05.03.1958
Sameinað þing: 32. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (2264)

9. mál, fjárfestingarþörf opinberra stofnana

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil þakka meiri hluta allshn, fyrir afgreiðslu þessa máls sem flm. þess hér í upphafi þingsins og vil aðeins nota tækifærið til þess að lýsa eindregnu samþykki mínu við þá brtt., sem þeir fimm nefndarmenn hafa flutt, og vonast til, að ályktunin megi, þannig breytt, verða einróma samþykkt.