20.11.1957
Sameinað þing: 14. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í D-deild Alþingistíðinda. (2692)

26. mál, byggingarsamvinnufélög

Flm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Með lögum um byggingarsamvinnufélög var að því stefnt að veita mönnum sérstaka aðstoð til þess að geta eignazt húsnæði, og í þeim lögum, sem nú gilda um það efni, eru sett ýmis ákvæði hér að lútandi, bæði um, hvernig menn geta öðlazt rétt til þátttöku í þessum félögum, hvaða réttindi þeir öðlast sem félagar í þeim og hvaða skyldur á þeim hvíla í sambandi við húseignir sínar, eftir að þeir hafa notið fyrirgreiðslu félagsins.

Ég sé enga ástæðu til að vera að rekja þessi lagaákvæði sérstaklega hér, þau eru öllum hv. þm. kunn, en ástæða þess, að ég hef hér ásamt hv. 5. þm. Reykv. flutt till. um, að ríkisstj. verði falið að láta endurskoða gildandi lagaákvæði um byggingarsamvinnufélög, er sú, að það hefur komið í ljós á undanförnum árum, sem eðlilegt var, í samræmi við þá reynslu, sem orðið hefur af framkvæmd þessara laga, að ýmis atriði þeirra þurfa nýrrar athugunar við.

Eins og ég áðan gat um, eru mönnum með lögum þessum veitt sérstök réttindi til fyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins. Það er gert

ráð fyrir því, að byggingarsamvinnufélög hafi rétt til þess að fá ríkisábyrgð fyrir lánum til húsbygginga fyrir meðlimi sína, er nemi allt að 80% af kostnaðarverði húsanna. Og það er jafnframt gert ráð fyrir þeirri sérstöku fyrirgreiðslu við meðlimi byggingarsamvinnufélaga, að byggingarfélögin að verulegu leyti sjái um byggingu húsanna og taki lán til þeirra og endurláni síðan félagsmönnum sínum andvirði íbúðanna eftir föstum reglum. Á móti þessum réttindum eru lagðar víðtækar skyldur á eigendur íbúða í byggingarsamvinnufélögum. Það eru sérstakar kvaðir varðandi sölu íbúðanna, bæði varðandi forrétt annarra félagsmanna til að kaupa þær og þó öllu heldur varðandi söluverð íbúðanna sjálfra, því að um það gilda sérstakar reglur, að íbúð í byggingarsamvinnufélagi má ekki selja nema með tiltekinni álagningu, þ.e.a.s. miðað við byggingarvísitölu á hverjum tíma. Enn frekari skyldur hvíla á þátttakendum í byggingarsamvinnufélögum, sem felast sérstaklega í því, að samkv. lögunum er gert ráð fyrir samábyrgð allra meðlima í sama byggingarflokki fyrir þeim lánum, sem tekin eru í viðkomandi byggingarflokki, sem merkir það, ef það ætti að framkvæmast út í yztu æsar, að maður, sem kynni að vera búinn að borga að fullu sína íbúð, gæti orðið ábyrgur fyrir lánum annarra í þessum flokki, sem ekki stæðu í skilum. Að vísu mun þetta ekki hafa verið framkvæmt þannig af hálfu fjmrn., þegar um vandkvæði hefur orðið að ræða um skil í sambandi við ríkisábyrgðir, en engu að síður er þó þetta ákvæði í lögum og talið mjög vafasamt, eins og þessi ákvæði nú eru, að hve miklu leyti íbúðir manna í byggingarsamvinnufélögum séu blátt áfram veðhæfar fyrir öðrum lánum. Enn fremur er svo eitt atriði, sem er auðvitað gersamlega úrelt orðið, og það er ákvæðið um það, að óheimilt sé að veðsetja íbúðir byggingarsamvinnufélaga eða meðlima þeirra fyrir hærri upphæð, en svarar upphaflegu kostnaðarverði. Þetta er auðvitað algerlega óraunhæft ákvæði.

Nú er það svo, eins og við flm. bendum á í okkar grg. að, að sjálfsögðu er það ekki nema eðlilegt, að þeir menn, sem njóta sérstakrar fyrirgreiðslu ríkisvaldsins skv. þessum lögum, taki á sig í því sambandi einhverjar sérstakar kvaðir. Hins vegar er það álitamál, hversu viðtækar slíkar kvaðir eiga að vera, ekki sízt vegna þess, að í framkvæmdinni eru mönnum ekki veitt þau réttindi, sem lögin gera ráð fyrir. Það er t.d., að því fer víðs fjarri, að ríkisábyrgð sé veitt fyrir 80% byggingarkostnaðar. Ég kalla gott, ef það eftir núgildandi reglum eru 50%, sem ríkisábyrgðin er veitt fyrir. Og í annan stað er það, að nú er það, að ég hygg, í langflestum tilfellum þannig vegna fjárskorts og erfiðleika á öflun lánsfjár, að einstakir meðlimir samvinnubyggingarfélaga verða sjálfir að byggja upp á eigin spýtur og útvega öll þau lán, sem til þarf. Er þarna að sjálfsögðu um að ræða erfiðleika, sem ekki er gert ráð fyrir skv. lögunum að menn þurfi við að stríða, þannig að réttindi manna að þessu leyti eru í framkvæmd mun minni, en gert var ráð fyrir.

Þá hefur það enn fremur komið í ljós á undanförnum árum, að ýmis ákvæði laganna varðandi eignayfirfærslur og önnur atriði eru svo óljós, að það er miklum vafa bundið, hvernig þau á að skilja, og hafa meira að segja þurft að ganga um það hæstaréttardómar í a.m.k. einu tilfelli, varðandi vafaatriði í lögunum. Og enn er það svo, að það er miklum efa bundið, hvaða heimildir eru t.d. til íbúðaskipta, þ.e.a.s. ef félagsmaður lætur íbúð af hendi, selur hana, kaupir aðra íbúð og býst til að taka hana inn undir lögin með sömu kvöðum og hvíldu á hinni, hvort heimilt er að losa hina íbúðina út úr félaginu eða ekki. Þó að það muni hafa verið gert í framkvæmd, þá er það af fróðum mönnum talið mjög vafasamt.

Nú eru starfandi í landinu mjög mörg byggingarsamvinnufélög. Þau hafa að vísu sum þeirra með sér samband, en í því sambandi eru ekki öll félögin. Af þeim sökum er það, að hér er gert ráð fyrir í okkar till., að lögin verði endurskoðuð í samráði við stærstu byggingarsamvinnufélögin í landinu, — það hefði auðvitað verið eðlilegt, hefði verið samband milli þeirra, að það hefði verið það, sem hefði verið aðili að endurskoðuninni. En af þeim sökum, að ekkert heildarsamband er til, er þetta orðað á þennan veg, því að okkur sýnist augljóst mál, að sjálfsagt sé að hafa byggingarsamvinnufélögin, sem hafa öðlazt mikilvæga reynslu í þessum málum og framkvæmd laganna, með í ráðum við athugun á þessari löggjöf.

Þau réttindi, sem veitt eru með lögum um byggingarsamvinnufélög, eru ákaflega mikilvæg. Ef hægt væri að veita réttindin að fullu, eins og þar er gert ráð fyrir, er þar að sjálfsögðu um mjög veigamikla aðstoð að ræða. Það er því að skoðun okkar flm. sjálfsagt að halda áfram þeirri aðstoð, sem gert er ráð fyrir í þessum lögum. En það er með þessi lög eins og önnur, að það er ekki óeðlilegt, að það þurfi að endurskoða þau. Þó að þessi lög séu að vísu ekki gömul í þeirri mynd, sem þau eru nú, þá er það samt þannig, að augljóst er, að þarna eru ýmis atriði, sem athugunar og endurskoðunar þurfa við, vegna þess að aðstaða er að mörgu leyti breytt.

Ég vil því leyfa mér að vænta þess, að till. þessi geti náð fram að ganga, og vil leggja til, að umr. um hana verði frestað og henni vísað til athugunar allshn.