18.04.1958
Efri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (2179)
170. mál, kirkjugarðar
Frsm. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Þetta frv. um kirkjugarða á þskj. 382 er flutt af menntmn. samkv. beiðni dóms- og kirkjumrn.
Árið 1955 skipaði þáv. kirkjumálaráðherra nefnd til að endurskoða lög og tilskipanir um málefni kirkjunnar. Nefndina skipuðu biskup Íslands, herra Ásmundur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Gústaf Jónasson, og biskupsritari, sr. Sveinn Víkingur.
Nefndin hefur samið það frv., sem hér er til umræðu. Frv. er ætlað að koma í stað laga nr. 64 frá 23. júní 1932, um kirkjugarða.
Helztu ákvæði þessa frv., er fela í sér breytingar á eldri lögunum, snerta eftirfarandi atriði: Um friðun kirkjugarða, um skipulagsnefnd kirkna og kirkjugarða, um möguleika til að tvígrafa í sömu gröf, um að slétta skuli yfir gröf í stað þess að hlaða upp leiði, um legstaðaskráningu og tölumerkingu leiða, um fjölskyldugrafreiti innan kirkjugarðs, um friðunartíma grafa, um minnismerki á leiði, um bann við timbur- og steinsteypugirðingum um leiði, um meðferð duftkera, þegar líkbrennsla fer fram, um tekjur kirkjugarða, þ. e. 2% af útsvörum, um kirkjugarðasjóð, um heimagrafreiti og um uppgröft og flutning líka.
Menntmn. hefur rætt frv. á tveimur fundum, en á þó að mestu leyti eftir að athuga þetta frv., sem er allfyrirferðarmikið og er í 39 greinum, og nm. hafa óbundnar hendur um brtt, við frv.
Ég sé ekki ástæðu til, að frv. verði vísað til nefndar, þar sem það er flutt af nefnd og athugun n. á því mjög skammt komin.