29.04.1958
Efri deild: 86. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í C-deild Alþingistíðinda. (2232)
182. mál, listamannalaun
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Hinn 2. okt. 1956 skipaði ég nefnd manna til þess að gera tillögur um, hvernig veiting listamannalauna yrði felld í fastara form og betur að skapi þeirra, er launanna njóta, en verið hefur um skeið, eins og segir í skipunarbréfinu. Í nefnd þessa voru skipaðir Helgi Sæmundsson, Guðmundur G. Hagalín, Gunnlaugur Scheving, Jón Leifs, Páll Ísólfsson, Snorri Hjartarson, Steingrímur J. Þorsteinsson, Þorsteinn Hannesson og Ævar R. Kvaran.
Nefnd þessi varð sammála og skilaði tillögum sínum til ráðuneytisins í janúarlok 1957. Aðalatriði tillagna þessarar nefndar eru tvö. Hið fyrra lýtur að því, hvernig listamannalaunum skuli úthlutað. Lagði nefndin til, að ákveðin tala listamanna skyldi hljóta föst heiðurslaun og þeir menn skipa listráð. Öðrum listamannalaunum skyldi úthluta 5 manna nefnd, sem skipuð yrði til þriggja ára af menntamálaráðherra, heimspekideild háskólans, menntamálaráði, listráði og fulltrúaráði Bandalags ísl. listamanna. Til listráðs skyldi hins vegar kosið af 12 manna kjörráði, tilnefndu af menntamálaráðherra, háskólaráði, menntamálaráði og stjórn Bandalags ísl. listamanna.
Hitt aðalatriði till. n. var, að flokkar listamannalauna skyldu vera þrír og launin ákveðin í hverjum flokki. Þessi till. nefndarinnar hefði þýtt það, að þeim, sem hlotið hafa listamannalaun, hefði fækkað mjög verulega, eða úr rúmlega 100 í um það bil 60, en upphæð þeirra launa, sem gert var ráð fyrir í till. nefndarinnar, var í 1. flokki 20 þús. kr. í grunnlaun, í 2. flokki 15 þús. í grunnlaun og í 3. flokki 10 þús. í grunnlaun.
Eftir að nefndin hafði skilað þessu áliti til menntmrn., ræddi það álitið við nefndina sjálfa og við ýmsa aðra aðila, sem mikinn áhuga hafa haft á skipun þessara mála. Það kom í ljós, að tillögur n. varðandi sjálfa tilhögun úthlutunarinnar virtust ekki sæta verulegri gagnrýni. Hins vegar þótti ýmsum, jafnvel mjög mörgum, sem málið var rætt við, nefndin gera ráð fyrir allt of mikilli fækkun þeirra, sem nytu listamannalauna, þannig að mér þótti óvænlega horfa um, að samkomulag gæti náðst um till. nefndarinnar óbreyttar, eða litlar horfur væru á því, að meiri hl. Alþingis mundi vilja samþykkja þá skipun, sem nefndin hafði lagt til. Þetta varð til þess, að ráðuneytið hóf enn frekari athugun á málinu og hefur samið annað frv., sem í ýmsum meginatriðum er samhljóða till. nefndarinnar, en víkur þó frá þeim í veigamiklum atriðum, sérstaklega að því er varðar væntanlega tölu þeirra, sem listamannalauna geta notið.
Í menntmrn. hefur verið samið frv. um listamannalaun, sem í eru eftirfarandi meginatriði: 1) 10 listamenn skulu hljóta föst heiðurslaun, 35 þús. kr. á ári. Skulu þeir skipa listráð og vera ríkisvaldinu til ráðuneytis um listmál. Árlega skal úthluta listamannalaunum í þrem flokkum, að upphæð 20 þús. kr., 12 þús. kr. og 6 þús. kr., og skulu ekki færri, en 25 listamenn njóta 20 þús. kr. launa. Í þessum till, er leitazt við að taka tillit til sjónarmiða þeirra, sem vilja auka festu í úthlutuninni frá því, sem verið hefur, og hafa ákveðna tölu listamanna á tilteknum launum, en hins vegar er tala þeirra, sem listamannalaunin geta fengið, ekki bundin við neitt hámark, svo að það er algerlega á valdi úthlutunarnefndar, svo sem verið hefur, hvort eða um hversu mikla fækkun launþega yrði að ræða.
2) Gert er ráð fyrir, að tilhögun úthlutunarinnar verði eins og nefndin gerði ráð fyrir. Þess er þó rétt að geta, að hún hafði ætlað 12 mönnum setu í listráði, en í frv. því, sem ég hef samið, er þeim fækkað í 10.
3) Nefndin hafði gert ráð fyrir, að listamannalaun skyldu vera skattfrjáls. Ákvæði þess efnis eru ekki í þessu frv., hins vegar er bætt við grein um, að listamannalaun skuli breytast í hlutfalli við breytingar á kaupgjaldsvísitölu.
Þetta eru meginatriði þess frv., sem samið hefur verið í menntmrn. og ég hef gert mér vonir um að líklegra væri til þess að hljóta stuðning, annars vegar listamannanna sjálfra og hins vegar Alþingis, heldur en till. nefndar þeirrar, sem ég gat um áðan, óbreyttar. Ég hef þó ekki viljað leggja þetta frv. fyrir hið háa Alþingi, fyrr en helztu samtökum listamanna hefði verið gert kleift að kynna sér efni þess og segja á því álit sitt, því að ég tel ekki rétt, að Alþingi lögfesti skipan á þessum málum, nema því aðeins að um sé að ræða a. m. k. verulegan stuðning úr þeirri átt, frá þeim aðilum, sem launanna eiga að njóta.
Þegar ég hafði skipað nefndina á sínum tíma, áttu í henni sæti fulltrúar allra helztu listgreinanna eða menn, sem tilheyrðu helztu listgreinum í þjóðfélaginu. Mér var því sérstök ánægja, að svo skyldi til takast, að nefnd þessi yrði sammála, en jafnmikil vonbrigði hins vegar að hví að í ljós skyldi koma, að ýmsir aðrir áhrifamenn í samtökum listamanna skyldu ekki reynast ánægðir með tillögur nefndarinnar, sem ég með mikilli gleði hefði gert að mínum tillögum hér á hinu háa Alþingi, ef ég hefði orðið þess var, að þær nytu óskipts stuðnings samtaka listamanna eða helztu áhrifamanna í þeim samtökum. En þegar ég varð þess var, að svo varð ekki, sérstaklega vegna þess, hve mikilli fækkun þeirra, sem listamannalauna njóta, var gert ráð fyrir, þótti mér rétt að gera tilraun til samningar annars frv., sem bætti úr þessum annmarka, og það er það, sem leitazt hefur verið við að gera með samningu þess frv., sem ég gat um áðan. Það mun nú um þessar mundir verða sent samtökum listamanna til umsagnar og umræðu. Niðurstöður þeirra umræðna og umsögn samtakanna mun væntanlega liggja fyrir, áður en Alþingi kemur saman næst. Ef þær undirtektir verða jákvæðar, mun ég leggja frv. í meginatriðum eins og það, sem ég lýsti, eða með þeim breytingum, sem góðan stuðning hljóta í samtökum listamanna, fyrir næsta Alþingi.