30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í D-deild Alþingistíðinda. (2582)

64. mál, uppeldisskóla fyrir stúlkur

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Till. sú, sem fyrir liggur á þskj. 105, um uppeldisskóla fyrir ungar stúlkur, var flutt snemma á þessu þingi, og er orðalag till. sýnilega við það miðað, að hún yrði afgr., áður en fjárlagaafgreiðsla færi fram, því að með till. er skorað á ríkisstj. að hefjast þegar handa um starfrækslu uppeldisskóla fyrir stúlkur.

Nú var fjárveiting til slíks skóla ekki tekin í fjárl. fyrir þetta ár og af þeim sökum á þessu stigi málsins raunverulega ekki um það að ræða, að auðið sé að afgr. till., án þess að fyrir liggi þá um leið fjárveiting.

Þetta mál hefur verið alllengi á döfinni, og hafa verið gerðar um það hér á Alþ. ákveðnar samþykktir, m.a. árið 1955, breyt. á l. nr. 29 frá 1947, um vernd barna og ungmenna, og er sú breyting þess eðlis, að þar er beinlínis ákveðið, að hefja skuli þegar undirbúning að stofnun og rekstri vistheimilis fyrir stúlkur, og er ríkisstj. heimilt að leita eftir hentugu húsnæði fyrir slíkt vistheimili. N. var skipuð til þess að gera till. um staðarval fyrir slíkt heimili. Síðari hluta ársins 1955 skilaði sú n. ákveðnum till. um það efni, en úr framkvæmdum varð þó ekki. Næsta stig málsins var það, að samþykkt var við afgreiðslu fjárl. fyrir 1957 að heimila ríkisstj. að festa kaup á landi undir slíkt vístheimili, en sú heimild mun heldur eigi hafa verið notuð.

Þegar fjvn. tók að kanna þessa till. og ræddi hana á fundum sínum, kom í ljós í viðræðum við menntmrn., að á s.l. hausti hefði enn verið skipuð n. til þess að gera till. um rekstur slíks skóla og staðarval fyrir hann og hefði sú n. ekki enn þá lokið störfum. Það virtist því í rauninni ekki geta orðið um að ræða aðra afgreiðslu málsins en þá, með hliðsjón af þessum aðstæðum, að till. yrði afgr. á þann hátt, sem fjvn. leggur til, með rökst. dagskrá, sem byggð væri á því, að nú ynni n. að undirbúningi málsins, og í trausti þess, að starfi þeirrar n. yrði hraðað, svo sem verða mætti, svo að hægt væri að taka endanlegar ákvarðanir um rekstur slíks heimilis, þá yrði ekki gerð frekari ályktun um málið að þessu sinni.

Fjvn. er sammála flm. þessarar till. um mikilvægi þess að koma slíku heimili upp. Það er birt sem fskj. með till. vottorð frá lögreglunni í Reykjavík, eða kvenlögreglunni hér, þar sem lögð er mikil áherzla á það með hliðsjón af, hvernig ástatt er í þessum málum, að slíkt heimili geti tekið sem fyrst til starfa, og ég hygg, að naumast geti verið ágreiningur um það, þó að af ýmsum ástæðum hafi þetta dregizt í framkvæmdinni meir, en góðu hófi gegnir.

Fjvn, væntir því þess, að hv. þm. geti fallizt á með hliðsjón af þessum atvikum málsins að afgr. málið á þann hátt, sem hin rökstudda dagskrá á þskj. 529 getur um.