09.12.1957
Efri deild: 34. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í B-deild Alþingistíðinda. (216)
73. mál, kosningar til Alþingis
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er satt að segja ekki svaravert þetta, sem hv, þm. V-Sk. sagði, í fyllstu merkingu þeirra orða, Hann sagði, að þetta væri ofbeldisstefna, sem kæmi fram í frv., og talaði yfirleitt eins og maður, sem hefur óráð eða talar upp úr svefni. Hann reyndi ekki að færa nokkur rök fyrir þessum gífuryrðum sínum, önnur en þau, að það væri gert ráð fyrir því, að kjörfundi skyldi ljúka kl. 23 að kvöldi, í stað þess sem margir álíti nú, að það sé skylt að ljúka honum klukkan 24, sem sé á sjálfan kosningadaginn. Það er þá þetta, sem hv. þm, leyfir sér að kalla þessum þokkalegu orðum, sem hann viðhafði um málið og ríkisstj. í því sambandi. Þó er gert ráð fyrir því, að þeir, sem hafa mætt fyrir 23, geti greitt atkvæði. Nú vita það auðvitað allir, að það er gersamlega vorkunnarlaust að hafa lokið kjörfundi fyrir þennan tíma, og yfirleitt hefur kjörfundum víðast hvar verið lokið löngu fyrir þennan tíma. En það er aðeins í nokkrum bæjum, ef það er þá nokkurs staðar nema í Reykjavík, sem sá háttur hefur verið uppi hafður, að kjörfundur hefur staðið áfram langt fram á nótt, og það finnst víst þessum hv. þm. sérstaklega eftirsóknarvert, að kjörfundurinn standi langt fram á nótt, til þess, að því er manni helzt skilzt, að það sé hægt að brölta á heimilum manna um nætur, til þess að elta þá til að taka þátt í kosningum. Það er lýðræðishugsjón þessa hv. þm., að slíkt geti haldið áfram.
Hvernig í ósköpunum ætti það að vera í anda einræðis og ósamboðið lýðræðishugsjóninni að banna áróður á sjálfan kosningadaginn, á kjörfundinum eða í næsta nágrenni kjörfundarins, að banna flokksmerkingar á bílum og að banna það, að menn sitji inni á kjörfundinum sjálfum og skrifi upp, hverjir kjósa, til þess að geta svo haft afskipti af því, hvort menn kjósa eða ekki? Hvernig í ósköpunum þetta getur talizt ósamboðið lýðræðishugsjóninni og ganga í þá átt að gera kjósendum torveldara fyrir en ella. að neyta atkvæðisréttar síns og hvernig í ósköpunum þetta getur heimfærzt undir ofbeldisstefnu, það er gersamlega ofar mínum skilningi, og því segi ég það, að mér fannst þessi hv. þm, tala eins og hann talaði upp úr svefni hér áðan og a.m.k. fullkomlega meira af kappi en forsjá.