05.12.1957
Efri deild: 32. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (186)

69. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í þessu frv. felast tvær smávægilegar breytingar á gildandi lögum um skemmtanaskatt og þjóðleikhús eða réttar sagt því lagafrv., sem samþykkt var hér á hinu háa Alþingi 29. maí s.l.

Í 4. gr. þeirra laga var, eins og öllum hv. þdm. áreiðanlega er kunnugt, gert ráð fyrir því, að leggja skyldi sérstakt gjald, einnar kr. gjald á aðgöngumiða að kvikmyndasýningum og tveggja kr. gjald á aðgöngumiða að dansleikjum, og skyldi gjald þetta renna óskipt í menningarsjóð og vera varið svo sem nánar var ákveðið í lagasetningu um menningarsjóð. Það var gert ráð fyrir því og tekið greinilega fram í grg. fyrir frv. og framsöguræðu og umr., sem fóru fram um málið, að svo væri til ætlazt, að öll kvikmyndahús greiddu þetta einnar kr. gjald af aðgöngumiðum af sýningum sínum, þ.e.a.s. einnig þau kvikmyndahús, sem annars njóta undanþágu frá hinum almenna skemmtanaskatti. Ég taldi þá og tel raunar enn, að 4. gr., eins og hún er orðuð, sé tvímælalaus hvað þetta snertir, enda var engum athugasemdum hreyft varðandi orðalag greinarinnar í hvorugri hv. þd., þegar málið var til umræðu, og lá alveg ljóst fyrir, að tilgangur greinarinnar væri sá, að einnig undanþágubíóin, ef svo mætti nefna þau, ættu að greiða þetta einnar kr. gjald.

Nú hefur hins vegar ein rödd borizt menntmrn. þess efnis, að þetta sé ekki alveg tvímælalaust, greininni ljúki nefnilega með þessari setningu, 4. gr., með leyfi hæstv. forseta: „Um innheimtu gjalds þessa skulu gilda sömu reglur og um innheimtu annars skemmtanaskatts samkvæmt lögum.“

Á því hefur verið vakin athygli, að ef til vill mætti skilja þessa grein þannig, að undanþágubíóin ættu einnig að hafa undanþágu frá krónugjaldinu. Lögfræðingar, sem menntmrn, hefur leitað til varðandi þetta efni, telja að vísu engar líkur á því, að dómstólar mundu fella þann úrskurð á grundvelli þessarar greinar, að undanþágubíóin væru ekki skyldug til að greiða þetta gjald, enda segir svo í upphafi greinarinnar, með leyfi hæstv forseta: „Leggja skal sérstakt gjald á alla aðgöngumiða að kvikmyndasýningum, öðrum en kvikmyndasýningum fyrir börn.“ En engu að síður hefur mér þótt rétt að taka af öll tvímæli um þetta, og því er í frv., sem hér liggur fyrir til 1. umr., lagt til, að við 1. mgr. 4. gr. bætist þessi setning, með leyfi hæstv. forseta, þ.e.a.s. einnar kr. gjaldið fellur á aðgöngumiða að kvikmyndasýningum, sem undanþegnar eru skattgreiðslu samkv. 1. gr. Hér er sem sagt ekki um að ræða efnisbreytingu frá því, sem ráð var fyrir gert við setningu þessara laga og enginn ágreiningur var um hvernig skilja bæri hér í hinu háa Alþingi, heldur einungis að taka af hugsanlegt tvímæli um það, að undanþága frá skemmtanaskatti eigi ekki að þýða undanþágu frá þessu gjaldi.

Hin breytingin er efnisbreyting, þótt að vísu mjög smávægileg sé. Í 4. gr. var einnig gert ráð fyrir tveggja kr. gjaldi af aðgöngumiðum að dansleikjum og heldur ekki gert ráð fyrir neinni undanþágu þar, þ.e.a.s. tveggja kr. gjaldið átti samkvæmt lögunum og á samkv. lögunum, eins og þau eru, að greiðast af aðgöngumiðum allra dansleikja. Nú hefur aftur á móti við framkvæmdina komið í ljós, að dansleikir í dreifbýlinu, sem undanþegnir eru hinum almenna skemmtanaskatti, eru oft svo fámennir og þar er oft og einatt ekki sú löggæzla til staðar, að unnt sé, nema þá með miklum kostnaði, að innheimta tveggja kr. dansleikjagjaldið af þessum dansleikjum, og á það alveg sérstaklega við dreifbýlið, en einnig við dansleiki ýmissa félaga í kaupstöðum og kauptúnum, sem fást við góðgerðar- og líknarstarfsemi, en eru gjaldskyld eins og ákvæði laganna nú eru.

Þess vegna er hér í frv. lagt til, að þau félög, sem á annað borð samkvæmt lögunum eru undanþegin skemmtanskatti skuli einnig vera undanþegin tveggja kr. gjaldinu. Það hefur komið í ljós, að efna yrði til sérstaks eftirlits til þess að geta innheimt þetta tveggja kr. gjald, og þetta eftirlit mundi í ýmsum tilfellum kosta um það bil jafnmikið og gjaldinu sjálfu næmi.

Að vísu má segja, að hinum gjaldskyldu aðilum sé skylt að kosta eftirlitið sjálfir, þannig að ríkið eða þeir aðilar, sem njóta skemmtanaskattsins, fengju sínar tekjur á þurru, en það er óeðlilegt að leggja þeim félögum, sem hér ættu hlut að máli og oft og einatt eru fámenn, en í öllum tilfellum ætla að verja hagnaði sínum til góðgerðar- og líknarstarfsemi, þann bagga á herðar að verða að kosta nokkrum hundruðum króna til að innheimta gjald, sem aðeins nemur nokkur hundruð krónum. Þess vegna er hér í frvgr. lagt til, að þetta tveggja kr. gjald skuli ekki innheimtast af þeim aðilum, sem á annað borð greiða ekki skemmtanaskatt. Hér er um litlar fjárhæðir að ræða, sem ekki skipta neinu máli fyrir þá aðila, sem tekna skemmtanaskattsins eiga að njóta, þ.e.a.s. félagsheimilasjóð og rekstrarsjóð þjóðleikhússins.

Ég vildi leyfa mér að vænta þess, að hv. d. tæki vel á þessu frv., og óska þess, að því verði að lokinni umr. vísað til hv. menntmn.