05.05.1958
Neðri deild: 87. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í C-deild Alþingistíðinda. (1819)
58. mál, fræðsla barna
Frsm. minni hl. (Ragnhildur Helgadóttir) :
Herra forseti. Þetta frv., sem fjallar um breytingu á 53. gr. fræðslulaganna, var flutt snemma á þessu þingi og var þá afgreitt til menntmn. þessarar hv. d. Minni hlutinn gaf út álit um málið fyrir jól, en meiri hl. hins vegar ekki fyrr en nú fyrir nokkrum dögum. Frv. gerir annars vegar ráð fyrir, að ríkið taki að sér að greiða laun kennara við einkabarnaskóla eftir sömu reglum og kennaralaun við aðra barnaskóla, en hins vegar gerir það ráð fyrir, að til löggildingar einkabarnaskóla þurfi meðmæli fræðsluráðs að koma til, til viðbótar þeim skilyrðum, sem nú eru þegar lögboðin. Skv. frv. yrði því aðeins heimilt að greiða laun fastra kennara við einkaskólana úr ríkissjóði, ef þeir: 1) starfa skv. reglugerð, er fræðslumálastjórnin samþykkir, 2) hlíta sama eftirliti og reglum og aðrir barnaskólar, 3) kennarar þeirra fullnægja öllum settum skilyrðum um rétt til kennslu í barnaskólum, 4) fá meðmæli hlutaðeigandi fræðsluráðs, og 5) fá löggildingu fræðslumálastjórnar.
Minni hl. n. telur, að starfsemi einkaskólanna við hlið hinna barnaskólanna í landinu skapi þeim með nokkrum hætti heilbrigt aðhald og sé heppileg fyrir þróun fræðslumálanna yfirleitt. En skilyrði þau, sem frv. setur, til þess að skólarnir geti notið þeirra hlunninda, sem það fjallar um, ættu að tryggja, að fræðsla barna í einkabarnaskólum verði engu síðri, en í öðrum barnaskólum. Sömu kröfur eru gerðar til kennara í þessum skólum og öðrum og réttmætt, að þeir njóti því sömu kjara. Líka má benda á, að foreldrar barna í einkaskólum greiða sína skatta og skyldur til hins opinbera eins og annað fólk og því ástæðulaust að láta börn þeirra fara á mis við þá ókeypis fræðslu, sem börnum er annars látin í té. Loks má nefna, að ef starfsemi einkaskólanna legðist niður, yrði ríkið eða það opinbera hvort eð er að kosta fræðslu þeirra barna, sem annars stunda þar nám.
Þessa seinustu röksemd virðist meiri hl. menntmn. hafa haft í huga, þegar meiri hl. gaf út sitt nál. fyrir nokkrum dögum. En meiri hl. nefndarinnar vill láta athuga það nánar, hversu mikil hætta sé á, að skólahald þetta leggist niður vegna fjárskorts, ef því er áfram haldið með sama hætti og hingað til hefur verið. Þetta ætti hins vegar ekki að vera mjög mikil þörf á að gera, því að frv. þetta mun upphaflega hafa verið flutt einmitt vegna þess, að þessir einkaskólar eiga í örðugleikum. Og þegar litið er til þeirra raka, sem ég áðan taldi upp, og fyrst og fremst þess, að þetta frv. herðir á kröfunum, sem gerðar eru til einkaskóla, um leið og það ætlar þeim aukin fríðindi, sýnist hér vera um svo augljóst réttlætismál að ræða, að unnt ætti að vera að afgreiða það án teljandi ágreinings.