30.04.1958
Sameinað þing: 42. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í D-deild Alþingistíðinda. (2559)
17. mál, eftirgjöf lána
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti, Það er aðeins eitt atriði, sem mig langaði til að fá skýringu á, sem hér hefur ekki komið fyllilega fram. Það er lagt til í till., sem hér liggur fyrir, að gefin verði eftir að fullu 101/2 millj. kr. lán vegna óþurrkanna á Suður- og Suðvesturlandi. Þeir leggja á það áherzlu, bæði hv. þm. Borgf. og 1. þm. Rang., að hreppsnefndirnar vilji ekki þurfa að „vinza úr“, eins og þm. Borgf. nefndi það, hverjir ættu að fá eftir gefið og hverjir ekki, eða „draga í dilka“, eins og þm. Rang, nefndi það. Lánin voru ekki 101/2 millj., lánin voru 121/2 millj. Ríkissjóður lagði fram 101/2 millj., en bjargráðasjóður 2 millj. Það þarf þess vegna alltaf að draga í dilka eða vinza úr, þegar ekki á að gefa eftir nema 101/2. Hver á að borga þessar tvær? Þeir fara ekki fram á fjárveitingu til að greiða þær.
Í öðru orðinu er sagt, að það eigi að gefa eftir öll lánin, hinu orðinu prentað, að það eigi að gefa eftir 101/2 millj. Hvernig ætla þeir að komast hjá því að láta „vinza úr“ eða „draga í dilka“? Mig langar til að vita það. Eða er það bara af fljótfærni, tillagan bara flutt til að sýnast og ekki einu sinni hirt um að fara rétt með, hver lánin eru, sem eftir á að gefa?