30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2427)
180. mál, vegakerfi á Þingvöllum
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Því hefur verið hreyft hér á undanförnum þingum, að breyta þyrfti þjóðvegakerfinu á Þingvöllum, þannig að þjóðvegurinn hætti að liggja um Almannagjá, en yrði lagður annars staðar. Rökin fyrir þessu eru fyrst og fremst tvenn: annars vegar það, að sú mikla umferð, sem um þennan veg er að sumarlagi, hefur mjög truflandi áhrif og gerir næðislaust á þessum fornhelga stað, en hin ástæðan er sú, að sem samgönguæð er þetta mjög óheppilegt vegarstæði, og hefur það oftsinnis sýnt sig að vetrinum, að þá er Almannagjá mjög snjóþung, og á öllum Þingvallaveginum milli byggðanna austan fjalls og byggðanna hér við Faxaflóa er Almannagjá stundum eini staðurinn af veginum, sem er ófær bifreiðum.
Þessi till., sem hér er til umr., hefur um skeið verið til athugunar hjá fjvn., og er fjvn. sammála um það, að breyta beri vegakerfinu á þessum slóðum. Í samráði við vegamálastjóra hafa verið gerðir uppdrættir af því, hvernig hinn nýi vegur ætti að liggja, sá sem leysti Almannagjárveginn af hólmi, en það er fyrirhugað, að hann liggi út af þjóðveginum rétt hjá Brúsastöðum, en komi niður á vellina nokkuð innarlega eða nálægt Leirulæk. Það hefur verið lauslega áætlað hjá vegamálaskrifstofunni, að vegagerð þessi mundi kosta um 900 þús. kr., en auk þess þyrfti að brúa Öxará, og mundi sú brú kosta nálægt hálfri milljón króna.
Á yfirstandandi ári er engin sérstök fjárveiting á fjárlögum í þessar framkvæmdir. Hins vegar lítur fjvn. svo á, að það megi skoða þennan veg að verulegu leyti sem veg milli byggðarlaga, og kæmi þar af leiðandi til mála að veita til hans fé af benzínskatti þeim, sem annars á að renna til millibyggðavega um þessar slóðir. Nú hafa auk þess nýlega verið samþ. lög, sem gera ráð fyrir dálitið auknum benzínskatti til vegagerðar, og væri ekki fráleitt að ætla, að þessi vegur, svo nauðsynleg sem gerð hans virðist vera, gæti notið þar af einhverra fjárveitinga, Fjvn. hefur gert brtt. við þá till., sem fyrir liggur, og liggur sú brtt. fyrir á þskj. 512 og er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa og hefjast handa — í samráði við vegamálastjóra og Þingvallanefnd — um vegagerð á Þingvöllum, svo fljótt sem auðið er, þannig að unnt verði að hætta allri bilaumferð um Almannagjá.“
Þannig orðaða leggur fjvn. til, að Alþ, samþykki tillöguna.