18.12.1957
Efri deild: 45. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (279)
73. mál, kosningar til Alþingis
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Þetta mál ber nú brátt að eins og fyrri daginn, þannig að þm, er ekki ætlaður tími til þess einu sinni, að þeir fái tækifæri til að flytja brtt. Ég sé það, að einu atriði hefur hv. Nd. breytt, og er nú vandséð, hvað frv. verði miklu skýrara með þeim hætti. Í frv. mun hafa staðið, að bannað sé að hafa uppi flokksmerki og önnur slík auðkenni, m.a. á næstu húsum og í aðliggjandi götum, en hefur nú verið breytt í orðin „í næsta nágrenni“, og var svo að skilja á hæstv. fjmrh., að þar með væri komið svo skýrt og afgerandi orðalag, að vafi ætti ekki að geta komið þar til. Því fer náttúrlega fjarri, að þetta sé öllu skýrara. En ef til vill hefur verið meiningin að forða vissum væntanlegum félagsheimilum, sem standa stjórnmálaflokkunum nærri, frá því, að þau kynnu að lenda undir þessu ákvæði. — Ég hafði hugsað mér að flytja hér brtt. nokkrar við frv. og vil fara fram á það, að nokkurt hlé, ekki nema nokkrar mínútur, yrði veitt til þess, að auðið yrði að ganga frá þeim brtt.
Umr. frestað um stund, en var fram haldið síðar á fundinum.