16.04.1958
Sameinað þing: 39. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (2308)
77. mál, rafveitulína frá Hvolsvelli til Vestmannaeyja
Forseti (EmJ):
Út af tilmælum hv. þm. N-Þ., sem studd voru af hv, þm. Barð., um að afgreiðslu málsins verði frestað, skal ég taka fram, að það er nú oft orðið við slíkum tilmælum, og ég hefði gjarnan viljað verða það einnig í þessu tilfelli. En gegn andmælum hv. aðalflutningsmanns og að nokkru leyti einnig a.m.k. ósk frá frsm. fjvn. um, að málið verði látið ganga fram, og enn fremur með hliðsjón af því, að brtt., sem taldar eiga að vera ástæða til frestunarinnar, eru um annað efni, að vísu skylt, en annað efni, þá sé ég ekki annað fært, en láta afgreiðslu málsins fara nú fram, og er þá umr. lokið og verður gengið til atkvæða.