11.11.1957
Sameinað þing: 12. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í D-deild Alþingistíðinda. (2912)

28. mál, togarakaup

Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):

Það dynja nú alltaf á nýjar og nýjar fsp., sem kannske er óþarfi að vera að teygja tímann með að svara.

Hv. 2. þm. Eyf. minntist hér á, að það væri bagalegt fyrir ýmsa staði að vita ekki um úthlutun á þessum togurum jafnhliða úthlutuninni á bátunum.

Út af fyrir sig kann það að vera, að það getur staðið þannig á. En hitt gefur líka alveg auga leið, að það er alveg óhugsandi að úthluta skipum, sem maður veit ekki nákvæmlega um hvað kosta eða hvaða kjör eru á. Ég er alveg fullviss um það, að þeir aðilar a.m.k., sem verða að gera sér það að góðu að borga þessi 10–15% af andvirði skipanna, vilja ekki semja um það fyrir fram að taka skip, sem þeir vita ekkert um hvað kostar, ekki einu sinni, hvar verður byggt, o.s.frv. Það gefur alveg auga leið, að það er ekki eðlilegt að úthluta svona skipum, fyrr en samningur hefur formlega verið gerður. Og það hefur aldrei verið gert hér áður, svo að mér sé kunnugt um.

Hins vegar vita flestir þeirra það, sem áhuga hafa haft fyrir þessum kaupum og hafa verið að spyrjast fyrir um það sem væntanlegir kaupendur, — þeir hafa fylgzt allvel með því, hvernig ætlað er að hafa þessi skip, hvernig útboðslýsing hefur verið á þeim, og munu fylgjast með því á hverju stigi málsins líka, eftir því sem málinu þokar áfram, hvernig skipin verða.

Þá spurði þessi hv. þm. um það, hvort þeir lánsmöguleikar, sem minnzt hefði verið hér á, væru fyrir hendi í aðeins einu landi eða fleiri, en einu landi.

Þessir lánsmöguleikar hafa komið fram í tilboðum frá fleirum, en einu landi og verða vitanlega athugaðir jafnhliða því sem gengið verður nú til samninga við þessar einstöku skipasmíðastöðvar.

Ég segi það, að það er með öllu ástæðulaust að halda því fram, að kjarni þessa máls liggi nú eitthvað hulinn fyrir mönnum. Kjarni málsins liggur einmitt fyrir alveg augljós. Ríkisstj. hafði fengið heimild til þess frá Alþingi að semja um kaup á þessum skipum. Ríkisstj. hefur gefið yfirlýsingu nú um það, að hún hafi tekið ákvörðun um að semja um smíðina samkvæmt þessari heimild, og hún hefur einnig gefið hér yfirlýsingu um það, að það hefur farið fram öll undirbúningsvinna og tekin þegar ákvörðun um stærð og gerð skipanna, og búið er að tryggja það, að hægt er að fá skipin smíðuð á viðhlítandi tíma. Hins vegar er nú kominn tími til þess að taka upp endanlega samninga við skipasmíðastöðvarnar sjálfar. Hún hefur einnig tryggt, að nægilega mikil lán að hennar dómi eru fyrir hendi, til þess að samningar um smíðina þurfi ekki að dragast.

Þetta álít ég vera kjarna málsins, og þetta er það, sem skiptir mestu máli í sambandi við þetta mál.