12.03.1958
Sameinað þing: 33. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í D-deild Alþingistíðinda. (2453)

141. mál, afnám tekjuskatts

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta mál neitt að ráði efnislega. Það má vænta þess, að það fari til n. og verði þá nánar rætt, þegar nefnd skilar áliti, og þá verði aðrir til þess, en ég að ræða um það.

Það er aðeins fsp. nokkur, sem ég vildi leyfa mér að gera til hv. 1. flm. þessarar tillögu og flutningsmannanna hinna.

Tillaga þessi er að vísu aðeins um athugun á máli, — því máli, hvort ekki sé rétt að afnema tekjuskatt með öllu. En gamall málsháttur segir: „Í upphafi skal endirinn skoða“ — og samkv. því fyndist mér nú líklegt, að hv. flutningsmenn hefðu gert sér einhverja grein fyrir því þegar á þessu stigi málsins, hvað ætti að koma í staðinn fyrir tekjuskattinn, ef hann yrði afnuminn.

Hv. 1. flm. vék ofur lítið að þessu, þó að lítið væri, og virtist þar vísa aðallega á óbeina skatta, þ.e.a.s. tolla. En nú vita það allir hv. alþm., að það vantar nú þegar tekjur í ríkissjóðinn, til þess að hann fái staðizt á þessu ári, og enn fremur, að það vantar fé í útflutningssjóðinn. Menn kann að greina á um það, hvað mikið þetta fé sé, enda getur enginn sagt það nákvæmlega fyrir víst, fyrr en reynslan sker úr, en byggja verður á einhverri áætlun, og það verður þetta þing að gera, áður en því lýkur. En þrátt fyrir þetta mun alveg víst, og eru allir hv. þm. sammála um það, að það vantar fé. Þess vegna er ekki nóg að benda á það, að eitthvað megi hækka einhverja tolla eða taka upp einhver ný gjöld í staðinn fyrir tekjuskattinn, heldur þarf fyrst að gera ráð fyrir því, hvað vantar og hvort svo þar á eftir yrði hægt að bæta við tolla.

Þess vegna vildi ég leyfa mér að spyrjast fyrir um það hjá hv. flm., hvað í raun og veru þeir ætla að vísa á í staðinn fyrir tekjuskattinn, og þá með tilliti til þess, að séð verði fyrir þeim tekjum í ríkissjóð og útflutningssjóð, sem nú vantar. Eins og hv. aðalflm. sagði, er tekjuskatturinn ekki ýkja mikill hluti af tekjum ríkissjóðs, eins og þær eru nú, en hann mun þó vera eitthvað um 100 millj., — og 100 millj., þótt ekki sé nú meira, verða ekki fengnar alveg fyrirvaralaust. Og hér er þó, eins og ég hef þegar vikið að, um meira en 100 milljónir að ræða, — ég gæti haldið, að hér væri um allt að 300 millj. að ræða, þegar tillit er tekið til þess, sem nú þegar vantar, og ef ætti svo að afnema tekjuskattinn líka.

Ég efast ekki um það, að það yrði fjöldi manns ákaflega glaður, ef allur tekjuskattur yrði afnuminn, Ég get játað það, að mér þætti ósköp notalegt að sleppa við að greiða tekjuskatt, og svo er sjálfsagt um flesta. En spurningin er aðeins sú, hvort það er hægt að gera á þann hátt, að það kæmi þá léttara niður á almenningi.

Hv. flm. var að tala um, að innheimta tekjuskattsins væri dýr. Ég hygg, að það sé aðallega álagning tekjuskattsins, sem er dýr. Nú þyrftu sveitarfélögin að hafa einhvern grundvöll til að byggja á, þegar þau leggja á útsvörin, eins fyrir því, þó að framtal til tekju- og eignarskatts yrði afnumið. Áður voru það tíundaskýrslurnar, sem sveitarstjórnir höfðu til að byggja á. Nú er tíundin í þeirri gömlu mynd, sem hún var, afnumin og skattframtalið komið í staðinn.

Ég sé ekki, þó að tekjuskattur væri afnuminn, að hægt væri að sleppa við skattaframtöl í einhverri mynd vegna sveitarfélaganna, ef þau ættu áfram að leggja á útsvör. En ef til vill er meiningin sú, að útsvörin verði afnumin líka og einhverjar dularfullar tekjur fundnar sveitarfélögunum til handa, svo að hægt sé að sleppa við þetta alveg. Ég veit ekki, hvort þetta yrði miklu ódýrara, ef á annað borð þarf að hafa skattaframtal vegna sveitarfélaganna, heldur en nú er. Það mætti segja, að eðlilegt væri, að sveitarfélögin ættu sjálf að sjá um það, bæði framtalið og innheimtu útsvaranna að sjálfsögðu, og að því leyti yrði ódýrara fyrir ríkissjóð, en almenning mundi það kosta engu að síður, jafnvel þó að þessum kostnaði væri létt af ríkissjóði.

Það er alveg rétt, að tekjuskatturinn hefur aldrei orðið aðaluppístaða í tekjum ríkissjóðs, og það kann að vera, að hv. Alþfl. hafi ætlazt til á sínum tíma að svo yrði. En ég held, að flm. að tekjuskattslögunum fyrstu hafi ekki ætlazt til þess, en hann var Magnús heitinn Guðmundsson ráðherra. Ég held, að það hafi ekki yfirleitt verið búizt við því, að tekjuskatturinn væri aðaluppistaða að tekjum ríkissjóðs.

Það er vitanlega alveg rétt, sem hv. aðalflm. minntist á, að það eiga sér stað mikil skattsvik, og líka rétt, að launamenn geta yfirleitt ekki svikið skatt. En ég held, að það sé meira gert úr þessu með skattsvikin heldur en raunverulega er, a.m.k. munu það vera allflestar stéttir þjóðfélagsins, sem eiga erfitt með að svíkja skatt, jafnvel þó að þær vildu.

Ég veit það, að víða er svo lítið eftir, hvaða tekjur bændur hafa, það er athugað hvað þeir leggja inn af vörum, og annað slíkt, að ég hef ekki trú á því, að það sé orðið mikið, sem þeir svíkja skatt, og jafnvel, að þeir eigi mjög erfitt með að gera það, þó að þeir vildu, sem ekki mun nú vera mikið um meðal bænda.

Ég efa ekki, að það er rétt, sem hv. flm. var að tala um, að sumir, sem lítinn skatt greiða, lifa ríkmannlegar en þeir, sem greiða kannske háan tekjuskatt, ýmsir þeirra, en ég held, að þetta sé enginn réttur mælikvarði. Sumir menn eru sparsamir, aðrir eru eyðslusamir, og margir til, sem lifa langt yfir efni fram. Menn geta lifað ríkmannlega, að minnsta kosti um tíma, þótt þeir hafi ekki ýkja háar tekjur.

Ég er ekki alveg viss um, að það sé rétt, að tekjulægstu menn þjóðfélagsins séu yfirleitt launamenn. Það skal ég ekki fullyrða um, en ég er ekki alveg viss um, að það sé rétt.

Ég býst við, að það, sem hefur hrundið þessu máli af stað, sé ræða, sem fjmrh. Norðmanna flutti hér í þessum sal í sumar, eins og hv. flm. minntist á. Það er rétt, að fjmrh. Norðmanna talaði um, að það mætti haga svo tollum, að þeir kæmu aðallega á það, sem efnafólkið veitti sér, og minna á hinar daglegu nauðsynjar og þess vegna væru tollar ekki neitt fordæmanlegir. Ég held, að hann hafi ekki sagt eitt orð um það, að það bæri að afnema með öllu tekjuskatt; það hygg ég, að hann hafi ekki orðað.

Ég er ekki að mæla á móti þessari till., þó að ég sé með þessar athugasemdir. Ég er alls ekki við því búinn að tala um þetta mál og ætlaði mér ekki að tala um það efnislega, heldur var það aðeins þessi fsp. Ég ætlast beinlínis til þess, að menn, sem flytja svona stórfellt mál, þó að það sé aðeins um athugun, en ekki ákveðnar till. um framkvæmd, geri sér grein fyrir því, hvaða afleiðingar mundu verða, ef málið gengi fram, og þess vegna hljóta flm, að hafa gert sér einhverja grein fyrir því, hvernig á að afla tekna í staðinn fyrir tekjuskattinn, að viðbættu því, sem nú þegar þarf að afla til ríkissjóðs og útflutningssjóðs.