og einhvers staðar er hægt að fá meira fé til vegaframkvæmdanna, en ákveðið hefur verið af Alþingi, þá stendur ekkert á vegamálastjóra að taka feginsamlega á móti því fé, sem hann getur fengið, og það er von og frekar þakklætis vert við hann.
En vegna þess, hvað kneprað hefur verið fé til vegaframkvæmda af Alþingi, er það því verra, þegar einstakir vegir eru teknir út úr og einstakar sýslur og látið til þeirra miklu meira fé en fjárlögin heimila. Ég er með því og hef verið það lengi, að í hlutfalli við aðra eyðslu ætti að láta töluvert meira til vegaframkvæmda, en Alþ. hefur ákveðið. En það á Alþingi að ákveða, en ekki ríkisstjórnin, hver sem hún er.
Hitt er svo t. d. varðandi atriði eins og strandferðirnar Hæstv. ráðh. vék að því í sambandi við aths. okkar yfirskoðunarmanna við reikninginn 1955 um strandferðirnar. Það er einmitt ákaflega greinilegt dæmi um það, hvernig ekki á að fara að. Það er ár eftir ár, sem hefur verið eytt millj. í strandferðir umfram það, sem Alþ. hefur ákveðið, stundum mörgum milljónum, sum árin færri milljónum. En ég man nú ekki fyrir víst, hvað voru margar milljónir, sem var eytt umfram fjárlög árið 1955 til strandferðanna. Við yfirskoðunarmenn gerum aths. við þetta og segjum á þá leið: Hér eru þrjár leiðir fyrir hendi. Annaðhvort er það, að Alþ. veiti hærri fjárhæðir til þessara hluta, eða hækkuð séu farmgjöldin eða í þriðja lagi, að það sé dregið úr starfseminni. Þarna eru þrír möguleikar fyrir hendi. Svo er það, eins og ráðherrann vék að, að við leggjum til í úrskurðartillögu, að við svo búið verði að standa. Nú vil ég segja ykkur, hv. alþm., frá því, hvernig stendur á þessari till. Það stendur svoleiðis á henni, að þegar við skrifum úrskurðartillögu um reikninginn 1955, þá er búið að ganga frá því hér á Alþingi að strika tvo af þessum möguleikum alveg út. Það er búið að strika þá út hér á Alþ., og það ekki einu sinni, heldur tvisvar, að það skuli hækka farmgjöldin. Það er búið að strika það út að draga úr starfseminni, heldur skuli hún aukin. En það er búið áður, en kemur til að úrskurða þessa aths. frá okkur, sem er að fullu réttmæt, því að þarna er um að ræða frekju í fjárveitingu frá viðkomandi ríkisstj., sem þá stjórnaði þessum málum, og það er ekki fyrir okkur hent að segja um, þegar Alþ. er búið að taka ákvörðun um það: Þarna á að fara eina leiðina, en ekki tvær, — þá getum við ekki annað sagt: Það verður við svo búið að standa. — Þetta er eitt dæmi af mörgum um það, sem ástæða er til að víkja að í þessu sambandi.
Nú er það svo, að þegar þannig er ástatt, að umframgreiðslur hafa árum saman verið hvorki meira né minna, en að meðaltali 100 millj. á ári, þá er það augljóst mál, að það verður eitthvað að gera til að koma í veg fyrir, að þessi spilling haldi áfram, því að þetta tel ég vera hreina spillingu.
Nú skal ég geta þess, að ég hef hér samanburð, sem ég skal gjarnan víkja að, og það er: hvernig er þetta hjá öðru stærsta félagi, sem hefur með að gera fjárútlát og sumir núverandi stjórnarherrar eru gjarnir á að vitna oft til, og það er Reykjavíkurbær. Þar er allt annað uppi á teningnum. Þar er sum árin haldið sig við fjárhagsáætlun, sum árin sáralítið umfram. Stundum er það undir. Og ég skal lesa upp um þetta skýrslu fyrir nokkur ár.
Árið 1951 eru áætluð útgjöld Reykjavíkurbæjar 69 millj. rúmar, 69 millj. 417 þús., en urðu 73 millj., þá var faríð fram úr áætlun 3.3 millj., 1952 er áætlunin 80 millj. og 960 þús., en varð 83 millj. og 80 þús., umframgreiðsla er þá 2 millj. 120 þús. 1953 er áætlunin 91 millj. 377 þús., en varð 90 millj., það var undir áætlun um 951 þús., það er undir áætlun í framkvæmd bæjarstjórnarinnar hér það ár. 1954 var áætlunin 99 millj. 437 þús., en varð 100 milljónir, það fer fram úr áætlun á nærri 100 millj. útgjöldum ekki nema um 1.400 þús. 1955 er eyðslan 779 þús. undir áætlun. 1956 er áætlunin 146 millj., það sem borgað var 154 millj., þá er það 7 millj. og 700 þús., sem það fer fram úr áætlun. 1957, — það er komið um það yfirlit og nokkurn veginn víst, hvernig það verður, þar er áætlunin 165 millj., en varð 164 millj. og 649 þús., það var sem sagt undir áætlun um 361 þús.
Þetta sýnir, að það er miklu hyggilegar að farið í bæjarstjórn Reykjavíkur hvað þetta snertir, heldur en hjá ríkisvaldinu, sem hefur með miklu stærri fjárframlög að gera. Og að það sé nokkurt vit í því, sem hæstv. ráðh. var hér að tala um, að þarna eigi ekki að taka í samanburðinum, annað en rekstrarreikninginn, er alveg fjarri, því að það eru stórar upphæðir, sem eru ákveðnar þar fyrir utan, og aldrei hefur verið eins langt gengið á því sviði og á árinu 1956 skv. þeim reikningi, sem hér liggur fyrir. Það er t. d. ekkert smáræði, sem ábyrgðirnar hafa aukizt. Ef ég man rétt, ukust þær á því eina ári um 290 millj. kr., og það er meira en nokkur dæmi eru áður til. Eins er það með útlán og annað, sem á því ári gengur langt úr hófi frá því, sem verið hefur nokkurn tíma áður, þrátt fyrir mjög hækkuð fjárlög.
Nú eru þetta atriði út af fyrir sig, svona samanburður, ýmis samanburður. Og í sjálfu sér er það svo um fjáraukalög, og það er meira formsmál, en að það sé atriði, sem ástæða er til að þræta stórlega um, því að þegar fjáraukalög eru samþykkt, er búið að ganga frá öllu saman, og það er ekkert annað að gera, eða reynslan hefur verið sú, að Alþ. hefur ekki séð sér annað fært, en samþykkja allt saman. Og ef ríkisreikningurinn er samþykktur, sem náttúrlega er aðalatriðið, þá leiðir það af sjálfu sér, að það verður að samþykkja fjáraukalög. Og varðandi það, hvort hér er um stærri eða smærri upphæðir að ræða, þá blasir við sem augljóst mál, að umframgreiðslur hjá ríkinu, lán, sem ekki hafa verið ákveðin, og annað slíkt er svo úr hófi fram, að hér verður eitthvað að spyrna við fótum, og það er ekki til neins fyrir neinn mann, hvorki hæstv. fjmrh. né neinn annan að vitna til þess: það eru hér fleiri menn, sem eru samsekir, — því að ef þannig er hugsað, fást ekki neinar endurbætur á neinu. Aðalatriðið í þessu máli er það, að hér verði gerðar ráðstafanir, sem tryggi það, að ekki haldi áfram á þessari braut. Og ég gat nú í rauninni ekki annað fundið hjá hæstv. ráðh. en hann vildi gjarnan gera einhverjar slíkar ráðstafanir, en það gat hann ekki hugsað sér, að slíkir menn eins og við yfirskoðunarmenn værum látnir hafa nokkur áhrif á það að samþykkja, hvort hann og hans félagar mættu eyða meira fé eða minna. Það er alls ekki ætlunin, þó að þetta frv. væri samþykkt, að þá væru það yfirskoðunarmenn, sem réðu neinum fjárútlátum, heldur þarf samþykki þeirra til þess, ef ríkisstj. álítur, að það sé óhjákvæmilegt.
Ég verð að játa það, eins og þegar hefur komið fram í því, sem ég hef hér sagt, að það væri ýmislegt, sem kemur á fjáraukalög, sem hver ríkisstj. verður að borga, eins og t. d. að borga út samkvæmt þáltill. og heimildum í 22. gr., því að það á líka að koma á fjáraukalög, þó að það séu heimildir fyrir því.
Ég sé það nú, að fundartíminn er búinn, og skal þess vegna ekki fjölyrða meira um þetta að sinni. Ég geri ráð fyrir því, að það verði allir hv. þm. því samþykkir, að þetta frv. fari til athugunar í hv. fjhn., sem hefur annað frv. um þetta efni til athugunar, og þá kemur síðar á þessu þingi til athugunar, hvort mönnum er alvara um það að vilja einhverjar endurbætur á þessu sviði og hvort Alþingi vill koma í veg fyrir það, að fjárveitingavaldið sé áfram í vaxandi mæli hjá ríkisstj., en það á að vera eingöngu hjá Alþingi sjálfu.