26.02.1958
Sameinað þing: 30. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (2297)
77. mál, rafveitulína frá Hvolsvelli til Vestmannaeyja
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Þessa till., sem við hv. 2. landsk. flytjum sameiginlega, flytjum við fyrir áeggjan og jafnvel áskorun bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Það er eins og kunnugt er, að heimild til þess að láta greinar af aðalorkustrengnum austur um sveitir ná til Vestmannaeyja, var samþ. á þingi á árinu 1952. Þá var samþykkt að heimila ríkisstj. að fela rafmagnsveitum ríkisins að leggja aðalorkuveitu úr Landeyjum til Vestmannaeyja, og var um leið ríkisstj. heimiluð lántaka í þessu skyni.
Það er nú þó nokkur tími síðan þetta var samþ., og er nú að vísu ekki þetta mál að fullu komið í framkvæmd. En þó hefur mikill undirbúningur verið gerður, sérstaklega hvað snertir rannsókn á sjávarbotninum á fyrirhuguðu svæði, þar sem strengurinn ætti að liggja um, og hefur sú rannsókn, að því er ég bezt veit, verið framkvæmd undir umsjón vitamálastjórnarinnar eða landhelgisgæzlunnar, — ég veit ekki vel, hvernig á að skilgreina það, en tel þó líklegra, að það hafi verið vitamálaskrifstofan, sem þá hafði með það að gera.
Hún var undir forustu núverandi forstjóra landhelgisgæzlunnar. Þessi tilraun gaf góðan árangur og jákvæða niðurstöðu um það, að finna mætti færan botn úr Eyjafjalla- eða Landeyjasandi og út til Vestmannaeyja, þannig að vel mætti koma því í framkvæmd hvað það snerti að koma þessari orkulínu á.
Í 10 ára áætlun rafmagnsveitna ríkisins er ráð fyrir því gert, að Vestmannaeyjaveitunni verði komið á, á árinu 1960. Það er að vísu að margra manna áliti, sérstaklega í Vestmannaeyjum, nokkuð langur biðtími og lengri, en æskilegt væri fyrir jafnþýðingarmikla framleiðslustöð eins og Vestmannaeyjar eru, og ekki hvað sízt er það von, að þetta þyki langt, þar sem vitað er, að Suðurnesin, sem hafa svipaða framleiðsluaðstöðu og Vestmannaeyjar, en þó ekki eins merkilega, eru þegar búin að fá samband við aðalorkuveitu ríkisins.
Nú er eins og kunnugt er, að fyrir utan botnrannsóknina sjálfa þarf að undirbúa, sennilega bæði á landi og í Eyjum, ýmislegt, sem miðar að því, að þetta gæti komizt í framkvæmd. Tengingin yrði sennilega við Hvolsvöllinn eða á þann hátt, og er auðvitað á landi auðfarin leið austur í Landeyjar, þar sem hentugt þykir að leggja þennan streng út til Eyja.
Nú er talið ákveðið, að hin nýja Sogsvirkjun, um þá gömlu er varla að ræða lengur í þessu skyni, hafi afgangsorku, en hin nýja Sogsvirkjun er talin verða til seint á árinu 1959. Er það þess vegna eindregin ósk okkar hv. 2. landsk. þm., sem er meðflutningsmaður með mér að þessari till., að nú þegar verði hafizt handa með þann undirbúning á öllum greinum, sem á vantar, þar með talin kaup á sæstreng og bygging spennustöðva o.s.frv. og fleira, sem ég kann nú ekki að nefna, sem er „tekniskt“ atriði í þessum málum, — að þessum undirbúningi sé svo hraðað, að þegar orkan er til, megi koma Vestmannaeyjum í samband þá þegar, en það sé ekki beðið með kaup á sæstreng o.fl. þangað til orkan í Efra Soginu er komin í veiturnar, því að þá getur vel farið svo, að ef Vestmannaeyjaleiðslan væri ekki til í tæka tíð, þá yrði komið eitthvað nýtt upp á teningnum og jafnvel orka Efra Sogsins væri þá ekki talin nóg til þess að fullnægja þörfum þessa byggðarlags.
Á síðasta þingi vorum við líka að hugsa mikið um þetta mál, mér var úthlutað af okkur tveimur því hlutverki að tala við hæstv. raforkumálaráðh. um þessi mál, sem ég held að sé hæstv. forsrh., og ég gerði tilraunir til þess í nokkur skipti að vekja máls á þessu við hæstv. forsrh., aðallega til að herða á því, að kaup á nauðsynlegum sæstreng færu saman við kaup á öðrum strengjaspottum, sem þurfti að kaupa til landsins, allt með það fyrir augum, að Vestmannaeyjarafveitan gæti orðið tilbúin í tæka tíð. Hæstv, ráðh, tók þessu máli ekki fráleitt, en þó nokkuð á víð og dreif, þannig að mér gekk illa að festa hendur á nokkru vissu atriði eða loforði í því efni. Á hinn bóginn hafa Vestmanneyingar, bæði ég og aðrir, verið þráfaldlega í sambandi við rafveitu ríkisins og fylgjumst nokkurn veginn með því, hvað gerist á þessu sviði. Og eins og málið horfir núna við, þá vitum við það, að þess er kostur að kaupa strenginn og þennan streng eins og marga aðra, sem þarf að brúka. Svo er það upplýst, að hæstv. ríkisstj. hefur fengið erlent lán, sem m.a. á að nota til að ýta áfram rafveitukerfi landsmanna, og þar virðist okkur flm. þessarar till., að Vestmannaeyjar komi til greina, ekki síðar, heldur fyrr, en mörg önnur héruð, sem um er talað.
Það er öllum þingheimi vel ljóst, hver feikilegur atvinnurekstur og gjaldeyrisöflun fer fram í Vestmannaeyjum, og ég man, að það birtist í Tímanum, blaði framsóknarmanna, ritgerð, sem framsóknarmaður, sem var bæjarfulltrúi og er bæjarfulltrúi í Eyjum, ritaði í þann blaðakost Framsfl. í Vestmannaeyjum, sem hann hefur aðgang að. En það er eins og vitað er, að Framsóknar-blaðakosturinn í Vestmannaeyjum er í höndum tveggja flokksmanna Framsfl., sem allir vita hvernig á stendur. Sá blaðakosturinn, sem Sveinn Guðmundsson bæjarfulltrúi ritaði í þessa grein um framleiðsluna í Vestmannaeyjum, hefur fylgt frekar lýðræðisflokkunum að málum, a.m.k. þar í Eyjum, en hinn hneigðist frekar að kommúnistum, og þar er það ólastað af öllum, sem til þekkja. Þessi merki bæjarfulltrúi framsóknarmanna í Vestmannaeyjum skrifaði sem sagt mjög athyglisverða grein og lýsti því með tölum og magni, hvað Vestmanneyingar legðu fram af gjaldeyrisöflun landsmanna. Og það var hvorki meira né mínna samkvæmt hans rannsókn en 100 millj. kr. árið 1956, sem gjaldeyrisöflun Vestmanneyinga hafði numið. Ætla ég, að það sé meira en tugur prósenta af heildargjaldeyrisöflun landsmanna. Þessi grein var svo síðan tekin upp, að ég hygg orðrétt, í Tímanum núna nokkru fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, og var mér ánægja að sjá það, að jafnvel í því blaði var því líka gaumur gefinn, hvað Vestmanneyingar legðu af mörkum í þessu skyni. Það vita allir, að flotinn hefur farið þar sívaxandi s.l. ár og er einna stærstur núna, og þar með vitaskuld er kallað eftir meiri raforku til ýmissa hluta, bæði innan heimilis og utan, heldur en áður var, svo að ég tel líklegt, að hv. Framsfl. mundi vilja styðja þessa tili. um það að láta ekki Vestmanneyinga vera of lengi á biðlista hvað rafveitu ríkisins snertir, ekki sízt þegar tvö flokksblöð hans hafa tekið sig fram um það að lýsa því með skýrum tölum, hversu geysimikið framleiðslustarf er haft með höndum í Vestmannaeyjum og hversu mikið Vestmanneyingar leggja til gjaldeyrisöflunar þjóðarinnar.
Eins og ég minntist á áður, er það vitað, að ríkisstj. hefur tekið lán, — kannske fleiri en eitt, — sem lýst hefur verið opinberlega að yrðu að hluta til brúkuð til þess að efla raforkuframleiðslu landsmanna. Og er það í samræmi við upphaflegan vilja Alþ., þegar samþ. var þetta atriði gagnvart Vestmanneyingum á þinginu 1952. Það styður þá líka að því, að sinnt sé þessu áhugamáli Vestmanneyinga, sem við tveir hv. þm. höfum leyft okkur hér að bera fram.
Nú hafa, sé ég á þskj., meðan málið hefur verið bíðandi eftir að komast á dagskrá, ýmsir hv. framtaksmenn hv. Framsfl. tekið sig saman um að hnýta aftan í þetta brtt. Ég vil ekki gera að umtalsefni, hver nauðsyn hefur rekið eftir í aðalatriðum, eða gera till. efnislega að umtalsefni, en hitt vita allir, sem á þingi sitja og hafa setið undanfarið, og þeir bezt, sem lengst hafa hér setið, að það þykir aldrei vera til að greiða fyrir máli að vera að hengja aftan í það brtt, svo að segja endalaust. Hv. þm. N-Þ. (GíslG) hefur hér brtt., hv. þm. Barð. (SE) hefur hér líka till. í þessu efni, og svo er hnýtt aftan í hans till., að ég held, till. hv. þm. Dal. (ÁB), sem teygir hana og vill ganga enn þá lengra í þessu efni.
Þessir hv. þm. gera náttúrlega grein fyrir sínu máli. En ég hefði haldið, að þeir hefðu bæði þekkingu og þrek til þess að bera fram sín áhugamál á Alþingi án þess að brjála málefni annarra héraða, og mér sýnist satt að segja vera seilzt nokkuð langt um hurð til lokunnar, þegar málefni, sem snertir Vestmannaeyjar sérstaklega, á að fá aftaníhnýtingu af áhugamálum Þingeyjarsýslu eða landshluta norðanlands.
Um þessa till. er, eins og vitað er, af Alþingi ákveðin ein umr., og vildi ég þess vegna mælast til þess við hæstv. forseta, að þessari umr. yrði frestað og málið fengi athugun í þeirri n., sem sjálfsagt er, hv. fjvn., og gæti svo komizt á dagskrá fyrir þinglok, afgreitt af þeirri hv. nefnd.
Ég vonast til, að hv. forseti hafi ekki verið svo mikið truflaður, að hann hafi mátt nema mitt mál. (Forseti: Vill hv. þm. endurtaka?) Jú, ég skal endurtaka, að ég sé það, að það var ákveðin ein umr. hér af hv. Alþingi, og mín till. er sú, að umr. verði frestað um till., þegar málið er búið að vera hér á dagskrá, og henni vísað til hv. fjvn., sem ég vona að geti þá afgr. hana endanlega til Alþingis, áður en að þinglokum kemur.
Ég orðlengi svo ekki um þetta frekar. Þessi till. er fyrir eitthvert þrekmesta, afkastamesta framleiðslupláss landsins, og ég efast ekki um, að hv. Alþingi muni nú eins og oft áður fyrr sinna áhugamálum Vestmannaeyja, ekki síður þar sem hliðstæðir bæir og atvinnupláss eru fyrir löngu búnir að fá sína fullnægju í því efni, sem hér er farið fram á fyrir Vestmannaeyjar.