28.10.1957
Neðri deild: 10. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (1895)
29. mál, vegalög
Flm. (Jón Sigurðsson) :
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir og við flytjum, þm. Skagf., er að mestu samhljóða frv., sem við fluttum á síðasta þingi. Það er aðeins einum lið bætt inn í, Norðurárdalsvegi, sem stafar af því, að með byggingu brúar á Norðurá undan Skeljungshöfða var horfið frá hinu fyrra brúarstæði í Gvendarnesi. Af því leiðir, að talið er nauðsynlegt að taka þennan veg, Norðurárdalsveg, upp í þjóðvegatölu. Að öðru leyti eru breytingarnar hinar sömu og lágu fyrir Alþingi á síðasta þingi.
Eins og kunnugt er, byggist mjólkurframleiðsla m. a. á því, að vegir séu þannig, að unnt sé að halda uppi daglegum mjólkurflutningum allt árið. Þrátt fyrir þessa nauðsyn er langt í land í Skagafirði að koma vegamálum héraðsins í það horf, sem mjólkurframleiðslan og aðrir framleiðsluhættir krefjast.
Aðeins nokkur hluti héraðsbúa getur flutt mjólk að staðaldri til mjólkursamlags sökum vegaleysis og ófullnægjandi samgangna. Stafar þetta, eins og kunnugt er, að nokkru af þeirri tregðu, sem hefur ávallt verið á því, að ríkissjóður legði sýsluvegasjóðunum fé, svo sem þurft hefði á móti framlögum héraðsbúa til þess að standa undir kostnaði við nýlagningar og sömuleiðis viðhald sýsluvega. Af þessum ástæðum hefur sýsluvegum miðað víðast lítið áfram, og vegirnir verða þess vegna ófærir strax og tíð spillist. Þeir mjólkurframleiðendur, sem búa við þessa vegi, verða árlega af þeim sökum fyrir mjög þungum búsifjum, þar sem þeir geta oft og einatt ekki flutt frá sér mjólk mánuðum saman, og þetta verður þá einnig til þess, að aðrir treysta sér ekki til að snúa sér að mjólkurframleiðslu sökum erfiðra flutninga, enda þótt skilyrði séu ágæt til slíkrar framleiðslu. Til þess að ráða bót á þessu hefur Alþingi á undanförnum árum tekið það ráð að taka sýsluvegi upp í þjóðvegatölu og létta þannig nokkuð á sýsluvegasjóðunum. Þrátt fyrir þessa viðleitni og með skírskotun til fjárhags sýsluvegasjóða teljum við flm. fulla nauðsyn bera til, að framangreindir vegir og vegakaflar verði teknir í tölu þjóðvega. Að baki þessum óskum liggja kröfur frá kjósendum okkar víðs vegar í héraðinu.
Þrátt fyrir það, þótt allir þessir vegir eða vegakaflar væru teknir upp í þjóðvegatölu, get ég fullyrt sem kunnugur maður, að í hverjum einasta hreppi sýslunnar eru samt eftir sýsluvegir og vegakaflar, sem sýslan verður að leggja í stórfé, og er ærið verkefni, og auk þess eru eftir samt byggðir, þar sem aðeins er um hreppavegi að ræða og enn ófullkomnari vegi, en þá vegi, sem komnir eru í sýsluvegatölu. Þetta sýnir aðeins, hvernig ástandið er og hver þörf er á umbótum í þessu efni.
Ég vil svo óska eftir að, að umr. lokinni verði þessu frv. vísað til samgmn., og læt svo útrætt um þetta mál.