03.06.1958
Sameinað þing: 52. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í D-deild Alþingistíðinda. (2528)

190. mál, endurkaup seðlabankans

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Í fyrri ræðu minni las ég orði til orðs undirritað nál., sem ég síðan afhenti forseta, og gátu menn þar að sjálfsögðu heyrt, hvað n. lætur formlega og undirskrifað frá sér fara um þetta. Ég ræddi líka um hin ýmsu atriði nál., og er það óumdeilanlegt,

Vera má, að ég kunni ekki eftir stutta þingsetu þinghætti eins vel og menn eins og hv. formaður Sjálfstfl., en hitt er augljóst mál, að það, sem ég sagði í upphafi um flutning till., er frá mér komið. En sagt var það, og ég tek það ekki aftur. Ef það er brot á þinglegum siðum, að ég léti þetta í ljós, um leið og ég flutti álit n., þá stafar það af þekkingarleysi mínu á þeim siðum, og ég er fús til þess að biðja velvirðingar á því.

Hitt er annað mál, að á stuttri setu hér hef ég þegar reynt það, að þegar málefnum, stundum minni málum en þessu, hefur verið skotið inn á þingið á síðustu þingdögum og vísað til þessarar sömu nefndar, eins og kom fyrir, fyrir einu ári, hafa sjálfstæðismenn staðið upp og sagt: Þetta er ekki hægt, það er ekki hægt að ætlast til þess, að þingnefnd afgreiði svona mál á einum eða tveimur dögum. — Og þeir hafa neitað að afgreiða það. Þá stóð ekki á ófögrum orðum um vinnubrögð hjá þeim mönnum, sem væru að flytja á þinginu stórmál, þó ekki nálægt því eins stór mál og þetta, nokkrum dögum fyrir þinglok. Það virðist því fara nákvæmlega eftir, hvað hentar hv. sjálfstæðismönnum hverju sinni, hvað þeim þykir vera viðeigandi vinnubrögð hér í þinginu.

Ég vil taka fram, að það, sem ég sagði um þessi vinnubrögð, ber engan veginn að skilja sem neinar persónulegar vítur til flutningsmanns, því að ég þekki hann að öllu góðu og veit, að hann flytur þetta mál af einlægum áhuga á málefnum iðnaðarins. En ég vil minna á, að það sitja rúmlega tveir tugir sjálfstæðismanna annarra hér á þingi, og ég ætla, að flokkurinn sé ekki svo ósamstarfshæfur, að hann hafi orðið að bíða eftir því eins og sofandi prinsessa, að þessi prins kæmi inn í þingið, áður en flokkurinn gæti hreyft svona stórkostlegu velferðarmáli iðnaðarins.

Ég vil að lokum segja um meðferð þessa máls og flutning þess, að ég hef heyrt í samtölum manna á milli, að margir mér miklu reyndari þingmenn eru mér sammála. Það er ekkert annað, en strákslegur útúrsnúningur hjá hv. þm. G-K. að reyna að halda því fram, að gagnrýni mín á meðferð málsins stafi af fjandskap við það. Mér er vel kunnugt um, að núv. iðnmrh. hefur gert allt, sem hann hefur getað, til þess að afla iðnaðinum meira fjármagns, bæði til þeirrar fjárfestingar, sem staðið hefur yfir, og þar hefur tekizt að afla tuga milljóna, meira að segja til að halda áfram byggingu iðnfyrirtækja, sem voru komin í algert peningaþrot og strand, þegar hv. þm. G-K. yfirgaf ráðherrastólinn. Þar að auki og engu síður, hefur hann unnið að því, eftir því sem hægt hefur verið, að bæta aðstöðu iðnaðarins í lánamálum. Um árangur af þessu er erfitt að segja. Þetta er eilífðarmál, lánamál fyrirtækja, og ég hygg því, að það eitt geti nægt til þess að sýna hug minna flokksmanna, míns flokks, til þessa máls, sem þar hefur verið unnið, Það er ekkert annað en ómaklegir útúrsnúningar að reyna að snúa aths. um meðferð málsins upp í fjandskap við málið og því ekkert mark á slíku takandi.