03.06.1958
Sameinað þing: 52. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (2524)
190. mál, endurkaup seðlabankans
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Hér er um að ræða mjög mikið mál, sem gæti verið afdrifaríkt fyrir fjármála- og atvinnulíf stórs hluta þjóðarinnar. Það eru að sjálfsögðu mjög fráleit vinnubrögð að fleygja svona stórmáli inn rétt fyrir þinglokin, og samkvæmt venjulegum starfsreglum, sem hér hafa þótt góðar og gildar og eðlilegar langa hríð, hefði málið ekki átt að komast lengra. En einmitt vegna þess, að hér er um óvenjulega stórt og áhrifamikið mál að ræða, hefur sú n., sem málinu var vísað til í gær, brugðið skjótt við og þegar haldið tvo fundi til þess að ræða það. Þrátt fyrir mjög vafasöm vinnubrögð af hendi flm. og þess flokks, sem hefur öllum flokkum meira gagnrýnt vinnubrögð annarra hér á þinginu, vill n. leggja sitt til þess, að þáltill. þessi fái afgreiðslu.
Það kom þegar í ljós á fundum n., að enginn nm. treysti sér til að mæla með því, að þessi till. væri samþ. óbreytt. Hún hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að seðlabankinn endurkaupi framleiðslu- og hráefnavíxla iðnaðarfyrirtækja eftir ákveðnum reglum“ o.s.frv.
Í fyrsta lagi er þetta orðalag svo ákveðið, að það mun ekki standast í lögum, að því er mér er tjáð, að ríkisstj, geti beinlínis fyrirskipað seðlabankanum, hvernig hann skuli haga sínum útlánum.
Í öðru lagi er augljóst mál, að það er óraunhæft og ábyrgðarlaust að ætlast til þess, að slík ákvörðun sé tekin með stuttum fyrirvara, vegna þess að hún mundi geta haft gífurleg, truflandi áhrif á allt lánakerfi bankanna.
Ég hygg, að það sé öllum mönnum ljóst, að það liggja engir peningar, sem samkvæmt reglum fjármálakerfisins er hægt að lána út, ónotaðir í bönkunum, og þess vegna væri óhugsandi að framfylgja slíkri þáltill. nema með því að taka lánsfé af öðrum, sem svarar því, sem lána yrði samkvæmt till. Getur hver maður séð, hversu truflandi og varhugaverð áhrifin mundu verða af slíkri ákvörðun.
Þrátt fyrir öll þessi augljósu rök gegn till., eins og hún er fram lögð, voru nm. sammála um, að full ástæða væri til þess, að Alþingi léti í ljós ósk um, að reynt yrði að bæta úr rekstrarfjárskorti iðnaðarins, og nm. var ljóst, að af þrem höfuðatvinnugreinum landsmanna hafa tvær þegar fengið fram nokkuð fasta skipan á rekstrarlánamál sín, en hin þriðja, iðnaðurinn, ekki fengið slíka skipan enn. Þess vegna varð niðurstaða allshn. sú að leggja til, að tillgr. breyttist og orðaðist svo:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að vinna að því, að iðnaðurinn fái aukið rekstrarfé, með því að seðlabankinn endurkaupi framleiðslu- og hráefnavíxla iðnfyrirtækja.“
Sá skilningur, sem ég legg í þessi orð er, að Alþingi óski þess, skori á ríkisstj., að hún leiti þeirra ráða, sem hún getur fundið til þess að auka rekstrarfé iðnaðarins, þ. á m. með því að kanna möguleika á því og vinna að því, ef þeir möguleikar reynast vera fyrir hendi, að iðnaðurinn fái, strax og það er fjárhagslega unnt, einhverja svipaða skipan sinna mála og hinar tvær höfuðatvinnugreinarnar njóta.
Nál. það, sem hér liggur fyrir skriflegt, hljóðar því svo:
„N. hefur rætt mál þetta á tveimur fundum. Nm. er ljóst, að vinna þarf að öflun aukins rekstrarfjár til handa iðnaðinum, en telja þó ókleift að samþ. orðalag till. óbreytt. Því leggja þeir til, að till. verði samþ. með svofelldri breytingu:
Till. orðist svo:
Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að vinna að því, að iðnaðurinn fái aukið rekstrarfé, með því að seðlabankinn endurkaupi framleiðslu- og hráefnavíxla iðnfyrirtækja.“
Undir þetta hafa skrifað allir nm.
Við væntum þess, að eins og til þessa máls er stofnað, leggi n. hér til afgreiðslu á því, sem sé í fullu samræmi við þær aðstæður, sem taka verður tillit til, en viðurkennir þó, að leitast þurfi við að greiða úr þessu vandamáli iðnaðarins, og að Alþingi sýni iðnaðinum með samþykkt þessarar till. fullan skilning í miklu vandamáli, en það sé þó ekki lagt þannig fyrir, að málið sé ekki framkvæmanlegt samkvæmt skynsamlegri fjármálameðferð, heldur á þeim grundvelli, að ríkisstj. vinni að málinu, eftir því sem hún sér sér framast fært og unnt er, miðað við aðstæður í fjármálalífi þjóðarinnar á hverjum tíma.