04.12.1957
Sameinað þing: 17. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í D-deild Alþingistíðinda. (2627)

33. mál, afnám áfengisveitinga á kostnað ríkis

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Mér finnst hæstv. forseti hafa sýnt dálitla ónærgætni, að hann skuli láta ræða þetta mál nú, þegar hv. þm. Borgf. er fjarstaddur, því þó að hv. þm. Borgf. sé ekki 1. flm. þessa máls, höfum við þó allir alþm. heyrt það, að hann hefur langmest gengið fram fyrir skjöldu í þessu máli af flm. Hann hefur nú ekki enn haldið nema eina ræðu, og sú ræða stóð nokkuð lengi. Það leið hálfur mánuður, frá því að hann hóf hana og þangað til hann lauk henni, að vísu liðu 13 dagar á milli þess, sem málið var tekið fyrir, en á þessum fundum, sérstaklega þeim fyrri, sem málið var rætt, eyddi hv. þm. Borgf. mestöllum þeim tíma, sem gekk til málsins, og svo hafa báðir hinir flm, talað. Þeim hefur lítillega verið svarað, og þess væri að vænta og ekki óeðlilegt, að þeir þyrftu aftur að taka til andmæla. En þetta er mál hæstv. forseta. Ég bendi aðeins á þetta og skipti mér ekki af því að öðru leyti.

Hv. 1. Landsk. þm. hefur misheyrt það, sem ég sagði. Hann hafði það eftir mér, að drykkjuskapur væri ekkert vandamál í löndum Múhameðstrúarmanna. Ég held, að ég hafi ekkert sagt um það, man ekki eftir því og þykir það ótrúlegt, því að um þetta veit ég ekki neitt og get ekkert um það sagt. Ég sagði hitt, að mér þætti það engin furða, þó að þjóðhöfðingjar Múhameðstrúarmanna hefðu skrifað undir skuldbindingu um það að hafa ekki áfengisveitingar um hönd í sínum veizlum, vegna þess að þeim væri bannað það í Kóraninum að neyta áfengis, og þetta hygg ég að sé rétt. Ef það er áfengisvandamál í löndum Múhameðstrúarmanna, þá er það fyrir það, að það fer fyrir mörgum Múhameðstrúarmönnum eins og jafnvel getur komið fyrir templara, að þeir halda ekki þau boðorð, sem þeir eiga að halda. Þetta getur vel verið, að þar séu drykkjuvandamál, en ég veit ekkert um það og hef því tæplega nokkuð um það sagt.

Hann var að tala um, að ég hefði verið með úrtölur í þessu máli. Ég veit ekki, hvað hann kallar úrtölur. Ég fellst ekki beinlínis á, að ég hafi verið með þær. Hitt lét ég í ljós, að þegar um það væri að ræða að sporna á móti drykkjuskap í landinu, þá mundi þessi till. vera fremur þýðingarlítil og ekki hafa mikil áhrif.

Í ræðu hv. þm. Barð., sem hann hefur nú nýlokið, kom nákvæmlega fram sami skilningur og hjá mér, að jafnvel í ríkisveizlum, þar sem bannað væri að veita áfengi á kostnað ríkisins, mundi vera möguleiki á því að fá áfengi, ef veizlurnar væru haldnar á þeim hótelum, sem vínveitingaleyfi hafa. Hvort það kynni að þykja ókurteisi að gera slíkt, það kann að vera, en ég er ekki viss um, að það yrði af öllum fordæmt.

Annars hafa hér komið fram upplýsingar í þessu máli, sem ég undrast alveg, ef réttar eru. Það er um það, að ríkisstofnanir ýmsar haldi veizlur á kostnað ríkissjóðs og veiti þ. á m. áfengi á þann hátt og að mér skildist með kostnaðarverði, eins og ríkisstj. getur gert. Ég verð að segja, að ég hef ekki vitað um þetta. Ég veit, að ríkisstofnanir halda sumar veizlur fyrir starfsfólk sitt og jafnvel fleiri, þegar einhver hátíðabrigði eru hjá þeim, en ég hélt, að það væri ekki á þennan hátt, sem áfengi væri fengið, sem þar kann að vera veitt. Nú hefur einn af hv. endurskoðunarmönnum ríkisreikninganna, að mér skildist, upplýst það, að svo væri, áfengið væri þar veitt á alveg sama hátt og ríkisstj. gerir í sínum veizlum. Ég veit ekkert, ef þetta er rétt, með hvaða heimild það er gert. Mér er kunnugt um það t.d., að hv. fjvn. heldur veizlu á hverju ári. Það skyldi þó aldrei vera, að það væri svona í hennar veizlum? Hv. þm. Borgf. hefur nú verið formaður hennar oft og lengi, þó að hann sé það ekki nú, og ótrúlegt þykir mér það, að slíkt hafi átt sér stað undir hans forsæti.

Hv. 1. landsk. þm., 1. Flm. þessarar till., minntist á umgengni við útlendinga í þessu sambandi, og m.a. tók hann undir það, sem blöð templara voru með, þegar erlendir þjóðhöfðingjar komu hingað, sem kunnugt er, að tveir af þeim voru bindindismenn, að það væri hneyksli, að það skyldi vera haft vín um hönd í þeim veizlum, sem þeim var boðið til af íslenzkum stjórnarvöldum. Ég vil ekki mikið tala um þetta, en ég held nú samt, að þeir Íslendingar, sem voru í veizlu, sem hans hátign Svíakonungur hélt hér í sumar, hneykslist ekki. Mér er síður kunnugt um það, hvernig tilhögun var, þegar hans hátign Danakonungur var hér ári áður, og skal ekki nefna það neitt.

Það gleður mig mjög, að ég hef að einhverju leyti tekið skakkt eftir því, sem hv. 1. landsk. þm. sagði í sinni fyrri ræðu. Hann taldi sig ekki hafa sagt það, þó að mér heyrðist það, að það væru 2.000 drykkjusjúklingar hér í Reykjavík, heldur hefði hann átt við allt landið, og komst að þeirri niðurstöðu, að það mundi vera um 2% af íslenzku þjóðinni drykkjusjúklingar. Þetta er miklu skárra að heyra en það, sem hann sagði í sinni fyrri ræðu, þó að þetta sé nógu alvarlegt, og það er ekki einasta skárra fyrir okkur Íslendinga að heyra þetta heldur en það, sem ég þóttist heyra fyrst, heldur lítur þá út fyrir, að það sé skárra ástand í þeim löndum, sem ég nefndi, heldur en samkvæmt hinu. Þá ætti samkvæmt því, sem Íslendingar drekka á mann og t.d. Frakkar drekka á mann, að í staðinn fyrir, að það væri meiri hluti frakknesku þjóðarinnar, að börnum, konum og gamalmennum meðtöldum, sem væri drykkjusjúklingar, þá skilst mér eftir sama hlutfalli, að það ættu að vera, að allri þjóðinni meðtalinni, um 34% í hlutfalli við mannfjölda hér og þar og áfengisneyzlu hér og þar. Þetta virðist mér vera skelfileg tala, ef það eru 34% allrar frakknesku þjóðarinnar drykkjusjúklingar, en það hlýtur næstum að vera, ef þessar tölur hv, þm, eru réttar. Hann svaraði því að nokkru, hvað væri drykkjusjúklingur, og skilgreindi það. Ég hef vitanlega ekki læknisfræðiþekkingu til þess að gera neina athugasemd við það, sem hann skýrði. Aftur svaraði hann ekki þeirri spurningu, sem ég bar upp við hann sem lækni og sálfræðing, hvort áfengi gæti beinlínis haft áhrif í fjarlægð. Ég nefndi tvö dæmi um það, að ég þykist hafa séð það sjálfur, og jafnvel hef ég séð tvö dæmi þess, annað skemmtilegt og hitt heldur leiðinlegt.

Hv. þm. A-Húnv. minntist á þetta ódýra vín í veizlum ríkisstofnana. Ég vildi gjarnan fá nánari skýringu á því. Hann minntist einnig á það, að nú væri áætlaður meiri hagnaður af áfengissölu en áður hefði verið, en hann talaði sjálfur um það, að áfengið væri selt með okurverði hér, og það er alltaf verið að hækka það, og á þessu ári var það hækkað, ef ég man rétt. Ég man ekki betur en það væri hækkað 1. Febr. s.l. eða eitthvað um það bil, og þá getur orðið meiri hagnaður af áfengissölu fyrir ríkissjóð, þó að ekki sé meira drukkið.

Hv. samþingismaður minn, 2. þm. Eyf., taldi réttilega það þýðingarmeira að stemma á að ósi, eins og hann orðaði það, koma í veg fyrir drykkjuskapinn, heldur en hitt, þó að það væri gott út af fyrir sig, að vera með bjargráðaráðstafanir gagnvart þeim mönnum, sem í drykkjuskapinn væru fallnir. Þetta er vitanlega alveg rétt hjá honum, En eins og ég hef sagt, hef ég mjög takmarkaða trú á því, að þessi till., þó að samþykkt verði, mundi á nokkurn hátt stemma á að ósi. Og ég er satt að segja dálítið undrandi yfir því, að þessir áhugamenn um bann og bindindi skuli ekki hefja baráttu, bæði hér á Alþingi og utan Alþingis, fyrir því að lögleiða hér algert áfengisbann. Það væri þó a.m.k. tilraun til þess að stemma á að ósi. Nei, það er ekki gert, heldur er verið með alls konar kák, sem hefur haft vafasaman árangur. Ég man eftir því, að þegar áfengislögin voru hér til meðferðar og m.a. samþykkt heimild til héraðabanna, þá lagðist ég á móti þeirri till., og ég sagði alveg nákvæmlega fyrir, hvað nú er fram komið, hvernig fara mundi um héraðabönnin, eins og þeim var fyrir komið. Það voru sett á héraðabönn í nokkrum kaupstöðum. Nú er búið að afnema þau í a. m. k. tveimur af þessum kaupstöðum með atkvgr, íbúanna, og nú er síðari villan argari hinni fyrri, því að það er enginn vafi, að það er drukkið meira í þessum kaupstöðum, vegna þess að héraðsbannið var um tíma, heldur en nú mundi vera gert, ef ekkert héraðsbann hefði verið. — Hann taldi óhugsandi, að það mundi verða drukkið í veizlu, t.d. á hóteli, þótt það hefði vínveitingaleyfi, ef gestgjafinn veitti ekki, þ.e.a.s. ríkið veitti ekki áfengi. En ef nú forstöðumaður veizlunnar keypti áfengi handa sér á hótelinu, það væri kannske einn heiðursgestur í veizlunni, sérstakur heiðursgestur, og hann keypti áfengi handa honum líka, hvað mundu gestirnir gera, þeir sem á annað borð vilja hafa vín með mat? Ég er ekki viss um, að nokkrum manni þætti það dónaskapur. Ég hef verið í slíkum veizlum, ekki sem ríkið hefur haldið, heldur sem félög eða samtök hafa haldið, t.d. heiðurssamsæti fyrir einstakan mann, þar hefur ekki fylgt neitt vín inngangseyrinum. Aðalforstöðumaður slíks samsætis hefur gert þetta, elns og ég var að lýsa. Hann hefur keypt vín handa sjálfum sér og heiðursgestinum, Svo hefur hver, sem þar hefur sýnzt, keypt vín handa sér og sinni dömu. Ég er ákaflega hræddur um, að það gæti farið svo, að veizlur, þó að haldnar væru á vegum ríkisins, færu svipað fram, jafnvel þó að þessi till. væri samþykkt.

Þá minntist hv, þm. á þær áskoranir, sem borizt höfðu Alþingi um að samþykkja þessa till. Ég vék að því í ræðu á dögunum, hvað ég legði upp úr slíkum áskorunum. Það er alltaf hægt að safna áskorunum undir hvað sem vera skal, svo að segja, og ekkert undur er það, þó að stórstúkan og aðrar stúkur sendi slíkar áskoranir. Þetta eru bindindisfélög og vilja auðvitað, hvar sem á því bólar að eigi eitthvað að takmarka áfengisneyzlu, styðja það. En mér þykir það dálítið kyndugt um áfengisvarnanefndirnar, að þær skuli hafa flestar eða allar bætt sér í þennan hóp. Áfengisvarnanefndirnar eru til orðnar samkvæmt lögum frá Alþingi, sumpart skipaðar, að mig minnir, af ríkisstj. og sumpart kosnar heima í héraði, og þær hafa ákveðið verkefni. Þeirra verkefni á að vera það vitanlega að sporna við drykkjuskap, hver í sínu umdæmi, og alveg sérstaklega að vinna að því, að áfengislögunum sé hlýtt á því svæði, sem þær eru kosnar fyrir. Hitt hef ég aldrei vitað né heldur var það orðað, þegar áfengislögin voru sett, að áfengisvarnanefndirnar ættu að vera nokkrir húsbændur Alþingis. Og hvað sem um þessa till. verður og hvernig sem ég greiði atkv. um hana að lokum, þá er eitt víst, og það er það, að ég hef þessar áskoranir að engu, tel mig ekkert minni mann, þó að ég hlaupi ekki eftir öllum áskorunum, sem gerðar kunna að vera.

Hv. þm. bjóst við því, að Ísland gæti vakið á sér athygli í útlöndum með því, að ekki yrði vín haft um hönd í sendiráðum íslenzkum, útlendir gestir, sem hingað kæmu, fengju ekki heldur áfengi í veizlum, sem þeim kynnu að vera haldnar. Ég býst við því, að Ísland gæti vakið á sér athygli. Við skulum setja sem svo, að þetta yrði gert. Sendiherrar okkar í útlöndum kæmu til annarra sendiherra og drykkju þar áfengi. Það má búast við því, því að ég hygg, að þeir séu fæstir af þeim bindindismenn, En þegar þeir kæmu til okkar sendiherra, — nei, það má ekki hér hafa neitt áfengi um hönd. Ríkisstjórnin íslenzka og önnur æðstu stjórnarvöld byðu sendiherrum útlendum í áfengislausa veizlu, heimsæktu svo sendiherrana og drykkju þar áfengi. Ég er hv. þm. alveg sammála um, að þetta mundi vekja athygli á Íslandi, en ég er ekkert víss um, að sú athygli væri eftirsóknarverð á allan hátt.

Hv. þm. Barð. minntist á það, að þetta væru orðnar langdregnar umræður um þessa till. Ég vék nú aðeins að þessu áður. En ég bendi honum á það, að það eru flm. till. sjálfir, sem hafa dregið hér tímann, og þó alveg sérstaklega einn þeirra. Það hefur ekki verið talað á móti till. neitt að ráði. Ef til vill má líta svo á, að hv. þm. A-Húnv. hafi talað beint á móti henni. En samt sem áður hafa hv. flm. þurft að nota eins langan tíma og raun ber vitni um. Hv. þm. Barð. sagðist ekki efa það, að ég mundi verða með þessari till., ef hægt væri að sannfæra mig um það, að hún mundi draga úr áfengisneyzlu. Þetta er alveg rétt. Ef hún gæti orðið til þess, að unglingar t.d. legðu niður drykkjuskap og yfirleitt mundi draga úr áfengisneyzlu í landinu til muna, ef hún yrði samþykkt, þá mundi ég verða með henni, en gallinn er, að það er ekki búið að sannfæra mig um þetta enn. Ég álít till. hégóma, sem engin áhrif getur haft í þessu efni, hreint ekki nein, Og eins og ég vék að áður, þá er ekki nema eitt til í þessu máli, og það er að reyna áfengisbann, ef menn vilja forða þjóðinni frá áfengisnautn. Að vísu yrðu bannlögin brotin, eins og bannlögin voru brotin á árunum, og þau yrðu sjálfsagt meira brotin en þá var, sökum þess að möguleikarnir til þess eru miklu meiri nú en þá var. En hvað um það, það væri þó tilraun, og sjálfsagt yrði það svo, að úr drykkjuskap mundi verulega draga með því móti að banna áfengi í landinu. Ýmiss konar félagsskapur mundi geta gert mikið, ef áhugi væri fyrir hendi. Það sýnir sig nú, að góðtemplarastúkan getur ekki mikið gert í því efni. En ef risi upp félagsskapur ungra manna nú með sama áhuga og sama eldmóði og ungmennafélögin höfðu á fyrsta áratugnum, sem þau störfuðu, þá væri ég viss um, að það gæti haft mjög mikil áhrif til þess að draga úr því, að ungt fólk sæktist eftir áfengi, og ýmiss konar félagsskapur gæti þannig komið til greina til þess að breyta skoðunum fólks á þessu og þeim kröfum, sem það gerði til sjálfs sín. En það opinbera aftur, ríkisvaldið, löggjafarvaldið, það álít ég að geti ekki gert neitt verulegt annað, en samþykkja algert bann, allt annað verði hálfgert kák. Það er mín skoðun.