30.04.1958
Sameinað þing: 42. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í D-deild Alþingistíðinda. (2355)
159. mál, lán til kaupa á vélskipinu Vico
Eggert Þorsteinsson:
Herra forseti. Fyrir hönd þm. Ak. og í fjarveru hans leyfi ég mér að fylgja þessu máli úr hlaði með nokkrum orðum eða því nál., sem útbýtt hefur verið á þskj. 413.
Þáltill. sú, sem hér um ræðir, á þskj. 338, er flutt af ríkisstj. og fjallar um heimild henni til handa til þess að ábyrgjast allt að 60% af kaupverði vélskipsins „Vico“ frá Noregi, þó eigi hærri upphæð en 697 þús. norskra króna, gegn fyrsta veðrétti í skipinu og öðrum tryggingum, sem ríkisstj. metur gildar.
Hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir tillögunni við fyrri umr., og var málinu síðan vísað til fjvn. Efni máls þessa er í skemmstu máli það, að Jón Kr. Gunnarsson útgerðarmaður í Hafnarfirði hefur fengið gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir skipi þessu, sem er stálskip, 193 brúttólestir að stærð, smíðað árið 1956. Kaupverð skipsins er norskar kr. 1 millj. 162 þús., og leggur kaupandi fram 40 hundraðshluta af því, en 60 hundraðshlutar eru fengnir að láni í Noregi, og á lánið að greiðast á árunum 1959–64. Er hér um að ræða, hvort veita skuli ríkisábyrgð fyrir láni þessu.
Fiskveiðasjóður hefur ákveðið að lána 2 millj. kr. til kaupa á skipinu, og gengur meginhlutinn, eða 1,8 millj. kr., af þeirri upphæð til þess að greiða afborganir og vexti af norska láninu, jafnóðum og gjaldkræft verður á árabilinu 1959–64, eins og áður er frá skýrt.
Lánið, sem ríkisábyrgðin mundi ná til, er auk þess tryggt með 1. veðrétti í skipinu, í öðru lagi tryggt með fasteignaveði, þ.e. 2. veðrétti í fiskverkunarstöð í Hafnarfirði með húsum, vélum og tækjum og öðrum mannvirkjum, og í þriðja lagi með sjálfskuldarábyrgð Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Skipið mun þegar vera komið til landsins og ber nú nafnið Haförn GK 321.
Fjvn. hefur kynnt sér mál þetta eftir föngum og telur að athuguðu máli, að ríkissjóður sé tryggður fyrir hugsanlegum skakkaföllum, enda skiptir þar höfuðmáli, að lánið verður greitt með fiskveiðasjóðsláninu. Nefndin leggur því einróma til, að þáltill. verði samþykkt, svo sem sjá má á nál. á þskj. 413.