16.04.1958
Sameinað þing: 39. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í D-deild Alþingistíðinda. (2289)
155. mál, lífeyrisgreiðslur
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Till. sú, sem fjvn. flytur hér á þskj. 318, er í rauninni afgreiðsla n. á tveim till., sem fyrir hana hafa verið lagðar, þ.e.a.s. 55. máli Alþingis, sem er till. til þál, um hækkun elli- og örorkulífeyris, flutt af Jóhönnu Egilsdóttur, en í þeirri till. er gert ráð fyrir, að Alþingi feli ríkisstj. að láta fram fara endurskoðun á lögum um almannatryggingar með það fyrir augum, að elli- og örorkulífeyrir verði hækkaður um allt að 50%, einnig að breytt verði til um lífeyrisgreiðslur til hjóna, þannig að þær verði framvegis jafnar og lífeyrisgreiðslur til tveggja einstaklinga, Hin till., sem til n, hafði verið vísað um þetta efni, er 59. mál Alþingis, till. til þál. um endurskoðun á ákvæðum um barnalífeyri, sem þrjár konur, sem þá sátu á Alþingi, fluttu, þ. e. Ragnhildur Helgadóttir, Jóhanna Egilsdóttir og Adda Bára Sigfúsdóttir.
Nefndin hefur haft efni þessara tillagna til athugunar og leitað um það umsagnar Tryggingastofnunar ríkisins. Tryggingastofnunin hefur gefið n. greinargóða sundurliðun á því, hvern kostnað það mundi hafa í för með sér að hrinda í framkvæmd till. um elli- og örorkulífeyrishækkunina, og kemur í ljós, að það mál er nokkru margþættara, en í fljótu bragði kynni að virðast. Í fyrsta lagi kæmi þar til hækkunin sjálf á elli- og örorkulífeyri, en í öðru lagi hefði sú hækkun nokkrar óbeinar afleiðingar, sökum þess að aðrar tekjur lífeyrisþega eru miðaðar við það, hversu háar greiðslur lífeyrisins eru, þannig að viðkomandi lífeyrisþegi má jafnan hafa jafnmiklar tekjur af atvinnu sinni eða eignum eins og lífeyristekjunum nemur, án þess að skerðingum valdi. Það þýðir, að skerðingar mundu minnka, ef till. yrði samþykkt, og mundi það valda Tryggingastofnuninni nokkrum útgjöldum. Enn fremur liggur fyrir, að mæðralaun og ekkjulífeyrir eru miðuð við elli- og örorkulífeyrisgreiðslurnar og mundu að sjálfsögðu verða að fylgja breyttum lífeyrisgreiðslum og valda nokkurri hækkun. Og þá kemur það atriði einnig til hækkunar á gjöldum Tryggingastofnunarinnar, ef ákveðið væri að greiða hjónum 200% af einstaklingslífeyri, en ekki 160% eins og nú tíðkast. Tryggingastofnunin hefur reiknað út, að þessar breytingar mundu alls valda 58.2 millj. kr. auknum útgjöldum, ef samþykktar yrðu.
Þetta hefur nefndin að sjálfsögðu staðnæmzt við. Enda þótt upphæðin mundi ekki öll falla á ríkissjóð, heldur á nokkra aðra aðila, er hér um það verulega upphæð að ræða, að nefndin hefur nú ekki treyst sér til þess að mæla með till. til samþykktar sem slíkri, enda þótt hún vilji sýna málinu, endurskoðun lífeyrisgreiðslnanna á ellilífeyri og örorkulífeyri, fullan skilning, og tel ég æskilegt, að það mál verði athugað með hækkun fyrir augum.
Á hinn bóginn hefur nefndin ekki fengið sams konar yfirlit frá Tryggingastofnuninni um það, hverjum hækkunum á útgjöldum trygginganna barnalífeyristillagan muni valda. En það liggur fyrir, að samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Tryggingastofnunar ríkisins á greiðslum barnalífeyris árið 1957 námu heildargreiðslurnar í þessari grein með verðlagsupphæðum sem hér segir: Óendurkræfur barnalífeyrir nam 8 millj, 415 þús. kr. rúml., en óendurkræfur barnalífeyrir nam 13 millj. og 25 þús. kr. rúmlega.
Barnalífeyrisgreiðslur þær, sem Tryggingastofnun ríkisins hefur innt af hendi á árinu 1957, hafa því numið tæplega 211/2 millj. kr. 50% hækkun á þær greiðslur mundi þýða um það bil 10.7 millj. kr. í auknar lífeyrisgreiðslur. Nú skal það tekið fram, að á Tryggingastofnuninni sjálfri mundi að vísu ekki lenda allur sá greiðsluauki, heldur mundu beint á henni lenda 4.2 millj. kr., sem er 50% hækkun á óendurkræfa barnalífeyrinum, en hinn endurkræfa barnalífeyri eiga barnsfeður að greiða. En raunin mun þó sú, að nokkur hluti af þeim greiðslum lendir á viðkomandi sveitarfélögum og að nokkru á ríkissjóði sjálfum, þó að ekki hafi ég sundurliðun á því, með hverjum hætti sú skipting er.
Ég hef lýst þeirri afstöðu fjvn., að hún vill taka undir það, að endurskoðun sé látin fara fram á þessu efni með það fyrir augum, hvort hægt muni að hækka greiðslurnar eða bæta hlut lífeyrisþeganna, sem hér er um að ræða, en telur ekki vert á þessu stigi að binda tillöguflutninginn eða samþykkt þá, sem Alþingi gerði, við ákveðnar upphæðir, við ákveðna prósentutölu í hækkun, heldur verði leitað eftir því án fyrirframákvarðana um það, hverjar hækkanir verði taldar framkvæmanlegar, og þannig er til orðin till., sem hér liggur fyrir á þskj. 318, og leggur nefndin til, að um það verði samþykkt till. eins og þar segir:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fram fara athugun á ákvæðum almannatryggingalaga um lífeyrisgreiðslur með það fyrir augum að bæta hlut lífeyrisþeganna. Verði sérstaklega athugað, hvort unnt sé 1) að hækka grunnupphæðir elli-, örorku- og barnalífeyris; 2) að heimila allt að tvöföldun barnalífeyris vegna munaðarlausra barna; 3) að greiða að einhverju leyti lífeyri með barni látinnar móður; 4) að jafna að einhverju eða öllu leyti aðstöðu hjóna og einstaklinga gagnvart tryggingalögunum“.