17.12.1957
Efri deild: 44. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í C-deild Alþingistíðinda. (2156)
90. mál, skipun prestakalla
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég skal á þessu stigi málsins ekki neitt tala um frv. sjálft, en vil aðeins beina því til hæstv. menntmn., sem fær málið til meðferðar, að svipað þessu stendur á með nokkuð mörg fleiri prestssetur á landinu, og hún þarf að taka málið upp í n. á miklu breiðari grundvelli en þetta.
Annars er þetta talandi tímanna tákn, að þegar hér var seinast rætt um prestana, mátti ekki heyra nefnt að flytja verulega prestssetrin, þó að það væri nú gert við einstaka þeirra, sett heimild inn í lögin viðvíkjandi öðrum, sem búið er að framkvæma sums staðar og annars staðar ekki, og þá alltaf talið, að þeir þyrftu að búa í sóknunum og sem næst miðsvæði sóknanna. Síðan hafa fleiri prestar fengið leyfi til þess að þjóna brauðum og sitja langt burt frá söfnuðinum. Þannig var Viðvíkurprestakalli þjónað af presti, sem í mörg ár sat á Sauðárkróki, og á Ísafirði sat prestur, sem átti að þjóna í Sléttuhreppi, sem þá var í byggð. Og nú situr þessi á Laugum, þó að hann eigi að þjóna Vatnsendaprestakalli, o. s. frv. Sýnir sig m. ö. o., að það, sem menn þá héldu fram, var tóm vitleysa, framkallað af prestunum sjálfum. Samgöngurnar eru orðnar þannig í landinu nú, að það er ósköp hægt fyrir presta að sitja nokkuð langt frá sínum prestaköllum og komast þangað þessa fáu sunnudaga, sem þeir bera við að messa.
Þess vegna held ég, að málið þurfi að takast upp á miklu breiðari grundvelli en hér er, og ég bið n. að athuga þá sérstaklega, ef hún ekki vill fara út í miklar breytingar, önnur prestaköll, sem svipað stendur á um og þetta. Presturinn, sem núna þjónar t. d. austur á Héraði, á að sitja á Kirkjubæ, en hann situr á Eiðum í annarri sýslu og þjónar þaðan og þaðan ekur hann alla leið upp í Möðrudal til að messa, á annað hundrað kílómetra vegalengd.
Þannig er það víðar, sem þarf að athuga þetta mál, og þess vegna bið ég n. að athuga það á breiðari grundvelli en þetta frv. eitt gefur tilefni til.