30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í D-deild Alþingistíðinda. (2591)

76. mál, þang- og þaravinnsla

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Fjvn, hefur yfirfarið þá till., sem flutt hefur verið um þetta mál, og leggur til, að henni verði vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá:

„Þar sem upplýst er, að atvinnudeild Háskóla Íslands og atvinnumálanefnd ríkisins vinna að athugun á þang- og þaravinnslu og að atvinnumálanefndin muni beita sér fyrir fullnaðarathugun málsins, og í trausti þess, að slíkri fullnaðarathugun verði hraðað svo sem kostur er á, tekur Alþ. fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vil aðeins taka það fram f.h. nefndarinnar, að við hv. flutningsmenn till. var haft samráð um þessa afgreiðslu, eftir að umsagnir höfðu um hana borizt frá fyrrgreindum aðilum.