01.11.1957
Efri deild: 15. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í C-deild Alþingistíðinda. (2147)
32. mál, póstlög
Flm. (Alfreð Gíslason) :
Herra forseti. Ef ég eignast hlut á heiðarlegan hátt, á ég rétt á að ráðstafa honum að vild. Ég get geymt hann, gefið eða selt, og meðan ég stend í skilum við aðra menn, er ekki leyfilegt að taka hlutinn frá mér, nema fullt gjald komi til. Fái ég sendibréf stílað á mitt nafn, er það mín lögmæt eign, ekki aðeins bréfsefnið, heldur líka umslag og álímd frímerki. Engum dettur í hug að efast um þetta. Ein er þó undantekning frá þessari almennu reglu um eignarrétt. Póststjórn landsins er með lögum tryggður eignarréttur á vissum hlutum, sem aðrir hafa keypt og vilja eðlilega telja sína eign.
Í 17. gr. póstlaganna er kveðið svo á, að póststjórnin skuli láta búa til eyðublöð undir póstávísanir, póstkröfur, póstinnheimtur, fylgibréf, póstkvittanabækur og m. m. og tiltaka verðið á þeim. Í sömu gr. er einnig ákvæði um, að eyðublöðin skuli seld á tilteknu verði, og síðan er því slegið föstu, að þessi seldu eyðublöð skuli, ásamt seldum frímerkjum fyrir burðargjald sendinganna verða eign póststjórnarinnar, um leið og þeim er skilað til flutnings.
Nú mun enginn sjá ofsjónum yfir, að póststjórnin skuli hafa heimild til að eigna sér notuð eyðublöð eða áprentuð frímerki, enda eyðublöðin þá orðin nauðsynlegar kvittanir fyrir skilvísi hennar. En það gegnir öðru máli um álímdu frímerkin. Þar sjá margir rautt, þegar á eignarrétt póststjórnarinnar er minnzt. Er þó ekki við hana að sakast í þessu efni, því að hún er aðeins að framfylgja settum lögum, þegar hún í slíkum tilfellum tekur það, sem hún á ekki að áliti fjölda manna.
Notuð frímerki eru ekki verðlaus vara, og því er mörgum sárt um þau. Verðmæti þeirra stendur oftast í réttu hlutfalli við áritað verðgildi, þannig að notuð tíu króna frímerki eru t. d. miklu dýrari söfnunarvara en notuð 10 aura frímerki.
Nú vill svo til, að póststjórnin fær fyrir tilstilli nefnds lagaákvæðis ókeypis þau frímerki, sem safnarar sækjast mest eftir og greiða hæst verð fyrir. Algengu, ódýru frímerkin eru í reyndinni undanþegin lagaákvæðinu, og þeim fær viðtakandi sendingar óáreittur að halda.
En hvernig er þetta lagaákvæði til komið? Ég veit það ekki satt að segja. En mér finnst að því einhver keimur vafasams heiðarleika. Ákvæðið nær svo til eingöngu til verðmætustu notuðu frímerkjanna og aðeins til þeirra, sem auðvelt er að hrifsa úr höndum viðskiptavinanna. Viðtakandi sendingar er til neyddur að skila eyðublaðinu með álímdum frímerkjum, ella fær hann ekki sendingu sína afhenta. Þar eru því hæg heimatökin. Verðlitlu frímerkin og þau, sem umstangsmeira væri að endurheimta, eru látin sigla sinn sjó. Þau eru leifarnar af borði ríka mannsins viðskiptavinum póststjórnarinnar til handa.
Það er eðlileg afleiðing þess, sem á undan er gengið, að póststjórnin reyni að gera sér mat úr þessum feng sínum, enda hefur hún komið upp innan sinna vébanda sérstakri stofnun, sem nefnist Frímerkjasala. Þar eru eingöngu seld þau notuðu frímerki, sem lögin hafa skipt um eigendur á. Eru þau seld í lokuðum bögglum og eftir þyngd og þannig tilreidd kölluð „kílóvara“. Minnir þessi söluháttur nokkuð á happdrætti, en bögglarnir eru mjög eftirsóttir, og fá færri en vilja. Er ásóknin sögð mikil og þeir aðgangsfrekastir, sem hafa sölu notaðra frímerkja að atvinnugrein.
Ég get ekki leynt því, að mér finnst þessi viðskiptabragur og allt, sem honum fylgir, ósamboðið póstmálastofnun ríkisins. Hún ætti að telja hann fyrir neðan sína virðingu. Lagaákvæðið um eignarrétt póststjórnarinnar á notuðum frímerkjum er óvinsælt meðal almennings. Á nokkurra mánaða eða missira fresti gýs óánægjan upp í dálkum dagblaðanna, þar sem þá er deilt hart á þetta ákvæði. Sennilega standa oft að baki slíkra blaðagreina atvinnumenn á sviði frímerkjasölu. En óánægjan er langtum víðtækari. Þúsundir landsmanna stunda frímerkjasöfnun sér til ánægju, og þeir munu flestir telja síg órétti beitta með lagaákvæðinu. Aðrir viðurkenna óréttmæti þess, þótt þeir annars hafi engan áhuga á málefninu, frímerkjasöfnun. En fordæmingin á þessari tilhögun er almenn, og hún verður ekki kveðin niður með neinum dómi. Þótt ákvæðið sé ekki af hæstarétti talið brjóta í bág við stjórnarskrána, samrýmist það einhvern veginn illa réttarmeðvitund hins óbreytta borgara.
Hneigð til söfnunar innan vissra takmarka er frekar talin dyggð, en löstur. Fjöldi unglinga safnar frímerkjum, útlendum og innlendum. Munu uppalendur telja það holla tómstundaiðju. Hún beinir huganum frá því, sem lakara er, og þroskar ýmsa heppilega eiginleika. Með margnefndu lagaákvæði er lagður steinn í götu þessara unglinga og raunar fjölda manna, sem af litlum efnum, en ríkum áhuga gefa sig að frímerkjasöfnun. Þeir fá ekki verðmætu frímerkin, sem heimilum þeirra kunna að berast, heldur renna þau án endurgjalds til voldugrar ríkisstofnunar, sem selur þau fyrirferðarmiklum frímerkjakaupmönnum. Hjá þeim geta unglingarnir og aðrir lítils megandi áhugamenn loks fengið þau keypt, en þá eru þau orðin býsna dýr. Slík eru áhrif þessarar milliliðastarfsemi.
Ég læt útrætt um þetta mál. Ég veit, að mig brestur þekkingu í lögspeki og að ég er lítt kunnugur á sviði póstmála, og má því vel vera, að mér hafi láðst að draga fram einhver mikilsverð atriði í málinu. Það kemur þá væntanlega fram við athugun á frv. því, sem fyrir liggur, og umræður um það. En ég hef flutt þetta frv. á þskj. 43 af því, að ég tel hér um sanngirnismál eitt að ræða.
Ég vil að lokum biðja hv. þdm. að veita því athygli, að í þessu frv. er gert ráð fyrir, að einungis þeir viðtakendur póstsendinga, sem þess sérstaklega óska, fái að halda álímdum frímerkjum sínum. Komi ekki fram bein ósk um slíkt, falla frímerkin ásamt eyðublöðum eftir sem áður í hlut póststjórnarinnar. Það er þannig farinn hér meðalvegur. Með því ættu áhugamenn um frímerkjasöfnun að fá sitt og póststjórnin þó að halda einhverju eftir, sem hún þá óumdeilanlega væri heiðarlega að komin.
Herra forseti. Ég vil leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr, vísað til hv. samgmn.