23.10.1957
Sameinað þing: 5. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í D-deild Alþingistíðinda. (2893)

14. mál, skyldusparnaður

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Það er ekkert nema von, að hv. 2. þm. Eyf. skilji ekkert upp eða niður í framkvæmd þessa máls, því að hann hefur áreiðanlega ekkert sett sig inn í það. Hann stendur nú í þeirri meiningu, að atvinnurekendur eigi að halda skyldusparnaðarfénu eftir. Það er alger misskilningur, samkv. þessari reglugerð. Og skal ég ekkert lá honum það, þó að hann hafi ekki gert sér glögga grein fyrir framkvæmdinni alveg að óathuguðu máli. Hann sagði, að hann og hans flokksbræður hefðu gert sér vonir um það, að skyldusparnaðarféð gæti skilað tekjum til húsnæðismálastjórnar hálft árið 1957. Þetta er alveg rétt. Og þetta hefur einmitt verið tryggt að fullu með setningu þeirrar reglugerðar, sem hér hefur verið sett þann 1. október.