11.11.1957
Sameinað þing: 12. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í D-deild Alþingistíðinda. (2911)

28. mál, togarakaup

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Það hefur augljóslega ekki mikla þýðingu að spyrja nánar um kjarna þessa máls. Svörin við þeim spurningum verða sízt skýrari, nema síður sé, eftir því sem lengra líður á og fastar er eftir gengið.

Það hefur verið minnzt á það hér af hæstv. ráðh., að þess væri engin von, að farið væri að ræða um úthlutun togaranna. Nú vil ég benda hæstv. ráðh. á það, að þótt vitanlega sé ekki hægt að tala um úthlutun togaranna, fyrr en ákveðið er að smíða þá, og það var nú sannast sagna álitið, að það mundi ekki hafa verið farið á stúfana með heimildarfrumvarp ríkisstj. til handa, nema því aðeins að hún hefði nokkurn veginn vissu um það og hefði þegar ákveðið að láta smíða þá, hvar sem það yrði gert, þá er því nú samt þannig háttað, að það getur verið mjög bagalegt að hafa ekki einhverja hliðsjón af því saman, úthlutun bátanna annars vegar og togaranna hins vegar. Og ég geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. sé kunnugt um það, og ég þekki það af eigin reynd, að í sambandi við úthlutun hinna austur-þýzku báta, a.m.k. í einu tilfelli, hefur verið um það rætt af þeim opinberum aðilum, sem með það mál hafa að gera, að ef viðkomandi sveitarfélag vildi leggja áherzlu á að fá þetta skip, mundi ekki vera gert ráð fyrir, að það fengi togara, en hins vegar hefur ekki fengizt neitt ákveðið um það, hvort byggðarlagið fengi þá togara. Af þessu sést ljóslega, að það getur verið mjög bagalegt og í rauninni ógerlegt fyrir sveitarfélög, sem eru að hugsa um atvinnuuppbyggingu á þessu sviði með hliðsjón af þessum bátum og togurum, að geta ekki fengið einhver svör um það, því að ef í þessu tilfelli yrði sleppt bátnum, þá er sem sagt engin trygging fyrir því síðar, að togarinn fáist, og þannig getur þetta verið í fleiri tilfellum. Ég minnist aðeins á þetta sem dæmi þess, að það getur auðvitað verið mjög bagalegt, að ekki sé hægt að taka nokkurn veginn ákvarðanir um þetta hvort tveggja samtímis, enda hefur því verið yfir lýst af hæstv. ríkisstj., að það sé einmitt ætlunin, að bátarnir fari til þeirra staða, sem togarar ekki fara á, og því erfitt að aðgreina þessa úthlutun, því að úthlutun togaranna og bátanna hlýtur að verða framkvæmd nokkuð með hliðsjón af hvort öðru.

Hæstv. ráðh. hefur, — að ég held mig rétt hafa heyrt, eða réttar sagt ekki heyrt, — ekki ennþá skýrt frá því, hvort ríkisstj. hafi ákveðið nú að láta smíða alla hina 15 togara eða ekki. Það var misskilningur hjá honum áðan, að spurt hefði verið um það, hvort það ætti að smíða þá alla í sama landi. Það var spurt um það, hvort ríkisstjórnin hefði ákveðið að smíða nú alla togarana eða gera nú samninga um smíði þeirra. Og í sambandi við það ætti þó að vera auðið fyrir hæstv. ráðherra að upplýsa, — þó að hann telji sér ekki fært að upplýsa nákvæmlega eða tilgreina nákvæmlega ákveðin lönd, sem verði samið við, eða ákveðnar skipasmíðastöðvar, þá ætti þó að vera hægt að upplýsa í því sambandi, hvort þeir lánsmöguleikar, sem hæstv. ráðh. minntist á, væru til staðar í fleiri löndum, en einu.

Hæstv. ráðh. sagði í sinni ræðu hér áðan, að það væri undarlegt, að menn teldu, að það væri allt í óvissu í þessu máli, þar sem ríkisstj. hefði nú tekið ákvörðun um að láta smíða skipin. Ég held nú sannast sagna, að það sé ekki fjarri lagi samt að halda því fram, að æði margt sé í óvissu. Það er ekki hægt að upplýsa neitt um það, við hverja verði samið, ekki hægt að upplýsa neitt um það, hvar tiltækilegt verði talið að taka lán, eða yfirleitt, hvort viðunandi lánstilboð liggja fyrir. Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það, hvert þessi skip eiga að fara, og auðvitað ekki þá heldur neitt vitað um það, hvort þau koma til landsins eftir 3, 4, 5 eða 10 ár, því að allt þetta virðist enn vera í fullkominni óvissu. Vitanlega hlýtur ríkisstj. að sitja inni með einhverja vitneskju í þessu efni, sem hún telur ekki fært að skýra hér frá, enda upplýst af hæstv. ráðh., að svo sé. En fyrir öllum hv. þm. held ég að málið hljóti að liggja þannig einfaldlega, að um öll þau atriði, er höfuðefni skipta, sé allt í fullkominni óvissu, hvernig verði með framkvæmdir í þessu stóra máli, sem átti að verða nokkurs konar flaggskip hæstv. ríkisstj., þegar hún settist í ráðherrastóla.