05.02.1958
Sameinað þing: 25. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (2271)

51. mál, hafnargerðir og endurskoðun hafnarlaga

Flm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það mun öllum hv. þm. vera kunnugt, að ein mestu vandamál, sem við er að stríða víðs vegar um landið, eru hafnargerðirnar. Allir þeir þingmenn, sem eru úr kjördæmum, þar sem við slík mál er að glíma, og það munu raunar langflestir þingmenn vera, munu af eigin reynd þekkja þetta mál vel og vita, hversu mikla erfiðleika er hér við að etja og hversu erfiðlega gengur að fá endanlega lausn á þessu mikla vandamáli.

Það gefur auga leið, að það er mikið vandamál fyrir litla þjóð eins og okkur Íslendinga að þurfa að koma upp höfnum á fjölmörgum stöðum á landinu, svo sem raun ber vitni um, og ekki að undra, þó að það átak verði ekki gert á skömmum tíma til neinnar hlítar, auk þess sem sannleikur málsins er sá, að það er mjög erfitt að leysa þetta mál endanlega, vegna þess að það skapast alltaf ný viðfangsefni og auknar þarfir með stærri skipum, svo að það er í rauninni erfitt að leysa þetta mál á nokkrum stað, þannig að til frambúðar geti orðið. Hins vegar er þó hægt að koma málinu víðast hvar það langt áleiðis, ef fé væri fyrir hendi, að hægt væri að skapa viðunandi skilyrði fyrir útgerð frá hinum ýmsu sjávarplássum, en það er auðvitað höfuðatriði málsins.

Árlega erum við hér að fást við að reyna að skipta mjög takmarkaðri fjárveitingu milli fjölda staða, þar sem unnið er að hafnargerð, en allt er þetta af stórlega skornum skammti og svo mjög, að varðandi þær hafnir, þar sem mest átök hafa verið gerð á undanförnum árum, skuldar ríkissjóður stórar fjárhæðir, sem ekki er sjáanlegt að hægt verði að greiða á næstunni nema með alveg sérstökum ráðstöfunum. Það hefur verið svo með hafnirnar, eins og raunar vegi og aðrar framkvæmdir í okkar landi, að það hefur verið reynt að dreifa fjárveitingunum til sem allra flestra staða. Það er skiljanlegt, þar sem þarfirnar eru svo margar og svo víða. En þetta hefur aftur leitt það af sér, að mjög erfitt hefur verið um vik, að vinna að nægilega stórum áföngum á hverjum stað, og í sannleika sagt kemur þetta óvíða eða hvergi eins illa við og með hafnargerðir, að það skuli ekki vera hægt að taka nokkuð stóra áfanga. Þó að það sé illt í vegagerð að vinna ekki nema smáspotta í vegi, þá liggur vegur þó ekki fyrir þá sök undir skemmdum, en þannig er ástatt með hafnargerð, ef ekki er hægt að taka þar nokkuð stóra áfanga, að þá er hætt við, að verkið geti stórskemmzt, enda eru þess mörg dæmi, að stórfellt tjón hefur orðið af því, að ekki hefur verið hægt að ljúka ákveðnum áföngum við ýmsar hafnir. Það sýnist því vera hin mesta nauðsyn á því að reyna að mynda sér heildarskoðun um það, hvað gera þurfi í hafnargerðum nú á næstu árum, og þá jafnframt, hvar þörf sé mestra átaka í því efni.

Af þeim sökum höfum við flm. þessarar till. lagt til, að ríkisstj, verði falið í samráði við vitamálastjóra, sem að sjálfsögðu hefur á þessu mesta þekkingu, að gera áætlun um nauðsynlegar hafnargerðir í landinu næstu árin. Það er ekki miðað við ákveðið tímabil, en maður getur látið sér detta í hug 5–10 ár eftir atvikum, eftir því, hvernig sú áætlun kæmi út. Að tilhlutun fjvn. var í hittiðfyrra gerð svipuð áætlun varðandi flugvallargerð, þar sem var að finna margvíslegan fróðleik um þau mál. Því miður hefur ekki verið hægt að verja jafnmiklu fé til þeirra mála og þörf var talin samkvæmt þeirri áætlun, en engu að síður er þar þó að finna mjög mikinn fróðleik, sem hægt er að styðjast við og mynda sér skoðanir um, hverra átaka sé þörf í þessu sambandi.

Um hafnargerðirnar ætti að vera sama máli að gegna. Að vísu munu vera til áætlanir um ýmsar framkvæmdir, einstakar framkvæmdir, en ástæða væri til þess að reyna að mynda sér heildaryfirsýn yfir þessi mál og gera sér grein fyrir, hvernig þau standa og hvaða framkvæmdir eru brýnar í þessu efni. Við þekkjum það öll, að víða getur þannig hagað til, að það blátt áfram sé lífsnauðsyn að vinna að ákveðnum framkvæmdum í hafnarmálum, ef ekki á að verða algert öngþveiti í viðkomandi byggðarlagi varðandi útgerð, og víðast er það auðvitað þannig um sjávarplássin, að örugg höfn er frumskilyrði þess, að þar geti þróazt útvegur og þar með lífvænleg byggð á þessum stöðum, þannig að hér er um að ræða hið mikilvægasta mál í sambandi við það að viðhalda sem víðast byggð í landinu og reyna að koma í veg fyrir, að hún þurfi að dragast saman af þeim sökum, að ekki sé um viðunandi hafnarskilyrði að ræða.

Jafnframt því, að þessi athugun verði gerð, þarf að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því, hvaða möguleikar eru fyrir hendi til fjáröflunar. Einstakar hafnir, þar sem hefur verið um stórframkvæmdir að ræða, hafa getað leyst sinn vanda með því að taka erlend lán, svo sem t.d. Akranes og Vestmannaeyjar. Að vísu er þetta ekki frambúðarlausn á málinu, en með þessu móti hefur þó tekizt að vinna að stórum áföngum, sem nauðsynlegir hafa verið. Það er augljóst mál, að hér getur ekki orðið um að ræða þessa lausn nema fyrir tiltölulega fáa staði, vegna þess að hún kemur ekki til greina, nema þar sem unnið er að mjög miklum og dýrum framkvæmdum. Auk þess er vitanlega nokkurt vafamál, hvort heppilegt er að fara þá leið að leysa þetta mál þannig fyrir einstaka staði, án þess að einhver kerfisbundin lausn sé á þessu fundin og unnið að þessu á skipulagðan hátt, þá með heildarlánsútvegun, sem síðar yrði varið til þessara framkvæmda. En varðandi alla hina minni staði á landinu, sem ekki geta leyst mál sín með því að taka sjálfir erlend lán, verður að sjálfsögðu að finna aðra lausn á málinu.

Áætlun um nauðsynlegar framkvæmdir hlýtur að verða að sjálfsögðu að haldast í hendur við áætlun um það, hvernig á að afla fjár til framkvæmdanna, ella verður að sjálfsögðu áætlunin sjálf, ekki annað en að vísu fróðlegt heimildarplagg, en getur ekki lagt grundvöll að raunhæfum framkvæmdum.

Það hafa komið fram hér á Alþingi ýmsar hugmyndir um fjáröflun til hafnargerða. Hér fyrr á þinginu var rædd till. um að endurskoða lög um hafnarbótasjóð með það í huga að fá aukið fé til hafnargerða. Það er að sjálfsögðu mjög skynsamlegur þáttur í þessu máli, en ekki nema ein hlið vandans. Þá hefur enn fremur verið um það rætt að taka lán til hafnargerða og það mál verið nokkuð rætt hér á Alþingi og yfirlýsingar um það gefnar af ríkisstj., að, að því muni verða unnið, þegar auðið verður vegna annarra lána, sem talin eru þurfa að ganga þar fyrir. En allar þessar hugleiðingar sýna þó glöggt, að það eru opin augu manna fyrir því, að hér er um mikið vandamál að ræða, sem þarf að gera einhver meiri háttar átök til að leysa.

Það virðist því vera skynsamlegt að tengja þetta saman, að endurskoða gildandi lagaákvæði um fjáröflun, bæði hafnarbótasjóð, ákvæði hafnarlaga um skiptingu kostnaðar í sambandi við byggingu hafna, og jafnframt athugaðar aðrar leiðir til fjáröflunar, lántökur eða annað, sem þar kynni að koma til greina. Kem ég þá að enn einum þætti málsins, en það er skipting kostnaðar við hafnargerðir milli ríkis og sveitarfélaga.

Eins og núgildandi lög mæla fyrir um, eru til tvenns konar reglur um þetta, eða raunar þó þrenns konar, því að um landshafnir gilda sérákvæði. En varðandi aðrar hafnir gildir það, að annaðhvort greiðir ríkissjóður helming kostnaðar, ef um minni háttar hafnargerðir er að ræða, eða þá 2/5 kostnaðar.

Þennan ríkissjóðshluta hefur þó ekki verið hægt að greiða að öllu leyti, þannig að í árslok 1957 mun samkvæmt áætlun vitamálaskrifstofunnar hafa verið vangoldinn ríkissjóðshluti um 13.5 millj. kr., og á árinu 1958 eru uppi áætlanir um yfir 50 millj. kr. framkvæmdir í hafnargerðum, og mundi ríkissjóðshluti þeirra framkvæmda vera rúm 21 millj. kr. Fjárveiting er 10.7 millj., auk 2 millj. kr. til hafnarbótasjóðs, sem að vísu mun vera, að ég hygg, öllu eytt fyrir fram, þannig að sjáanlegt er, að enn mun halla á ríkissjóð á þessu ári, ef framkvæmdir verða jafnmiklar og sveitarfélögin gera ráð fyrir.

Nú þekkja það allir, sem við lánamál hafa þurft að fást, bæði í sambandi við hafnir og aðrar framkvæmdir sveitarfélaganna, að eins og nú standa sakir, er svo að segja ógerlegt að fá nein slík lán, og það hefur því verið mjög miklum erfiðleikum bundið fyrir sveitarfélögin að fá lán til þess að greiða sinn hluta af hafnargerðarkostnaði, hvað þá þegar þau auk þess hafa orðið að eiga inni hjá ríkissjóði allmiklar upphæðir og sum sveitarfélögin mjög verulegar upphæðir. Það liggur því í augum uppi, að ef ekki lagast um lánsfjáröflun, hljóta þessar framkvæmdir að verulegu leyti að stöðvast nú á næstunni, nema sérstakar ráðstafanir verði gerðar til fjáröflunar. En það er ekki aðeins þetta atriði, hvort sveitarfélögin geta aflað lána til þess að standa straum af sínum hluta kostnaðar og ríkið lagt fram sinn hluta nokkurn veginn jöfnum höndum, heldur er annað vandamál við að glíma, og það er skipting kostnaðarins milli sveitarfélaga og ríkissjóðs, því að það hefur komið í ljós, að með hverju ári sem líður verður þess meira vart, að sveitarfélögin geti ekki greitt afborganir og vexti af lánum, sem tekin eru vegna hafnargerðar, hafnarsjóðirnir á viðkomandi

stöðum hafa mjög litlar tekjur víða og eru þess alls ófærir að standa undir stofnkostnaði hafnargerðanna, og niðurstaðan hefur því orðið sú, að á ríkissjóð hafa fallið ábyrgðarlánin vegna hafnanna. Það er að sjálfsögðu mjög óheilbrigð þróun, þó að þetta muni í flestum tilfellum hafa verið óhjákvæmilegt vegna bágborins efnahags viðkomandi sveitarfélaga, að ríkið greiddi þessi ábyrgðarlán. En þá hygg ég, að við hljótum öll að vera sammála um, að það er mjög slæmt, þegar svo þarf að fara, og hætt við því, að allt aðhald minnki og þau sveitarfélög, sem enn standa í skilum, muni þá slaka á klónni og ekki hirða svo mjög um það að greiða sín ábyrgðarlán, þegar það er í stórum stíl farið að tíðkast, að aðrir greiði þau ekki.

Af þessum sökum hygg ég, að það sé óumflýjanlegt að taka til athugunar með hliðsjón af kostnaðaráætlun fyrir viðkomandi hafnargerðir, hvaða möguleikar eru fyrir hendi til þess, að viðkomandi sveitarfélög geti staðið straum af stofnkostnaði við hafnargerðirnar, þ.e.a.s. lántökum til þeirra, afborgunum og vöxtum af þeim, því að ef það liggur í augum uppi, að þess er enginn kostur, að viðkomandi sveitarfélög geti staðið undir þeim hafnarmannvirkjum, sem óumflýjanleg eru talin á þeim stað, þá er auðvitað ekki annað fyrir hendi, en að hafa skiptingu kostnaðarins á annan veg, þannig að einhver von sé til þess, að sveitarfélögin fái undir þeim kostnaði staðið. Mér sýnist, að það sé miklum mun heilbrigðara, að ríkið leggi þegar fram stærri hluta af kostnaðinum, heldur en að hafa þá aðferð að láta ábyrgðarlánin síðar falla á ríkissjóðinn, þannig að niðurstaðan verði hin sama.

Þetta atriði tel ég einnig að sé brýn nauðsyn til að athuga og endurskoða, þegar fyrir liggur áætlun um það, hvað hafnarframkvæmdir á hverjum stað muni kosta og hvaða horfur eru á tekjum slíkra hafnargerða.

Í landinu eru nú til tvær svokallaðar landshafnir, þ.e.a.s. á Rifi og í Keflavík og Njarðvíkum, og þær landshafnir eru algerlega kostaðar af ríkinu, og það er að sjálfsögðu ekkert nema gott um þessar hafnargerðir að segja, þær eru báðar mjög nauðsynlegar. En hins vegar hygg ég þó, að það hljóti að vera mjög mikið álitamál, hvort þessi landshafnarákvæði eigi að gilda eingöngu um þessar tvær hafnir eða hvort þau eiga að útfærast meira, þannig að t.d. ein slík höfn verði í hverjum landsfjórðungi, því að mér sýnist, að þessi ákvæði, eins og þau eru, séu nokkuð af handahófi, og það er ekki að undra, þó að ýmsum stöðum þyki sem svo, að það sé nokkuð gert hátt undir höfði þeim aðilum, sem eiga að fá allan kostnað greiddan við hafnargerðir, en öðrum stöðum er ætlað að standa undir allverulegum hluta af hafnargerðarkostnaði hjá sér.

Enginn má skilja orð mín svo, að ég sé með þessu að hafa á móti því, að þessar tvær hafnir njóti þessara hlunninda. Þetta eru mjög efnilegir útgerðarstaðir og full ástæða til að hlynna að þeim. En við þekkjum öll, að samanburður er alltaf dálítið hættulegur, þegar um viss fríðindi sem þessi er að ræða, og ég hygg, að væri a.m.k. full ástæða til að taka þessi mál til athugunar og hvort komið gæti til greina að haga þessu á einhvern annan hátt.

Ég held, að ég hafi drepið á helztu atriðin, sem ég tel máli skipta og að skoðun okkar flm. þurfti að taka til athugunar í sambandi við hafnargerðir í landinu.

Það er álit okkar, að hafnarmálin séu svo mikil hagsmunamál þjóðarinnar, enda eðlilegt, þar sem þjóðin að verulegu leyti á afkomu sína undir útvegi, að það sé lífsnauðsyn að reyna að koma þeim málum á næstu árum í það horf, að hvarvetna þar, sem efnilegt er um útgerð, verði slík hafnarskilyrði, að hægt sé á viðunandi hátt að stunda útgerð frá þessum stöðum.

Ég hygg, að allir hv. þm. séu okkur sama sinnis um þetta efni, og ég vildi því mega vænta þess, að þessi till. hlyti góðar undirtektir, því þó að ekki sé með henni lagður grundvöllur að neinni nýrri fjárútvegun á þessu stigi málsins, ætti hún þó að geta stuðlað að því, að þessi mál væru tekin til athugunar á breiðum grundvelli og reynt að finna leiðir, sem orðið gætu til þess að hrinda málum það áleiðis, að við væri hægt að una.

Ég vil svo leyfa mér að óska eftir því, að að lokinni þessari umr. verði till. vísað til hv. fjárveitinganefndar.