05.02.1958
Sameinað þing: 25. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í D-deild Alþingistíðinda. (2767)

52. mál, vísitölufyrirkomulag

Flm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, þá er tilgangurinn með því að reikna út verðlagsvísitölu sá að fá með því mælikvarða á almennar verðlagsbreytingar frá einum tíma til annars.

Hér á landi er vísitala framfærslukostnaðar eina almenna verðlagsvísitalan, sem út er reiknuð, og er henni ætlað að vera mælikvarði á þær breytingar, sem verða á framfærslukostnaði. Til þess að vísitalan gefi sem réttasta mynd af þeim breytingum, sem verða á verðlaginu, þarf að gefa hinum einstöku vörutegundum gildi í grundvelli þeim, sem vísitöluútreikningurinn byggist á, í samræmi við mikilvægi hverrar vörutegundar í neyzlunni.

Sá grundvöllur, sem núv. vísitöluútreikningur byggist á í meginatriðum, var lagður með söfnun búreikninga frá 40–50 fjölskyldum, aðallega verkamannafjölskyldum, en þeir búreikningar voru haldnir seinni part ársins 1939 og fyrri part ársins 1940.

Það er nú vitað mál, að miklar breytingar hafa orðið á neyzluvenjum fólks á þessum tíma. Því til sönnunar má benda á það, að meðalútgjöld fimm manna fjölskyldu samkvæmt vísitölugrundvellinum eru tæplega 34 þús. kr., og mun það varla öllu meira en helmingur raunverulegra útgjalda fjölskyldna af þeirri stærð, þó að aðeins sé miðað við fjölskyldur verkamanna og iðnaðarmanna.

Vísitalan gæti þó gefið nokkurn veginn rétta mynd af þróun verðlagsins, enda þótt aðeins hluti af útgjöldum heimilanna sé tekinn í vísitölugrundvöllinn, ef ástæða er til að ætla, að verðlag á þeim vörum, sem ekki eru í grundvellinum, breytist í sömu hlutföllum og vísitöluvörurnar. Þannig ætti það að vera á frjálsum markaði, þar sem það opinbera hlutaðist ekki til um verðlagsmál. En allir vita, að því fer mjög fjarri, að því skilyrði sé fullnægt nú. Vegna þess að kaupgjald hefur um langt skeið verið tengt vísitölu framfærslukostnaðar, hafa stjórnarvöldin leitazt við að halda vísitöluhækkun í skefjum með niðurgreiðslum á verði þeirra vörutegunda, er mikið gildi höfðu í vísitölunni, og hlífa þeim við tollaálögum.

En þótt pottur hafi þannig lengi verið nokkuð brotinn í því efni, að vísitalan hefur ekki verið réttur mælikvarði á þróun verðlagsins, hefur þó alveg keyrt um þvert bak í þeim efnum á valdatímum hæstv. núv. ríkisstjórnar. Jafnframt því að niðurgreiðslur hafa verið stórauknar, en fjár til þeirra er auðvitað ekki aflað öðruvísi en með því að leggja tolla og skatta á almenning, voru ráðstafanir þær í efnahagsmálum, er gerðar voru um næstsíðastliðin áramót, fyrst og fremst fólgnar í stórauknum álögum á allar vörutegundir aðrar en þær, sem gildi höfðu í vísitölugrundvellinum. Vísitalan er því bersýnilega orðin öldungis ónothæfur mælikvarði á verðlagsbreytingar, en af því leiðir aftur, að almenningur fær með öllu óraunhæfa og falska mynd af þróun verðlagsins í landinu.

Þegar hæstv. núv. ríkisstj. tók við völdum, lýsti hún því sem einu meginviðfangsefni sínu að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Ég tel það nú út af fyrir sig ekki mestu ávirðingu hæstv. ríkisstj., þótt árangur sá, er hún hefur náð í því efni, sé ekki meiri en raun er á, því að verðbólguvandamálin hafa fleirum reynzt erfið úrlausnar. Hitt er meira ámælisvert, að flokkar þeir, sem að hæstv. ríkisstj. standa, gáfu loforð um það fyrir og eftir valdatöku sína, að dýrtíðarvandamálin skyldu leyst með úrræðum, sem ekki þyrftu að skerða, svo að neinu næmi, kjör annarra en nokkurra braskara, eins og það var gjarnan orðað í þeirra áróðri. Með því var skrifað upp á víxla, sem hæstv. ríkisstj. hefur ekki enn tekizt að innleysa og mun ekki takast. En það versta er, þegar gripið er til þess, svo að einhver sýndarárangur sjáist, að falsa svo þann eina mælikvarða, sem til er á verðlagið, að almenningur fær algerlega villandi mynd af þeirri þróun, sem er að ske.

Ég skal þessu næst víkja dálítið að þeirri hlið þessa máls, sem snýr að launþegunum, því að eðlilega eiga þeir mikilla hagsmuna að gæta í sambandi við vísitölumálin, vegna þess, hvernig kaupgjaldið er nú tengt vísitölunni.

Áður en núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum, var því mjög haldið fram í áróðri kommúnista, að efnahagsvandamálin væru ekki raunveruleg, það væri aðeins vegna þess, að með völdin færi ríkisstj., sem væri fjandsamleg launþegunum, sem gera þyrfti ráðstafanir til hjálpar útflutningsframleiðslunni, sem hefðu kjaraskerðingu í för með sér fyrir launamenn. Kommúnistar sögðu sem svo, að þessi mál væri hægt að leysa með ráðstöfunum, sem enga slíka kjaraskerðingu hefðu í för með sér, það væri hægt að afla nýrra markaða o.s.frv.

Þegar verkfallið mikla var háð vorið 1955, sögðu kommúnistar, að það væri fjarstæða, að það þyrfti að nokkru leyti að bæta framleiðslunni upp þær auknu byrðar, sem á hana voru lagðar með kauphækkunum. Þeir sögðu sem svo, að það væri aðeins vegna þess, að braskararnir í landinu færu með völdin, að til verðhækkana hefði komið, vegna þess að kaupgjaldið hafði verið hækkað um 15–20%. Við sjálfstæðismenn héldum því hins vegar fram á þessum tíma, að boginn hefði verið of hátt spenntur að þessu sinni, framleiðslan gæti ekki staðið undir þeim kauphækkunum, sem orðið hefðu, og það yrði óhjákvæmilegt, ef hún ætti ekki að stöðvast, að skila henni aftur að meira eða minna leyti þeim auknu byrðum eða þeim aukna kostnaði, sem á hana var lagður með þessum kauphækkunum. Það hefur nú komið í ljós, sem við sögðum, að fullyrðingar kommúnista um það, að framleiðslan gæti borið þessar kauphækkanir, hafa ekki staðizt, enda voru kommúnistar ekki fyrr setztir í valdastólana en þeir settu brbl. um vísitölubindinguna, þar sem árangur sá, sem náðst hafði með kauphækkununum, var að verulegu leyti tekinn aftur. Sem ábyrgur stjórnmálaflokkur studdi Sjálfstfl. þessa lagasetningu, þó að varla sé hægt að lá okkur það, að um leið leyfðum við okkur að benda á öll óheilindi og brigðmæli kommúnista í sambandi við launamálin. En sú kjaraskerðing, sem framkvæmd var með vísitölubindingunni, var þó ekki nóg. Um næstsíðastliðin áramót voru sett lög um útflutningssjóð, þar sem stórhækkaðar voru álögur á almenning, þó að þess væri að vísu gætt, að þessar auknu álögur hefðu aðeins áhrif á verð þeirra vara, sem ekki hafa þýðingu í vísitölunni. Það er enn fremur vitað, að nú standa fyrir dyrum ráðstafanir, sem enn frekari kjaraskerðingu munu hafa í för með sér.

Ég skal ekkert fullyrða um það, hvort möguleiki hefði verið á því að halda óbreyttum þeim kaupmætti launanna, sem á pappírnum hafði náðst með kauphækkununum vorið 1955. Ég tel mestar líkur á því, að svo sé ekki, Það var nauðsynlegt að skila framleiðslunni á einhvern hátt aftur því, sem of mikið hafði verið tekið af henni þá. Hitt var í rauninni meira aukaatriði, í hvaða formi þetta var gert, hvort það væri gert með sköttum, gengisbreytingu, niðurfærslu eða á annan hátt. Án þess að sagt sé, að það komi í sama stað niður, hver þessara leiða sé farin, kemur það nokkurn veginn út á eitt hvað snertir pyngju launafólks. Þess vegna er það ekki það, sem kommúnistar í sjálfu sér eru ámælisverðir fyrir, þó að kjör launþeganna hafi þannig að einhverju leyti þurft að skerða, heldur fyrir hinn ábyrgðarlausa áróður sinn fyrir verkfallið 1955, sem fleiri og fleiri sjá nú að ekki hafði við rök að styðjast, þannig að æ fleiri snúa nú baki við þeim, eins og bezt hefur komið í ljós með úrslitum bæjarstjórnarkosninga þeirra, sem nú eru nýafstaðnar. En hvað sem þessu atriði líður, skal það fyllilega viðurkennt, að þær aðstæður geta verið fyrir hendi í efnahagsmálunum, að ekki sé unnt að halda óbreyttum kaupmætti launa. Hinu eiga launþegarnir hins vegar undir öllum kringumstæðum siðferðilega kröfu á, að þeir fái að sjá, hvað af þeim hefur verið tekið.

Með fölsun vísitölunnar er kjaraskerðingin dulbúin. Því er haldið fram, að kaupmáttur launanna hafi haldizt nokkurn veginn óbreyttur, þrátt fyrir ráðstafanir í efnahagsmálum um næstsíðastliðin áramót. En það kemur fram á þann hátt, að það er aðeins sá hluti útgjalda heimilanna, sem þýðingu hefur í vísitölunni, sem helzt óbreyttur, en þetta er einmitt á kostnað þess, að aðrar vörur, sem minna gildi hafa í vísitölunni, eru hækkaðar þeim mun meira.

Það sanna í þessum efnum þarf að koma í ljós, og það er m.a. með tilliti til þess, sem þessi till. er flutt. En jafnhliða því að nauðsynlegt er þannig að mínu áliti að leiðrétta vísitöluna, þannig að sannleikurinn komi í ljós varðandi þróun verðlagsmálanna, er eðlilegt, að tekið verði til athugunar núv. vísitölufyrirkomulag í launagreiðslum. Tilgangur þess er sá að tryggja óbreyttan kaupmátt launanna, þó að verðlag hækki. Ég hef að vísu aldrei verið þeirrar skoðunar, að vísitöluuppbætur væru nokkur einhlít ráðstöfun því til tryggingar, að kjör launafólks skerðist ekki, þó að verðlag hækki. En hvað sem því líður, ætti ekki að vera neinn ágreiningur um það, að eftir að vísitalan er orðin fölsuð í þeim mæli, sem nú er, getur vísitölufyrirkomulagið ekki náð þessum tilgangi. En þar sem vísitölu- fyrirkomulagið hefur hins vegar að margra áliti óheppileg áhrif á fjárhagskerfið í heild, virðist mjög tímabært, að tekið sé til athugunar í nefnd, sem skipuð er á þann hátt, er hér er lagt til, m.a. fulltrúum atvinnurekenda og Alþýðusambandsins, hverjar leiðir komi til greina til þess að tryggja kaupmátt launanna, svo sem föng eru á, aðrar en vísitölufyrirkomulagið í sinni núv. mynd.

Þegar hæstv. núv. ríkisstj. tók við völdum, lofaði hún því, að fram skyldi fara allsherjar úttekt á þjóðarbúinu, eins og flestum mun í fersku minni. Þetta átti að ske fyrir opnum tjöldum, til þess að almenningur í landinu gæti gert sér sem bezta hugmynd um það, hvernig ástandið í efnahagsmálum raunverulega væri. Það er að vissu leyti kaldhæðni örlaganna, að sú ríkisstj., sem lofað hefur öllum öðrum ríkisstj. meira í því efni, að þessi mál skuli upplýst frá sem flestum hliðum, skuli í ríkara mæli, en nokkur önnur ríkisstj. hafa haldið leynd yfir öllum þeim upplýsingum, sem hún hefur haft yfir að ráða um efnahagsmálin.

Það hefur að vísu verið komið á fót viðamiklum nefndum til þess að gera allsherjar athugun á efnahagsmálunum og ástandi þeirra, og fjölmargir, bæði erlendir og innlendir sérfræðingar, hafa um það fjallað. En öllum þessum nál. hefur verið stungið undir stól og þau engum sýnd nema nánustu trúnaðarmönnum hæstv. ríkisstj., eins og kunnugt er. Sá eini þáttur úttektarinnar, sem komið hefur fyrir almenningssjónir, er, eins og kunnugt er, till. sérfræðinga og trúnaðarmanna hæstv. ríkisstj. í húsnæðismálunum, en eins og allir vita líka, var það ekki fyrir tilverknað hæstv. ríkisstj., að þessi þáttur úttektarinnar fékk þó að sjá dagsins ljós. En jafnframt því að haldið er þannig leynd yfir öllum þeim upplýsingum, sem mestu máli skipta í sambandi við þróun efnahagsmálanna, hefur hæstv. ríkisstj. við mörg tækifæri lýst eftir því, hvaða úrræði stjórnarandstaðan hefði á takteinum varðandi þessi mál. Það virðist nú mótsagnakennt að krefjast annars vegar till. um lausn efnahagsmálanna, jafnframt því sem haldið er leyndum öllum þeim upplýsingum, sem slíkar till. yrðu að byggjast á. Það getur þó verið, að hæstv. ríkisstj. breyti afstöðu sinni í þessum efnum, og með því að bera fram þá till., sem hér liggur fyrir, er henni gefið til þess nokkurt tækifæri, þó að í litlu sé. Því er hér hreyft að Alþingi hafi forustuna um það, að brugðið sé ljósi yfir mjög mikilvægan þátt verðlagsog efnahagsmálanna í heild.

Það er vitanlega á valdi hv. stjórnarflokka, hvað við þessa till. verður gert, og vissulega væri það í fullu samræmi við framferði hæstv. ríkisstj. í þessum málum hingað til, að þessari till. yrði ekki sinnt. En þá leyfi ég mér aftur að minna á það, að þeim mun meiri leynd sem hæstv. ríkisstj. óskar eftir að þessi mál séu hulin, þeim mun minni kröfur getur hún gert til þeirra, sem ekki hafa aðgang að nauðsynlegum upplýsingum, um, að þeir leggi fram sín úrræði og lausn þessara mála.

Ég vil svo leyfa mér að lokinni þessari umr, að leggja til, að þessari till. verði vísað til hv. allshn.