20.11.1957
Sameinað þing: 14. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í D-deild Alþingistíðinda. (2718)

34. mál, bygging kennaraskólans

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Ég veit ekki nema ég kynni að geta gefið einhverjar upplýsingar í þessu máli, sem hér er til umræðu, varðandi það, hvernig það hefur gengið fyrir sig með fjárfestingarleyfin fyrir kennaraskólabyggingunni.

Árið 1956 um sumarið var veitt fjárfestingarleyfi fyrir 1.200 þús. kr. til byrjunarframkvæmda, sem áttu að fela í sér gröft og byggingu kjallarans, að svo miklu leyti sem sú fjárfesting mundi duga, og þá, þegar það leyfi var veitt, var gert ráð fyrir — eða mér er sagt, að innflutningsskrifstofunni hafi þá verið tjáð, að gert væri ráð fyrir að vinna fyrir þá upphæð árið 1956. Af einhverjum ástæðum var svo aðeins unnið fyrir 150 þús. kr. það ár.

Snemma á árinu 1957 kom svo að nýju umsókn um framlengingu á þessu leyfi. Innflutningsskrifstofan hefur haft mjög mikið af ýmiss konar beiðnum um fjárfestingarleyfi fyrir opinberum byggingum, eins og mörgum hv. þm. er kunnugt, og það hefur þess vegna verið býsna erfitt verk fyrir okkur, sem þarna störfum, að velja á milli um það, hvaða fjárfestingarleyfi skyldi taka og hver skyldi ekki taka í ár. Þetta var framan af árinu mikið athugunarmál fyrir okkur og hæstv. ríkisstj., hvernig þessum málum skyldi hagað. Með vorinu fórum við svo að veita nokkuð af þessum leyfum og vorum að veita tilteknar framkvæmdir fram eftir sumri og fram á haust jafnvel.

Þegar þetta mál kennaraskólans var til umræðu, voru einnig til umræðu ýmsar aðrar opinberar byggingar, m.a. fjárfesting fyrir verzlunarskólann, ríkisútvarpið og fjöldamargt fleira. Sumt af þessu var látið bíða, en fjárfestingarleyfi til kennaraskólans var veitt í ágúst og gefið út 2. sept., eins og komið hefur fram hér í umræðunum, og ég vil segja fyrir mjög ötula framgöngu hæstv. menntmrh. Hann hafði oft talað við ýmsa af okkur, sem í innflutningsskrifstofunni vinnum, og hafði lagt á það mikla áherzlu, að þessu máli væri hraðað, en stjórn innflutningsskrifstofunnar gat ekki orðið sammála um að gefa út þetta fjárfestingarleyfi fyrr en raun ber vitni um. — Ég vildi aðeins, að þetta kæmi fram til upplýsinga.