21.02.1958
Sameinað þing: 29. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í D-deild Alþingistíðinda. (2735)
41. mál, verndun fiskimiða
Flm. (Pétur Ottesen):
Herra forseti, Ég flutti á síðasta þingi till. til þál. sama efnis og sú er, sem nú liggur hér fyrir um verndun fiskimiða umhverfis Ísland. Þeirri till. var þá vísað til allshn., sem hafði málið til meðferðar um alllangt skeið. Þegar leið að þinglokum og ég þóttist sjá, að eigi mundi verða af afgreiðslu á þessu máli hjá n., gerði ég um það fsp. fyrir þinglokin, hverju slíkt sætti, og varð hæstv. sjútvmrh, fyrir svörum hvað þetta snerti. Hann sagði, að n. hefði haft samband við hann eða ríkisstj. um þetta mál og talsvert hefði af hálfu ríkisstj. verið unnið að undirbúningi um framkvæmdir í þessu efni, en hins vegar hefði ekki þótt rétt á því stigi að gera samþykkt í því formi, sem till. fjallar um, enda sagði hæstv. ráðh., að hægt væri að gera samþykktir um framkvæmd till. samkvæmt lögum, sem fyrir eru um það efni, og er það auðvitað alveg í samræmi við það, sem lagt er til í þessari till., að ríkisstj. geri slíkar ályktanir á grundvelli gildandi laga, svo sem gert var, þegar landhelgin var færð hér út, nú fyrir nokkrum árum. Hann sagði þess vegna, að málið væri í höndum ríkisstj. og væri þar til áframhaldandi umr.
Nú þegar þetta þing kom saman og ekkert hafði verið aðhafzt í þessu máli opinberlega, flutti ég enn þessa till. sem tilraun af minni hálfu til þess að ýta undir hina nauðsynlegu og óhjákvæmilegu framkvæmd í þessu efni. Þessi till. hefur nú legið hér fyrir um alllangt skeið og ekki verið enn sem komið er vísað til n., en samkvæmt þeim upplýsingum, sem fram komu við umr. um landhelgismálið hér í gær, upplýstist, að sú ákvörðun hefði verið tekin innan ríkisstj. að bíða eftir þeim fundi, sem nú hefst innan fárra daga í Sviss, um framkvæmdir í þessu máli.
Við þessu er í sjálfu sér ekkert að segja. Þessi till. frá minni hálfu felur það í sér, að ég hefði talið æskilegt, að fyrr hefðu verið gerðar þær ráðstafanir, sem lagt er til að gerðar verði samkvæmt henni, en það hefur nú ekki orðið því miður. Hins er svo að vænta, að þessi fundur, sem halda á nú, eða að honum loknum, þá verði því takmarki náð, sem að er stefnt samkvæmt þessari till., a.m.k. að landhelgislínan verði færð hér út upp í 12 mílur, þannig að hún verði 12 sjómílur frá yztu annesjum, eyjum og skerjum, eins og orðað er í þessari till. og gerðar verði nauðsynlegar útfærslur á grunnlínunum. Ég skal þess vegna ekki fara fleiri orðum um þetta mál, eins og komið er, þó að ég verði að láta í ljós það álit mitt, að æskilegt hefði verið og nauðsynlegt allra hluta vegna, eins og ástatt er að verða hér hjá okkur, að framkvæmd á efni þessarar till. hefði getað orðið fyrr, en raun ber vitni um að ætli að verða. En að úr rætist í þessu efni innan skamms, það verðum við sannarlega að vona. Ég vil þess vegna leggja til á þessu stigi málsins, að þessari till. verði að þessari umr. lokinni vísað til allshn., og mundi þá verða æskilegt að skipta umr. þannig, að síðari hluti hennar færi fram að lokinni athugun n. á málinu.