30.10.1957
Sameinað þing: 7. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í D-deild Alþingistíðinda. (2677)

21. mál, vegagerð

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Akfærir vegir á Íslandi munu nú vera í kringum 10 þús. km að lengd. Þrátt fyrir það þótt akfærir vegir séu orðnir þetta langir í landinu, er ástandið þó þannig enn þá í einstökum landshlutum, að heil byggðarlög eru veglaus og jafnvel fjölmennir kaupstaðir og sveitir án sambands við akvegakerfi landsins. Þetta ástand er fyrst og fremst í þeim landshlutum, sem afskekktastir eru eða nokkrum erfiðleikum er bundið að leggja vegi til.

Nú er það hins vegar svo, að með aukinni tækni og margvíslegum nýjum vélum og tækjum er vegagerð orðin miklu auðveldari, en áður um háfjöll, sæbrattar hlíðar og skriður. Það er þess vegna ekki hægt að segja, að vegagerð sé útilokuð vegna aðstæðna frá náttúrunnar hendi í dag, enda þótt þannig hafi það verið fyrir fáum áratugum.

Alþ. veitir nú á ári hverju framlög til nýrra þjóðvega, sem munu vera um það bil 230 talsins. Þessir vegir eru í öllum sýslum og landshlutum. Enda þótt ýmislegt mæli gegn þessari miklu dreifingu vegafjárins, hefur það þó verið álit Alþ., að mjög erfitt væri að komast hjá henni. Fer ég ekki út í að rekja orsakir þess hér. En að hinu má ekki síður færa rök, að skynsamlegt væri að einbeita kröftunum meira að einstökum vegaframkvæmdum, en gert hefur verið.

En hvað sem er um þessi tvö sjónarmið, þá verður ekki hjá því komizt lengur að snúast við vanda þeirra byggðarlaga, sem skemmst eru á veg komin að því er snertir vegagerðir og afnot greiðra samgangna á landi. Það er óhjákvæmilegt að leggja á næstu árum áherzlu á það að koma þeim byggðarlögum í akvegasamband, sem enn þá eru án slíks sambands.

Í þáltill. þessari er lagt til, að ríkisstj. láti í samráði við vegamálastjóra gera samræmda framkvæmdaáætlun um vegagerð til þess að koma þeim landshlutum og héruðum sem fyrst í akvegasamband, sem enn þá eru ýmist veglaus eða án sambands við akvegakerfi landsins. Það er skoðun okkar flutningsmanna, að á meðan sú staðreynd blasir við, að heilir landshlutar eru án akvegasambands, sé það ekki verjandi að skipa þessum byggðarlögum til sætis við sama borð og þeim héruðum, sem þegar hafa fengið vegi um meginhluta byggða sinna.

Kjarni þessarar till. er í stuttu máli sá, að sérstakt tillit verði tekið af hálfu fjárveitingavaldsins til þarfa þeirra byggðarlaga, sem í dag eru ýmist veglaus eða án sambands við akvegakerfi landsins. Ég hygg, að ég þurfi ekki að færa orðmörg rök að réttmæti slíkrar ráðstöfunar. Þjóðin getur ekki til lengdar látið örfá byggðarlög gjalda þess, að þau eru afskekktari frá náttúrunnar hendi en meginhluti annarrar byggðar landsins. Við þessu verkefni verður þess vegna að snúast og með þeim hætti, sem hér er lagt til, að vegamálastjórnin láti gera samræmda framkvæmdaáætlun um það, hvernig þessum héruðum skuli komið í akvegasamband, og sú áætlun verði síðan lögð fyrir fjárveitingavaldið, er taki tillit til hennar við samningu fjárlaga á ári hverju.

Ég veit, að ýmsum hv. þm. muni finnast þetta nokkuð vandasamt verkefni, en engu að síður liggur til grundvallar þessari till. réttlætissjónarmið, sem ekki verður sniðgengið. Og ég held, að meginhluti byggðar á Íslandi sé orðinn svo vel settur að því er snertir samgöngur á landi, að það ætti ekki að þurfa að ganga á hlut nokkurs byggðarlags eða nokkurs fólks til þess að bæta úr því vandræðaástandi, sem ríkir í þeim byggðarlögum og landshlutum, sem enn þá hafa ekki fengið akvegasamband eða vegi um sínar byggðir.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þessa þáltill., en leyfi mér að óska þess, að henni verði vísað til hv. fjvn.