30.04.1958
Sameinað þing: 42. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (2557)

17. mál, eftirgjöf lána

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég hef nú mjög litlu við að bæta það, sem hv. þm. Borgf. (PO), frsm. minni hl., sagði hér áðan og tók svo vel og skilmerkilega fram.

Ég vil þó í örfáum orðum geta um það, vegna þess að hv. frsm. meiri hl. talaði um það hér áðan, að þessi till. væri of seint fram komin og út í hött, að till. um sama efni var flutt haustið 1956 og hv. frsm., þm. S-Þ., hafði tækifæri til þess snemma á árinu 1957 að samþ. till. í sama formi og þá, sem hér um ræðir nú, ef hann hefði haft vilja til þess, og þá var ekki færð fram sú ástæða, að það væri ekki hægt að samþ. till., vegna þess að fénu hefði verið ráðstafað, heldur kom þá enn greinilegar fram, en nú viljaleysi og skilningsleysi margra manna á því máli, sem hér er um að ræða — viljaleysi og skilningsleysi á því máli að koma réttlátlega til móts við þá menn, sem hér eiga hlut að máli. Og það var gert meira á árinu 1957 í sambandi við þessa till. en það að samþ. hana ekki og ákveða að afhenda féð bjargráðasjóði, — það var samþ. að gefa eftir meiri hlutann af hallærislánunum á Austurlandi. Það var þá, sem tekin var ákvörðun um það að slíta úr samhengi þessi lán, óþurrkalánin á Suðurog Suðvesturlandi og hin svokölluðu harðindalán á Austurlandi.

Það er greinilega getið um það í nál. minni hl., hvernig Stéttarsamband bænda leit á þessi mál í septembermánuði 1955, og getið um tillögur, sem Stéttarsambandið sendi ríkisstj. svo og tillögur Búnaðarfélags Íslands. Það var rætt um þessi mál í ríkisstj., í hvaða formi þau skyldu vera afgreidd. Það voru ýmsir, sem töldu það eðlilegt að fara að till. fundar Stéttarsambands og Búnaðarfélagsins. En það voru líka menn, sem sögðu: Við höfum fundið gott form til hjálpar í harðindum og þegar óáran steðjar að. Það hafa tvívegis verið veitt lán á Austurland vegna harðæris þar, og vegna þess að þá var fundin góð leið og eðlileg leið, þá var einnig eðlilegt að fara þá leið til hjálpar á Suður- og Suðvesturlandi vegna óþurrkanna, sem þar gengu.

Þeir, sem vildu veita aðstoðina í styrkjaformi haustið 1955, voru afvopnaðir, þegar í þetta var vitnað, og það voru fengnir tveir menn, sem voru kunnugir lánamálunum á Austurlandi, þáverandi búnaðarmálastjóri, hv. 1. þm, N-M., og stjórnarráðsfulltrúinn Árni G. Eylands, sem einnig hafði ásamt búnaðarmálastjóra haft talsverð afskipti af lánamálum Austfirðinga. Þessir menn voru útnefndir sem ráðunautar ríkisstj. í þessum málum, og það var farið með aðstoðina á Suður- og Suðvesturlandi á sama hátt og gert hafði verið á Austurlandi, og við því var í sjálfu sér ekkert að segja. Það var margt, sem þeir menn höfðu sér til málsbóta, sem héldu því fram, að það ætti að fara eins með þessi mál hér á Suður- og Suðvesturlandi og á Austurlandi. Þeir vildu ekki gera upp á milli landshluta í þessum efnum, og það mátti segja, að þeir hefðu rök að mæla.

Það var nú svo, að það var farið að á sama hátt og á Austurlandi. Haustið 1956 kynnti ég mér það, hvernig þessum málum var komið, lánamálum Austfirðinga, hinum svokölluðu harðindalánum, á hvaða stigi þau voru í Búnaðarbankanum. Eldri lánin voru þá orðin 5 eða 6 ára, en stór meiri hluti af þessum lánum, að ég segi ekki allflest, voru í vanskilum haustið 1956. Óþurrkalánin á Suður- og Suðvesturlandi voru ekki komin í vanskil þá, og ég hugsaði mér, að það væri skylt að reyna að koma í veg fyrir, að sama ástand skapaðist í sambandi við óþurrkalánin á Suður- og Suðvesturlandi og það, sem gilti um harðindalánin á Austurlandi, það væri eðlilegt að koma í veg fyrir það, að þessi lán færu í vanskil, og það væri eðlilegt að létta undir með Austfirðingum og ganga hreint til verks í þessum málum og gefa allt eftir. Ég vildi ekki gera upp á milli Austfirðinga og Sunnlendinga. Ég vildi láta eitt yfir þá ganga, þegar um það var að ræða að gefa þessi lán eftir, og þess vegna flutti ég till. ásamt hv. 2. þm. Árn. um það haustið 1956 að gefa öll þessi lán eftir. En sú till. fékk þá undarlegu afgreiðslu, þá undarlegu og óskiljanlegu afgreiðslu hjá þeim mönnum m.a., sem haustið 1956 töldu sjálfsagt að fara með aðstoðina á Suður- og Suðvesturlandi á sama hátt og á Austurlandi, að þeir sömu menn vildu greina á milli, þegar um það var að ræða að gefa þessi lán eftir. Þeir vildu gera upp á milli landsfjórðunga og manna í þessu efni, þegar um það var að ræða. Og sá kynlegi atburður gerðist, að meiri hluti Alþingis afgreiddi tillöguna, sem ég flutti ásamt hv. 2. þm. Árn., þannig að gefa Austfirðingum eftir meiri hluta harðindalánanna, en afhenda bjargráðasjóði skuldabréfin fyrir óþurrkalánunum á Suður- og Suðvesturlandi. Þetta var óeðlileg afgreiðsla og til vansæmdar fyrir Alþingi. Og það var þess vegna, sem ég flutti aftur sams konar till. s.l. haust ásamt hv. 2. þm. Árn. og vildi gera tilraun til þess að fá misréttið leiðrétt.

Það er dálítið einkennilegt að heyra það, þegar hv. frsm. meiri hlutans, hv. þm. S-Þ., undrast, að það skuli eigi vera gerð tilraun til þess að fá leiðrétt í Alþingi aftur það, sem Alþingi hefur afgreitt vanhugsað á þann hátt, sem er því ekki til sæmdar, því að afgreiðsla, eins og hún var á till. 1957, var vægast sagt á þann veg, að það var Alþingi ekki til sæmdar að gera upp á milli manna, gera upp á milli landsfjórðunga, láta einn njóta verndar, en ekki annan, sem á jafnmikinn rétt á því.

Alþingi breytir lögum og Alþingi hefur rétt á því að breyta sínum fyrri ákvörðunum, ef í ljós kemur, að hin fyrri ákvörðun var ekki á rökum byggð eða uppfyllti ekki réttlætiskröfur. Og ég vil vænta þess, að hv. þm. S-Þ. átti sig á þessu og viðurkenni það hér, að hann hafi beinlínis talað af sér, þegar hann segir, að það sé ekki hægt fyrir Alþingi að breyta fyrri ákvörðun sinni. Það er einkennilegt, að þessi maður skuli hafa setið á Alþingi í mörg ár.

Hv. frsm. meiri hl. vitnaði í samþykkt búnaðarþings. Það er rétt, búnaðarþing samþykkti með 20:2 atkv. ályktun þá, sem hv. frsm. meiri hl. las hér upp áðan. Búnaðarþing hefur oft gert góðar og athyglisverðar samþykktir. En áreiðanlega er búnaðarþing ekki óskeikult, og það verð ég að segja, að búnaðarþing nýtur ekki ávallt almenns trausts hjá bændastéttinni, og bændur gera alveg eins ráð fyrir því, að búnaðarþingi geti skeikað, og það er það, sem fjöldi bænda á þessum slóðum hefur sannfærzt um einmitt í sambandi við þessa ályktun, að búnaðarþingi hefur skeikað, enda þótt það hafi oft hitt á það rétta og oft gert athyglisverðar og góðar samþykktir fyrir bændastéttina.

Í sambandi við bréf ríkisstj, til bjargráðasjóðs er gert ráð fyrir því, að það megi lengja lánstímann, það megi gefa eftir lánin að einhverju leyti eða fullu, það megi gefa eftir vexti eða lækka vexti o.s.frv., allt eftir efnum og ástæðum. M.ö.o.: í sambandi við afgreiðslu málsins hjá hæstv. ríkisstj. með gjafabréfunum svokölluðu til bjargráðasjóðs er verið að bjóða hér heim harla einkennilegum starfsháttum; og mér er kunnugt um það, að margar sveitarstjórnir hafa beinlínis mælzt undan því að vera að draga menn í dilka, vega og meta, hvort þessi eða hinn sé nú þess verður að fá eftir gefið eitthvað eða allt. Hér er um það að ræða að gera upp á milli manna, og hér er um það að ræða, að jafnvel þó að menn vilji viðhafa fyllsta réttlæti, þá er það að öllu leyti óframkvæmanlegt.

Það eina rétta í þessu máli er að samþ. okkar till. óbreytta og gefa lánin eftir að fullu, og þetta er hægt, enda þótt ríkisstj. hafi afhent bjargráðasjóði skuldabréfin til umráða, vegna þess, eins og hv. þm. Borgf. sagði, að bjargráðasjóður er ríkisstofnun, sem lýtur umsjá Alþingis, og Alþingi er mögulegt að breyta fyrri ákvörðun, eins og það oftlega hefur gert og er alltaf að gera með síendurteknum lagabreytingum. Ef nú Alþingi kemst að raun um, að það, sem samþ. var í fyrra um meðferð þessa fjár, var ekki það heppilegasta, þá er ekkert annað eðlilegra, en að breyta fyrri samþykkt í það horf, sem fullnægir réttlætinu betur og dregur strik yfir það misrétti, sem boðið var heim með fyrri samþyktinni.

Till. okkar liggur hér fyrir til umr. og samþykktar til þess að gefa hv. Alþingi tækifæri til að bæta fyrir það, sem illa var gert á síðasta þingi.

Ég fyrir mitt leyti tel það mikils virði, að bjargráðasjóður eflist, en það verður að gera það á annan hátt en þennan, að taka fé, sem veitt hefur verið vegna vandræðaástands, af bændum, sem enn hafa ekki rétt við vegna hins vonda árferðis, og efla bjargráðasjóð með því.

Mundu nú ýmsar aðrar stéttir, en bændastéttin ekki hugsa sér einhverja aðra leið til þess að efla stofnun, sem þær vildu síðar hafa gott af? Mundu útgerðarmenn t.d. hugsa sér, að þeir gætu eflt lánastofnun eða styrktarstofnun fyrir sjávarútveginn með því að afhenda hæpnar skuldakröfur til innheimtu, sem skyldu svo ganga til þessa sjóðs, hæpnar skuldakröfur frá illa stæðum útgerðarmönnum? Ég held ekki. Ég held, að útgerðarmennirnir mundu finna einhver önnur úrræði og jafnvel leita eftir leiðum til þess að komast beint í ríkissjóðinn til þess að efla slíka stofnun sínum atvinnuvegi til handa.

En bændur hafa búnaðarþing, sem hefur markað stefnuna, og þeir hafa t.d. fyrrverandi búnaðarmálastjóra, hv. 1. þm. N-M., sem hefur haft sig allmikið í frammi í þessu máli, að ég nú ekki tali um það, að hann hefur skrifað nokkuð um þessi mál. T.d. sagði hann í einu skrifi eða tveim í Tímanum, að till. okkar í fyrra hafi verið felld með öllum atkv. þm., og þá náttúrlega sjálfstæðismanna líka, en það vill til, að þskj. vitna um annað. Þau sýna það, að allir sjálfstæðismenn, 17 að tölu, sem á fundi voru, þegar till. var til atkv., greiddu atkv. með till., en ekki á móti. Og það er ýmislegt fleira í skrifum þessa hv. þm., sem er þessu líkt, einmitt um þessi mál, og það verður ekki, þegar þannig er á málum haldið, til þess að bæta málstaðinn eða gera aðstöðu bændastéttarinnar á nokkurn hátt betri, þegar sá, sem telur sig vera málsvara bænda, beitir slíkum aðferðum. Hv. þm. veit það nú, að bændur eru honum ekki þakklátir fyrir frammistöðuna í þessu máli.

Það hefur verið minnzt á það hér, að aðrar stéttir þjóðfélagsins mundu ekki bera kinnroða fyrir að taka á móti aðstoð eins og þeirri, sem er farið fram á með þessari till. En það hafa einstöku menn, sem talið hafa sig bæra um að tala fyrir hönd bænda, talið, að þeir væru að bjarga heiðri bændastéttarinnar með því að reyna að koma í veg fyrir það, að hún geti notið jafnréttis við aðrar stéttir í þessu tilliti.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða öllu meira um þetta. Ég held, að hv. frsm. meiri hl. hafi talað greinilega af sér hér í sinni löngu ræðu, sem var löng vegna þess, að það voru svo mörg bréf, sem upp voru lesin og áttu að vera málstað hans til styrktar. Og einmitt það, að hann studdi ekki till, í fyrra, áður en féð hafði verið afhent bjargráðasjóði, ætti hann ekki nú að þessu sinni að hafa sem höfuðröksemd gegn till., að það væri ekki hægt að samþ. hana, af því að féð hafði verið afhent. Það er bezt fyrir hann og þá, sem koma hér á eftir að tala gegn till. mínni og hv. 2, þm. Árn., að viðurkenna það hreinlega, að þeir vilji ekki láta bændur fá þessa eftirgjöf og að þeir geti unað því misrétti, sem skapað var með því að gefa einum eftir, en ekki öðrum, sem átti jafnan rétt til þess, og að þeir ætli að láta við svo búið standa eða þá að þverskallast við að lagfæra það, sem illa var gert í fyrra, enda þótt þeir jafnvel nú hljóti að hafa komið auga á, að það var ekki rétt afgreiðsla á málinu á síðasta Alþingi.