05.03.1958
Sameinað þing: 32. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (2313)
128. mál, saga Íslands í tveim heimsstyrjöldum
Flm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Í þáltill. á þskj. 259 hef ég lagt til, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að skipuleggja vandlega söfnun á hvers konar helmildum, sem geymdar kunna að vera erlendis, til sögu Íslands á heimsstyrjaldarárunum 1939–45.
Eins og alkunnugt er, gerðust hér miklir viðburðir á þessum árum. Einangrun Íslands var skyndilega rofin, landið dróst inn í hernaðarátök í heimsstyrjöld. Segja má, að það hafi verið í fremstu víglínu í tveim miklum orrustum, orrustunni um Atlantshafið og orrustunni um flutning birgða til Sovétríkjanna um Norður-Atlantshaf. Auk þess var hér mikil samgönguleið og þýðing landsins margvísleg á annan hátt.
Þeir menn, sem stjórnuðu hernaðaraðgerðum hjá báðum aðilum svo og öllum þeim aðgerðum, sem að slíku stuðluðu, höfðu ekki fyrir sið á styrjaldarárunum að segja mikið frá því, sem þeir voru að gera. Þess vegna er svo enn í dag, tíu árum eftir að þessari styrjöld lauk, að Íslendingar vita í raun og veru sáralítið um það, hvað gerðist á þessu sviði í landinu, umhverfis það eða varðandi okkar þjóð. Enn þá hafa t.d. ekki fengizt öruggar upplýsingar um það, hvort Þjóðverjar ætluðu sér að ráðast inn í Ísland eða ekki. Þó má ganga út frá því sem vísu, að hægt sé að fletta þessu upp í skjölum þýzku hernaðaryfirvaldanna og fá um það örugga vitneskju.
Fjöldamargt slíkt mætti nefna. Og ég hygg, að það séu tvær ástæður fyrir því, að Íslendingar ættu að safna slíkum heimildum, áður en þær glatast, og flytja þær hingað heim. Önnur ástæðan er hinn forni söguáhugi Íslendinga. Við viljum vita marga hluti, ekki sízt það, sem varðar okkar land og okkur sjálfa. Og í öðru lagi hygg ég, að það geti orðið okkur nokkur fróðleikur varðandi aðstöðu okkar og okkar lands í þeim nútímaheimi, sem við lifum í, ef við gerðum okkur fullkomlega grein fyrir því, hvað raunverulega gerðist viðkomandi landi okkar á styrjaldarárunum.
Mér er kunnugt um það, að flestir aðilar, sem þarna komu við sögu hjá báðum styrjaldaraðilum, gerðu mikið til þess að halda saman heimildum. Her, floti og flugher beggja styrjaldaraðila eða flestra þjóða, hvorum megin sem þær voru, mun hafa haft sína eigin sagnfræðinga, sem ekkert gerðu annað en safna gögnum að sögu þess, sem var að gerast. Þá höfðu þessir aðilar mikinn fjölda af ljósmyndurum, sem tóku kvikmyndir og ljósmyndir af öllu, sem þeir gátu. Þess vegna er örugglega til geysilega mikið af frumheimildum hjá ríkisstjórnum margra landa, sérstaklega hjá Bandaríkjamönnum og Bretum, en ég hygg, að flest skjöl Þjóðverja séu nú niður komin hjá þessum tveimur þjóðum að auki.
Fyrr á tímum ríkti mikil leynd yfir ýmsum slíkum skjölum, en það hefur orðið veruleg breyting í þeim efnum. Flestar þjóðir eru nú fúsar til þess að gera margvíslegar heimildir og skjöl heyrinkunn löngu fyrr, en áður var. En hvort sem hægt er að fá allt strax eða ekki, þá tel ég, að það sé menningarhlutverk fyrir Íslendinga að hefja þegar söfnun þessara heimilda, flytja þær hingað heim, annaðhvort frumheimildir eða afrit þeirra, þannig að þær séu hér til, til þess að vinna úr og gera það úr, sem okkur sýnist.
Hér er að sjálfsögðu um áskorun á ríkisstj. að ræða í tillöguforminu. Ég hefði talið eðlilegast, að Háskóli Íslands annaðist þetta hlutverk, en því miður virðist vera ákaflega lítill áhugi í þeirri göfugu stofnun á samtíðarsögu, og ég sé ekki, að háskólinn hafi til þess neina aðstöðu eða menn að gegna þessu hlutverki. Hins vegar hef ég ástæðu til að ætla, að menntamálaráð, sem nýlega er búið að gera mikið fyrir á Alþ., ætti að geta varið til þess einhverjum fjármunum af þeim tekjum, sem það þegar hefur, og væri því ekki óeðlilegt, að því yrði fengið það hlutverk að skipuleggja þessa söfnun, sem að sjálfsögðu tekur mikinn tíma, en þarf þó að gerast skipulega og ýtarlega.
Ég vil að lokum leggja til, að till. verði vísað til allshn.