11.12.1957
Efri deild: 36. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (194)
69. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf varðandi hag félagsheimilasjóðs. Það er að vísu erfitt að grípa svona tölur, sem lesnar eru upp. En mér skilst þó, að æði mikið fé vanti, til þess að hægt sé að fullnægja þörfum sjóðsins. Að vísu sagði hæstv, ráðh., að hann byggist við, að tekjur sjóðsins eftir aukninguna mundu fullnægja árlegri þörf sjóðsins. En ég vil þá leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh., hvort hann hafi þá reiknað með þeirri viðbót, þeirri stórfelldri fjölgun aðila, sem eiga kröfu á hendur sjóðsins nú, eða hvort hann á eingöngu við það, eins og það var áður, þ.e. félagsheimilin aðallega í dreifbýlinu. Það skiptir vitaskuld miklu máli, hvort það er aðeins hin árlega þörf sjóðsins eftir byggingum í dreifbýlinu, eða hvort það nær einnig til þeirrar miklu fjölgunar, sem var ákveðin á síðasta þingi. Ef hæstv. ráðh. getur upplýst þetta, þætti mér vænt um það.