21.04.1958
Efri deild: 82. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (2185)
174. mál, fræðslustofnun launþega
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson) :
Herra forseti. Eins og hv. frsm. minntist á hér áðan, liggja nú þrjú mál fyrir hv. Alþingi, sem öll fjalla um fræðslustofnanir í þjónustu launþega í landinu.
Það er í fyrsta lagi frv. um verkalýðsskóla eða frv. um félagsmálaskóla verkalýðssamtakanna, í öðru lagi þáltill. um fræðslustofnun launþega, og nú loks þetta frv., sem hér er lagt fram, frv. til l. um fræðslustofnun launþega, og virðist byggt á sömu hugsun og þáltill. sú, sem fyrir þinginu hefur legið í fyrra og nú.
Á nokkrum undanförnum árum hefur verið hreyft þessu máli í frumvarpsformi, og var ég tvisvar, ef ekki þrisvar, flm. að frv. um verkalýðsskóla, sem byggt var upp mjög svipað því, sem frv. um félagsmálaskóla verkalýðssamtakanna er byggt upp eftir, frv., sem liggur nú fyrir þinginu. Í fyrra bættist svo við þáltill. um fræðslustofnun launþega almennt, og virtist það mál vera hugsað í verulegum atriðum á annan hátt, heldur en félagsmálaskólinn fyrir verkalýðshreyfinguna eina.
Það er einnig rétt, sem hv. frsm. tók fram, að þegar núv. ríkisstj. var mynduð, var um það samið, að á þessu kjörtímabili skyldi verða stofnað til skóla fyrir verkalýðssamtökin.
Þetta, að það liggja þrjú mál fyrir þessu hv. þingi um fræðslu launþega í landinu, sýnir, að það er vakandi áhugi fyrir þessu máli og þörfin viðurkennd af mörgum fyrir þess konar fræðslu. Hitt virðist aftur vera ljóst, að mönnum kemur ekki alveg saman um, í hvaða formi þessi fræðsla sé æskilegust, hvaða stakk eigi að sníða henni.
Ég skal játa það, að þegar ég flutti mitt frv. upphaflega um verkalýðsskóla, var það í fyrsta lagi af því, að mér var það fyllilega ljóst af löngu starfi í verkalýðshreyfingunni, að slíkrar fræðslu væri mikil þörf innan þeirra félagssamtaka. Það er ekki aðeins, að það séu mörg hundruð manna á hverju ári, sem gegna störfum í stjórnum verkalýðsfélaganna,en verkalýðsfélögin eru nú milli 160 og 170, og í þeim hópi eru margir menn, sem eru nýliðar árlega og finna það tilfinnanlega, að þeir kunna ekki nægilega vel til verka og finna, að það hvílir á þeim þung ábyrgð í þessum störfum, enda er því ekki neitað, að það veltur ekkert á litlu fyrir þjóðfélagið, hvernig þessi störf eru af hendi leyst og hvort það er gert af þekkingu og ábyrgðartilfinningu eða ekki. En auk þess eru mörg hundruð trúnaðarmanna í þjónustu verkalýðshreyfingarinnar, aðrir en þeir, sem sitja beint í stjórnmálum, og má þar sérstaklega nefna þá menn, sem kosnir eru sem trúnaðarmenn á vinnustöðum. Vinnulöggjöfin ætlar þessum mönnum bæði allvíðtæk réttindi og líka allþungar skyldur, og þeir eiga að verða sá fyrsti aðili, sem fjallar um hvert það deilumál, sem upp kemur á vinnustað, hvort sem það er viðvíkjandi góðum efndum eða lélegum á gerðum samningum við atvinnurekendur eða framkvæmdaratriði á vinnustaðnum. Og þessi trúnaðarmaður á að snúa sér beint til verkstjórnandans, ef það dugir ekki, þá til atvinnurekandans og reyna að fá þessi mál leyst, áður en þau magnist sem deilumál.
Það, hvernig trúnaðarmanninum á hinum einstaka vinnustað tekst að sinna sínum skyldustörfum, er mjög þýðingarmikið fyrir vinnufriðinn í landinu, því að ef við eigum dugandi og lagna og vel menntaða trúnaðarmenn á sem allra flestum vinnustöðum, mætti vel svo fara, að margt það ágreiningsefnið, sem síðar verður alvarlegt ágreiningsefni og deilumál, hefði verið hægt að útkljá á byrjunarstigi af þessum trúnaðarmannahópi, sem starfandi er í þjónustu verkalýðshreyfingarinnar. Og það eru einmitt þess konar menn, sem í okkar nágrannalöndum fyrst og fremst veljast til þess að leita sér fræðslu og menntunar og þekkingar í verkalýðsskólunum.
Það var leitað umsagnar um þáltill. um fræðslustofnun launþega til Alþýðusambands Íslands, og Alþýðusambandið sendi umsögn um þá till., og umsögnin var á þá lund, að Alþýðusamband Íslands mæli svo sem engan veginn á móti því, að komið sé á fót almennri fræðslustofnun fyrir launþega almennt, það má vel vera, að þess sé þörf. En það tók Alþýðusambandið fram í sinni umsögn, að það teldi slíka fræðslustofnun launþega ekki geta komið í stað þess félagsmálaskóla, sem verkalýðshreyfingin hefur borið fram kröfur um á undanförnum árum að komið yrði á fót og Alþýðusambandsþing tvisvar sinnum skorað á Alþingi og ríkisstj. að gera að veruleika.
Í þessari umsögn var heitið á þá, sem stæðu að flutningi þáltill., að taka hana aftur og sameinast heldur um frv. um félagsmálaskóla, og var þá beðið eftir því að fá úr því skorið, hvort ekki fengist samkomulag um flutning þess. Það virtist þó ekki vera fáanlegt að sinni, og sýnist mér nú, að þeir, sem stóðu að flutningi þáltill. um fræðslustofnun launþega, hafi nú valið þann kostinn að flytja heldur þær hugmyndir, sem í ályktuninni fólust, í frv.-formi.
Ég mundi telja æskilegt, að allt yrði reynt, sem hægt væri, til þess að sameinazt væri um lausn þessa máls í samræmi við gefin fyrirheit í stjórnarsáttmálanum og að það yrði ekki látið verða þessu þarfa menningarmáli alþýðustéttanna að fótakefli, að menn togist á um formsatriði málsins, þegar hvorir tveggja virðast viðurkenna þörfina fyrir framgang málsins í sjálfu sér.
Það er rétt, að frv. það, sem liggur fyrir þinginu um félagsmálaskóla verkalýðssamtakanna, er þrengra að því leyti, að þar er eingöngu átt við, að skóli skuli stofnaður og rekinn í þjónustu alþýðusamtakanna, verkalýðshreyfingarinnar, og er þar alveg farið að fordæmi okkar nágrannaþjóða um það efni. Hér virðist vera horft á það, að þessi fræðslustofnun eigi að vera fyrir verkalýðssamtökin, en einnig fyrir Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Ég veit ekki, hversu almennur áhugi er innan þeirra samtaka fyrir því, að stofnað sé til sérstakrar menntastofnunar fyrir opinbera starfsmenn og embættismenn ríkisins. Ég hef hvergi séð þeirri hugsun hreyft úr þeim röðum, og ég veit heldur engin dæmi þess í nágrannalöndum okkar, að það séu neinar sérstakar fræðslustofnanir fyrir opinbera starfsmenn og embættismenn og samtök þeirra.
Þeirri fræðslu, sem verkalýðssamtökin á Norðurlöndum hafa haldið uppi, hefur verið fundið form í hinum svonefndu verkalýðsskólum. Danir eiga tvo slíka skóla, hafa starfrækt annan þeirra í þrjátíu ár í Hróarskeldu. Það þótti þeim ekki nóg, og svo stofnuðu þeir annan í Esbjerg. Hann var tekinn til starfa fyrir stríð. Julius Bomholt, sem síðar varð menntmrh. Dana, var þá skólastjóri hans. En hann lenti í því, að þegar Danmörk var hertekin, þá tóku Þjóðverjar húsakynni skólans og lögðu þau undir sig, og voru þau að kalla gereyðilögð, þegar Danmörk varð aftur frjáls. En þá féll ekki niður hugsunin um að endurnýja Esbjergskólann, heldur var þegar í stað ákveðið að koma á fót öðrum skóla í Esbjerg eða rétt við Esbjerg í stað þess, sem undir lok var liðinn. Og nú eru Danir þeirrar skoðunar, að hinn þrjátíu ára gamli skóli og ég vil segja mjög veglegi verkalýðsskóli í Hróarskeldu svari nú ekki nógu vel kröfum tímans að því er ytri skilyrði snerti, og hafa því keypt stóra landeign rétt norðan við Helsingjaeyri til þess að reisa þar veglegan verkalýðsskóla, sem sennilega verður þá sá þriðji hjá þeim, ef þeir halda áfram rekstri Hróarskelduskólans þrátt fyrir það.
Norðmenn eiga tvo slíka skóla, Finnar tvo og Svíar tvo. Þeir eru lengi búnir, Svíar, að reka skóla í Brúnsvík, og hafa margir af helztu verkalýðsleiðtogum þeirra nú einmitt verið á Brúnsvíkurskólanum, en fyrir fimm eða sex árum stofnuðu þeir til mjög veglegs verkalýðsskóla rétt fyrir utan Stokkhólm, Runöskólans, sem ég hef haft tækifæri til þess að skoða og sjá, hvernig starfræktur er.
Þetta sýnir, að okkar næstu nágrannaþjóðir, frændþjóðir, hafa komið upp hver hjá sér skólakerfi til þess að annast fræðslu fyrir verkalýðssamtökin algerlega út af fyrir sig. En það er rétt, að þær hafa ekki látið við þetta sitja. Það eru auk þessara föstu verkalýðsskóla hjá þeim starfandi á vegum verkalýðshreyfingarinnar og með ríkisstyrk fjöldamargir kvöldskólar hingað og þangað um landið, sem annast þessi fræðsluviðfangsefni líka, og auk þess stofnar verkalýðshreyfingin til margra stuttra námskeiða, einkanlega í sambandi við sumarfríin eða orlofsdvalir verkafólks, og tekur þá þar fyrir í léttara formi einstök fræðsluefni.
Útvarpsfræðsla á sér einnig nokkuð stað í öllum okkar nágrannalöndum um verkalýðsmál. Hingað til hefur nú ríkisútvarpið íslenzka ekki opnað sínar dyr fyrir þeim möguleika, en ætti að gera það vissulega, ætti að sýna þá víðsýni, því að það er vitanlega mýmargt, sem hægt er að fræða um, um verkalýðsmál, sem ekki er nein pólitísk fræðsla, heldur hrein og bein almenn félagsmálafræðsla, sem öllu fólki í verkalýðshreyfingunni er hollt að njóta.
Og svo er í fimmta lagi alkunnugt bæði í Svíþjóð og Noregi, að háskólarnir þar reka fræðslustarfsemi, sem er kölluð „folkeuniversitet“, og halda uppi fræðslu í margs konar efnum, sem alþýðumanninum kemur að góðu gagni sem þjóðfélagsþegni og borgara og þar að auki sem meðlim í félagssamtökum eins og verkalýðshreyfingunni.
Það er því áreiðanlegt, að þó að við eignuðumst hér einn verkalýðsskóla á Íslandi, sem ég tel vera bráða nauðsyn á, þá er hann ekki búinn að leysa alla þætti þessara mála á þann hátt, sem æskilegt og nauðsynlegt er.
Ég hefði talið, að það væri rétt, að það lægju fyrir einhverjar upplýsingar um það, hvað Bandalag starfsmanna ríkis og bæja leggur ríka áherzlu á, að komið sé á fót slíkri fræðslustofnun fyrir þau samtök. Það má vel vera, að slíkur áhugi sé vakandi í þeirra samtökum og þeir telji sér þetta nauðsynlegt. En þó er meginhlutinn af því fólki, sem þar er um að ræða, allt öðruvísi settur að því er snertir bæði launabaráttu og félagsmálalega aðstöðu, jafnvel menntunaraðstöðu, — meginþorrinn af því fólki allt öðruvísi settur, en fólkið í verkalýðsfélögunum, og ég tel, að það séu miklu minni líkur til þess, að það sé eins brýn og aðkallandi þörf að stofna sérstaklega til ákveðinnar fræðslustofnunar fyrir þau félagssamtök og það fólk, sem í þeim er, eins og þörfin er brýn hins vegar fyrir það í verkalýðshreyfingunni.
Það var vikið að því, að það gæti verið þörf á þessu í Danmörku, af því að skólaskyldualdurinn væri þar skemmri en hér. Ég geri nú ekki mjög mikinn mun á því, að alþýðufræðsla Dana sé miklu lakari, en hér á Íslandi. Mér er ekki kunnugt um annað, en flest ungmenni í Danmörku fari í framhaldsskóla, þegar barnaskólanum sleppir, í unglingaskóla og miðskóla og í gagnfræðaskóla líkt og hér, og að menntunargrundvöllurinn sé ákaflega svipaður í þessum löndum, bæði í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og á Íslandi að því er það snertir, svo að það sé ekki ríkari ástæða fyrir Dani og Norðmenn og Svía af þeim sökum að berja í bresti slæmrar unglingafræðslu eða barnafræðslu með því að stofna sína verkalýðsskóla og þeir séu reknir þess vegna. Ég held, að það sé alger misskilningur.
Nei, við höfum alveg jafnbrýna þörf fyrir verkalýðsskóla alveg út af fyrir sig, sem sé óháður öðrum hlutverkum, en því að vinna fyrir verkalýðshreyfinguna eina, fyrir þau 30 þús. manna samtök, sem hér er um að ræða, og tel ég þá þörf vera jafnbrýna, þó að við höfum hér skyldunám unglinga til fimmtán ára aldurs og í framhaldi af því miðskóla og gagnfræðaskóla.
Hér er gert ráð fyrir því, að félagsmálaskólinn, sem ekki er skilgreindur nánar, verði rekinn í stuttum eða löngum námskeiðum og heyri undir fræðslustofnun launþega. Ég er ákaflega hræddur um, að það verði lítill fögnuður yfir því í verkalýðshreyfingunni að eiga einhverja undirdeild hér suður í Reykjavík í almennri fræðslustofnun launþega. En það mun koma í ljós á sínum tíma, hversu ánægð verkalýðshreyfingin yrði með það. Ég hefði haldið, að þessi verkalýðsskóli, sem mig hefur dreymt um og rætt hefur verið um á Alþýðusambandsþingum, ætti einmitt ekki að vera í Reykjavík, ekki einu sinni sem sjálfstæð stofnun og því síður sem undirdeild í annarri stofnun.
Að því er snertir önnur ákvæði þarna, sem víkja að því, að þetta eigi að vera víðtækara, en sá félagsmálaskóli, sem fjallað er um í öðru frv., því að þessi stofnun eigi að sjá fyrir almennu fræðslustarfi með fyrirlestraferðum, skuggamyndasýningum, kvikmyndasýningum, útgáfu fræðslurita, blaða, þá skal það tekið fram, að ég hef ekkert á móti slíkri starfsemi fyrir fólkið í launasamtökunum og þá kannske sérstaklega fyrir þá, sem starfa í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, ef þörf þykir sérstaklega fyrir þessa starfsemi því fólki til fræðslu og upplýsingar. En ég held því fram, og ég veit, að ég hef með mér mjög marga í verkalýðshreyfingunni, sem eru þeirrar skoðunar, að þó að með myndarskap væri staðið fyrir fyrirlestraferðum, skuggamyndasýningum og kvikmyndasýningum og útgáfu fræðslurita, þá mundi það ekki draga neitt úr því, að við höfum fulla þörf á, að einn félagsmálaskóli komi, sem sé alveg í þjónustu verkalýðssamtakanna.
Í 3. gr. kemur það fram, að stjórn fræðslustofnunar launþega á að vera skipuð þrem fulltrúum frá Alþýðusambandi Íslands, einum frá stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og einum skipuðum af menntmrh. Þannig er það sýnt, að atvinnusamtökin eiga að eiga þarna meiri hluta í stjórninni. En þessi stofnun á að hafa fræðsluskyldur langt út fyrir raðir verkalýðshreyfingarinnar, og ég er alveg viss um það, að þessi skóli væri fullhlaðinn verkefnum, þó að hann ætti eingöngu að þjóna 30 þús. manna félagshreyfingu í landinu og honum væri ekki ætlað meira.
Þess vegna segi ég, að ef það er sérstök þörf á að koma á fót fræðslustofnun fyrir Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, þá er ég þeirrar skoðunar, að það ætti að vera önnur stofnun, og mundi ekkert af veita. Það eru líka fjölmenn samtök. Svo framarlega sem þeir finna, að þá vanti slíka stofnun, má biðja um það út af fyrir sig. Félagsmálaskólinn út af fyrir sig hefði ærnum verkefnum að gegna og gæti í raun og veru tæpast innt af hendi nema brothluta af þeim verkefnum, þó að hann ætti að helga sig verkefnum í þjónustu verkalýðshreyfingarinnar eingöngu.
Ég vil því mælast til þess, að þegar þetta mál kemur til nefndar, verði það athugað, hvort línur geti ekki skipzt um það, að hægt sé að sameinast um lausn þessa máls á þann veg, að félagsmálaskóli fyrir verkalýðshreyfinguna geti tekið til starfa og verði sem sé lögfestur. Það er mér ekkert meginatriði fyrir mitt leyti, að svo miklu leyti sem ég á hlut að því máli, þó að einhverju verði breytt í því frv., sem hér liggur fyrir um félagsmálaskóla. Það má vel vera, að eitthvað af því, sem hér er hugsað viðvíkjandi starfi hans, mætti fara betur og gæti orðið samkomulag um það. En ég álít, að í annan stað ætti þá að athuga, hvort brýn þörf sé fyrir að koma upp fræðslustofnun fyrir Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og má vel vera, að þar hentaði þetta form, að starfsemin væri rekin í fyrirlestrum manna, sem ferðuðust um landið, og sýndar væru skuggamyndir og kvikmyndir og gefin út smáfræðslurit. En það er ég alveg sannfærður um, að það dugir okkur ekki til þess að inna af hendi það víðtæka fræðslustarf, sem við þurfum að fá innt af hendi fyrir unga fólkið, sem á hverju ári bætist við í stjórnir verkalýðsfélaganna, og fyrir trúnaðarmennina á vinnustöðvunum og hina mýmörgu menn, sem gegna hinum og þessum trúnaðarstörfum, sem þeir eru kosnir til fyrir verkalýðshreyfinguna og þjóðfélagið á mikið undir að séu vel af hendi leyst.
Ég er alveg sannfærður um það, að við þurfum að sinna þessum málum svo mikið, að við þyrftum auk slíks skóla, sem væri okkar höfuðstöðvar fræðslumálanna fyrir verkalýðshreyfinguna, að koma upp kvöldskólum og námskeiðum hingað og þangað og verkalýðshreyfingin að geta styrkt þá fræðslustarfsemi út um land allt á vegum verkalýðsfélaganna sjálfra. Og það að eiga þátt í slíku starfi auk hins fasta skólahalds hygg ég að væri ærið verkefni fyrir skólastjóra félagsmálaskólans og þá kennara, sem hann kynni að hafa sér til aðstoðar í störfum, þó að hann ekki líka þyrfti að fara að sinna fræðsluþörfum þeirra mörgu opinberu starfsmanna, sem ættu kröfu á þessa stofnun, ef málið væri leyst á þann hátt, sem ráð er fyrir gert í þessu frv.
Mér finnst þess vegna málinu vera drepið of mikið á dreif, þessari stofnun ætlað viðtækara verkefni, en ein stofnun með góðu móti kemst yfir og slakað til á þeirri kröfu verkalýðssamtakanna að fá einn skóla út af fyrir sig til þess að sinna sínum brýnustu fræðslustörfum, og skal þá ljúka máli mínu með því að óska þess eindregið, að þeir, sem að þessum tveim frv. standa, athugi allar leiðir í nefnd til þess að fá fullt samkomulag um stofnun félagsmálaskólans og þá í annan stað samkomulag um, hvernig skuli haga fræðslu fyrir opinbera starfsmenn. En ég held, að þetta sé í verulegum atriðum það ólíkt og hvor tveggja verkefnin svo viðtæk, að þau verði ekki með góðu móti innt af höndum með einum skóla, sem ætti að vera fyrir allt landið og sinna hvoru tveggja, svo að sómasamlegt væri.