20.12.1957
Sameinað þing: 23. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2239)

98. mál, samþykki til frestunar á fundum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og hv. þingmönnum er kunnugt, hefur sú verið venja að gera hlé á störfum þingsins um jólaleytið, og liggja til þess ýmsar ástæður. Þingmenn eiga vitanlega fullan rétt á því að vera heima um jólin. Enn fremur þurfa hv. þm. margir að vinna að margvíslegum störfum í kringum áramótin. Þá er vafalaust heppilegt, að hlé verði dálítið á þinghaldinu, sem gæti orðið notað til þess að vinna að málum fyrir framhaldsþingið. Loks stendur þannig á nú, að bæjarstjórnarkosningar eiga að fara fram, og margir hv. þm. þurfa vafalaust að vera við þær riðnir meira og minna, og lítill starfsfriður mundi verða á hv. Alþ., meðan á þeirri kosningabaráttu stendur. Þess vegna er þessi till. fram komin um að gefa nú jólaleyfi og fresta þinginu á þann hátt, sem í henni greinir, enda komi það saman ekki síðar en 4. febr. n.k.

Ég sé ekki ástæðu til þess að færa frekari ástæður fyrir þessari till. en ég hef þegar gert.