26.02.1958
Sameinað þing: 30. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (2257)
12. mál, brunavarnir
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Till. sú, sem hér er til umr., hljóðar svo: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta þegar fara fram ýtarlega rannsókn færustu manna á orsökum hinna tíðu eldsvoða, sem valdið hafa miklu tjóni á atvinnutækjum þjóðarinnar, og gera hverjar þær ráðstafanir, sem þurfa þykir til að draga úr eldhættu í atvinnufyrirtækjum.“
Till. þessi hefur verið rædd á nokkrum fundum í allshn., og er n. sammála um að mæla með samþykkt hennar óbreyttrar. Nefndin hefur í fyrsta lagi leitað um þetta álits frá þremur þeirra tryggingarfélaga, sem mest munu hafa af brunatryggingum, og mæla þau öll með samþykkt till., og í öðru lagi frá Geir Zoëga f.h. brunavarnaeftirlits ríkisins, og hefur hann sent allýtarlega og athyglisverða greinargerð, sem hallast mjög í þá átt, sem till. gengur, og mælir því með samþykkt hennar. Ég mun ekki rekja grg. Geirs Zoëga, en hef vísað til hennar, því að hún er efnislega birt sem fylgiskjal með nál.
Það kom fram í umr. n., að til eru ýmiss konar varnartæki gegn eldi, sem notuð eru af atvinnufyrirtækjum víðs vegar um heim, en eru mjög lítið í notkun hér á landi. Það komu einnig þær skoðanir fram við umr. n., að athuga þyrfti viðhorf tryggingarfélaga til þessara mála með tilliti til þess, hvort ekki væri hugsanlegt að fá verulegar lækkanir á brunatryggingariðgjöldum, ef atvinnufyrirtæki gerðu alvarlegar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja eldsvoða. Loks var á það bent, að endurskoða þyrfti þá skipun, að Brunabótafélag Íslands greiði kostnaðinn við brunavarnaeftirlit, ekki sízt, ef horfið yrði að því ráði að auka þetta eftirlit.
Með þessum athugasemdum vil ég skýra frá því öðru sinni, að allshn. mælir með því, að þessi till. verði samþ. óbreytt.