18.12.1957
Efri deild: 45. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

73. mál, kosningar til Alþingis

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Hv. 1. þm. N-M. (PZ) gerði tilraun til að svara nokkuð lýsingu minni á kosningaaðförum Alþfl.-manna og framsóknarmanna á Vestfjörðum og þá fyrst og fremst á Ísafirði. Taldi hann, að Ísfirðingar hefðu numið það hátterni, er ég lýsti, af Reykvíkingum. Ég skal játa það, að ég er kunnugri kosningum og aðferðum við þær úti á landi, en hér syðra. En ég hef þó átt þess kost að vera áhorfandi og þátttakandi í nokkrum kosningum hér í Reykjavík. Og ég hef aldrei séð hér neitt líkar aðfarir þeim, sem framsóknarmenn og Alþfl.-menn á Vestfjörðum hafa haft í frammi að því er snertir ágang við kjósendur og allt að því kúgun manna á kjörstað, veikra, lasburða og gamalla.

Hv. 1. þm. N-M. komst ekki hjá því að nefna greinilegt dæmi um það, hversu miklu mannúðlegri og skynsamlegri aðferð hefur verið höfð hér um kjörsókn aldraðs fólks heldur en á þeim stað, sem ég lýsti, og heldur en viðast hvar annars staðar. Fyrir allmörgum árum mun hafa verið sett upp sérstök kjördeild á elliheimilinu hér í Reykjavík, þannig að gamla fólkið þyrfti ekki að fara út úr heimkynnum sínum í misjöfnum veðrum um hávetur til þess að neyta atkvæðisréttar síns. Þetta hefur verið gert undir forustu sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjavíkur, sem töldu mannúðlegra og skynsamlegra að greiða heldur götu aldraðs fólks og fólks yfirleitt til þess að neyta atkvæðisréttar síns, heldur en skerða rétt fólksins, setja honum þrengri skorður og takmörk, eins og gert er í því frv., sem hér liggur fyrir.

Og bæjarstjórn Reykjavíkur hefur haldið áfram á þessari braut. Hún hefur svarað þessu frv, m.a. með því að ákveða að fjölga kjörstöðum í bænum um tvo eða þrjá við næstu bæjarstjórnarkosningar og væntanlega þá við næstu alþingiskosningar einnig. Í þessu felst allt önnur stefna, en í frv. hæstv. ríkisstj. Sú stefna, sem í þessum ráðstöfunum felst, er að greiða götu fólksins til þess að neyta þess réttar, sem helgastur hefur verið talinn meðal lýðræðisþjóða, kosningarréttarins,

Hv. 1. þm. N-M. lýsti næst á dramatískan hátt því, er hann mætir vanheilum manni, fávita, eins og hann orðaði það, á kjörstað í Reykjavík Og ég verð að segja það, að ég óska hv. 1. þm. N-M. til hamingju með það, hversu vel og trúlega hann lék þennan vesalings manns, sem hann mætti þarna. Því miður er ég ekki eins viss um það, að segulbandið hafi haft eins gott tækifæri til þess að staðreyna leikarahæfileika hv, þm. og við, sem hlýddum á orð hans og æði. (Forseti: Segulbandið hefur verið prófað vísindalega og reynzt ágætt.) Segulbandið tekur allt, sem sagt er, en fyrir hinu hef ég ekki heyrt færð rök, að það nemi látbragð manna, nema þá hæstv. forseti hafi nýlega gert ráðstafanir til þess að fullkomna þetta ágæta tæki, og vil ég engan veginn fyrir það synja, að svo kunni að hafa verið gert.

En í sambandi við þessa sögu um hinn andlega vanheila manns, sem hv. þm. mætti á kjörstað og hann taldi vera fáránlegt að mæta á slíkum stað, slíkir menn ættu ekki þar að koma, vil ég spyrja hann: Er það þá bannað í þessu frv., sem hæstv. stjórnarflokkar segja að eigi að gera kosningalögin fullkomnari, að slíkir menn neyti atkvæðisréttar síns? Ég hef ekki tekið eftir því ákvæði. Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fsp. til hv. 1. þm. N-M., hvort hann telji að í þessu frv. felist eitthvert bann við því, að slíkir menn komi á kjörstað og neyti atkvæðisréttar síns, ef þeir eru löglega á kjörskrá? Ég vænti, að hann svari þessari fyrirspurn.

Hv. þm. sagði enn fremur, að við sjálfstæðismenn teldum, að það gengi sérstaklega út yfir flokk okkar, ef dregið væri úr áróðri í sambandi við kosningar, en þetta þýddi það, sagði hv. þm., að við viðurkenndum hreinlega, að mest væri af áhugalausu og skoðanalitlu fólki í Sjálfstfl. Þessi ályktun er engan veginn rétt dregin hjá hv. þm. Það, sem við höfum sagt, er það, að líklegt sé, að sú takmörkun kosningarréttarins, sem felst í þessu frv., bitni mest á stærsta flokki þjóðarinnar, og í því þarf ekki að felast það, að innan vébanda hans sé mest af áhugalausu eða skoðanalitlu fólki, Þetta leiðir aðeins af því, að þegar kosningarrétturinn er almennt takmarkaður, er það bara reikningsdæmi, sem hver maður skilur, að flest fólk úr stærsta stjórnmálaflokknum hlýtur að verða fyrir þeim takmörkunum, hvort sem það er áhugasamt eða áhugasamt ekki um opinber mál. Við skulum segja t.d., að sú breyting kosningalaga, að ekki mætti kjósa nema til kl. 11, bitnaði á allmörgum sjómönnum, sem ákaflega miklar líkur eru til, ekki fyrst og fremst hér í Reykjavík, heldur í hinum stærri verstöðvum úti um land. Það er nokkurn veginn öruggt mál, að Sjálfstfl. mundi bíða mest tjón við þetta allra flokka, vegna þess að stærsti hópurinn af sjómönnum er innan vébanda hans.

Ég vænti, að hv. 1. þm, N-M, sjái, að þessi orð eru fyllilega rökstudd. Annars er það auðvitað þannig, að allir stjórnmálaflokkar hafa mikinn áhuga fyrir því, að kjörsókn sé góð. Ég býst við því, að hv, þm. N-M. hafi áhuga fyrir því við alþingiskosningar í sínu kjördæmi, að sem flestir kjósendur komi á kjörstað. Að vísu mun nú innan á honum einhvers staðar leynast ósk um það, að það verði nú frekar hans menn, sem komi á kjörstað, heldur en andstæðingar hans. En engu að siður geri ég ráð fyrir því, að hann og allir þeir menn, sem við stjórnmál yfirleitt fást, telji það æskilegt, að sem flestir kjósendur sýni áhuga og komi á kjörstað og neyti kosningarréttar síns.

Engu að síður er þetta frv. tilraun til þess að draga úr kosningaþátttöku fólks og þá fyrst og fremst á þeim staðnum, þeim eina stað á Íslandi, þar sem erfitt er um vik að fylgjast með því, hverjir hafa kosið og hverjir ekki. Úti um allt land í hinum litlu kjördæmum er ekkert auðveldara þrátt fyrir bannákvæði þessa frv. um að skrifa upp nöfn inni á kjörstaðnum en að fylgjast með því, hverjir hafi kosið, daginn út og daginn inn, enda hefur það líka verið hreinlega viðurkennt af þeim, sem að þessu máli standa, að þetta ákvæði sé fyrst og fremst „aktuelt“ hér í Reykjavík. En hvers vegna var ekki hægt að bíða með þessa breytingu, sem einhverjir hv, stjórnarliða höfðu áhuga fyrir, eftir heildarendurskoðun kosningalaganna, sem nú stendur yfir? Hv. stjórnarflokkar hafa ekki enn þá svarað þeirri spurningu, hvaða knýjandi nauðsyn hafi verið fyrir hendi í þessum efnum, önnur en sú, að þeir sjálfir voru uggandi um aðstöðu sína eftir þó að hafa aðeins setið rúmlega eitt ár í ríkisstj. og eftir að hafa verið staðnir að því að vanefna jafnmikið af loforðum sínum og raun ber vitni um.

Samkvæmt lögum eiga bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í kaupstöðum og þorpum, sem hafa ákveðinn fjölda íbúa, að fara fram um miðjan vetur. Ég tel það mjög óheppilegt, að þessi munur skuli vera gerður á um þingkosningar og bæjar- og sveitarstjórnarkosningar. Enda þótt veður hafi meiri áhrif á kjörsókn og aðstöðu manna til að neyta atkvæðisréttar síns úti um sveitir, er veðurfari þannig háttað í okkar landi, að það getur hæglega haft mikil og örlagarík áhrif á úrslit kosninga í kaupstöðum og sjávarþorpum einnig. Þess vegna teldi ég það langsamlega eðlilegast, að bæjar- og sveitarstjórnarkosningar færu fram á svipuðum tíma og alþingiskosningar, ekki á sama ári, heldur á sama árstíma. Allt bendir til þess, að þegar þessi mál verða athuguð í rólegheitum og með það fyrir augum að finna skynsamlegar leiðir til úrbóta á gildandi lögum og reglum, þá muni einmitt þessu atriði verða breytt og horfið að því ráði að láta bæjar- og sveitarstjórnarkosningar fara fram á miðju sumri, eins og tíðkast um alþingiskosningarnar nú. Það getur hæglega verið svo vont veður, meira að segja hér í Reykjavík, þar sem götur eru beztar og samgöngur greiðastar, að stór hluti kjósenda sé hindraður í því að neyta atkvæðisréttar síns að vetrarlagi. Til þess þyrfti ekki nema stórhríðarveður og storma.

Ætla mætti því, að þeir menn, sem svo mikinn áhuga hafa fyrir að „friða kjördaginn“ og bæta aðstöðu kjósendanna, snerust ekki gegn till. um það að draga úr veðuráhættunni í sambandi við kosningar. En það hefur þó gerzt nú hér á hv. Alþingi. Fluttar hafa verið till. um það, að þegar kosningar færu fram að vetrarlagi og ef yfirkjörstjórn í kaupstöðum teldi, að óveður hafi verulega hindrað kjörsókn, geti hún, áður en kjörfundi er slitið, ákveðið, að kjördagar skuli vera tveir; sama rétt hafi undirkjörstjórnir í einstökum kjördeildum utan kaupstaða til að ákveða, að kjördagar skuli vera tveir.

Þessa brtt. hefur hv. þm. V-Sk. flutt hér og rökstutt, svo að ég þarf ekki að fara um hana mörgum orðum, En till. samhljóða þessari eða mjög svipaða felldi hv. stjórnarlið í hv. Nd. Þetta er því einkennilegra, sem einmitt þessir sömu flokkar hafa áður tekið þátt í því við einstakar kosningar að ákveða, að kjördagar skuli vera tveir. Við kosningarnar haustið 1942 var heimilt að kjósa í tvo daga. Sú heimild var ekki notuð alls staðar, vegna þess að veður var sæmilegt, en kosningarnar stóðu í tvo daga. Nú, þegar borin er fram till. um þetta í sambandi við þetta frv., finnst hv. framsóknarmönnum sjálfsagt að fella hana.

Hæstv. núverandi ríkisstj. hefur í málefnasamningnum heitið því ásamt mörgu öðru, að lokið skuli endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ég vildi mega spyrja í sambandi við þessa breytingu á kosningalögunum, sem er nú allskylt ýmsum ákvæðum stjórnarskrár: Hvað líður efndum á þessu loforði? Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað fyrr, hér í þessum umr., að því er mér er bezt kunnugt um. Og sumir menn a.m.k. eru farnir að óttast, að efndir á þessu loforði muni ekki líklegar til þess að verða greiðari, en í mörgum öðrum málum stjórnarinnar.

Ég heyrði hæstv. fjmrh. segja, að mig minnir í gær, í hv. Nd., að í ljós hefði komið, að almenningur í landinu væri fylgjandi þessu frv. Ég vildi nú mega spyrja hæstv. fjmrh., þó að hann sé að vísu ekki hér viðstaddur: Í hverju hefur sá stuðningur almennings við þetta frv. komið í ljós? Hefur hann komið í ljós í yfirlýsingum á mannfundum, þar sem lýst væri yfir stuðningi við stefnu þessa frv.? Ég hef ekki heyrt getið um slíkar yfirlýsingar, ekki á einum einasta fundi, sem þó hafa verið margir haldnir á hverjum degi og í hverri viku í okkar þjóðfélagi. Hefur stuðningur almennings við þetta frv, þá t.d. komið í ljós í því, að hv. Alþingi hafi verið sendar áskoranir frá meira og minna viðtækum félagsheildum, hér í Reykjavík eða utan af landi? Ég vildi mega beina þeirri fsp. til hæstv. forseta þessarar hv. d., hvort hann hafi birt hv. þd. eina einustu slíka fundaráskorun. Ég hef ekki orðið var við það. Ég hef ekki orðið var við hinn allra minnsta vott þess, að þetta frv., sem sannanlega miðar að þrengingu kosningarréttarins, ætti hljómgrunn meðal almennings. Ég fæ þess vegna ekki betur séð, en ummæli hæstv. fjmrh, séu fleipur eitt, gersamlega úr lausu lofti gripin.

Annars verð ég að segja það, þó að ég ætli mér ekki að fara að deila á hæstv. fjmrh., sem ekki er hér viðstaddur, að mér virðist það vera allt að því kaldhæðni örlaganna, að einmitt hann hefur valizt til forgöngu um þetta frv., sem miðar, eins og ég sagði, að skerðingu hins almenna kosningarréttar. Hæstv. ráðherra hefur á undanförnum árum þótzt vera og að sumu leyti verið einn skeleggasti baráttumaðurinn gegn kommúnistum. En hann gengur nú fram fyrir skjöldu með þeim við að draga úr þeim réttindum, sem í öllum löndum eru versti óvinur einræðisins og ofbeldisins og þar með kommúnismans, hinum almenna rétti fólksins til þess að neyta atkvæðis síns á sem frjálslegastan hátt. Áður hefur þessi hæstv. ráðh. kennt kommúnistum um flest það, sem aflaga fer í íslenzkum efnahagsmálum. Nú segir þessi sami hæstv. ráðh., að engan vanda sé hægt að leysa nema með kommúnistum. Mér dettur í hug þjóðsagan um Trölla-Láfa. Tröll og óvættir þjóðtrúarinnar numdu mennskan dreng burt úr byggðum upp til fjalla og teygðu hann svo og toguðu, að drengurinn ærðist, og þegar hann var spurður að því, þegar mennskir menn komust í kallfæri við hann, á hvað hann tryði, þá trúði hann á „trunt, trunt og tröllin í fjöllunum“. Mér er næst að halda, að eitthvað svipað hafi farið fyrir hæstv. fjmrh. Hann hefur lent í höndum pólitískra óvætta, þar sem kommúnistar eru, og þeir hafa teygt hann svo og togað, að í staðinn fyrir það, að hæstv. ráðh. hélt fram, að flest af því, sem aflaga færi í íslenzkum efnahagsmálum, væri kommúnistum að kenna, þá segir hann nú, að engan vanda sé hægt að leysa nema með kommúnistum. Og í staðinn fyrir það, að hann mælti fyrir því, að kosningarréttur og almenn mannréttindi væru í heiðri höfð, gengur hann nú fram fyrir skjöldu með kommúnistum til þess að takmarka þessi réttindi og heldur því fram, að það sé hið eina sáluhjálplega fyrir íslenzkt lýðræði að stytta kjördaginn og bæta aðstöðu kommúnista í höfuðborginni í baráttunni við stærsta lýðræðisflokk þjóðarinnar.

Það má hver lá mér, sem vill, þó að mér verði á að minna á söguna um Trölla-Láfa í sambandi við þessa atburði. (Gripið fram í: Þetta er nú ekki beinlínis á dagskrá.) Hæstv. forseti, veit það, að ég hef haldið mér einmitt í sambandi við þessa samlíkingu við sjálft frv. og afstöðu hæstv. fjmrh. til þessa máls og til annarra skyldra mála. En það er, eins og ég sagði, engu líkara en þeir menn í lýðræðisflokkum, sem berjast ákafast fyrir þessu máli, trúi nú í pólitík á „trunt, trunt og tröllin í fjöllunum.“

E.t.v. sést það betur á brtt. þeirri, sem hæstv. fjmrh. flutti í Nd., en nokkru öðru, hversu einstök tækifærisstefna ræður öllu um framkvæmd þessa máls. Brtt, hæstv. fjmrh., sem samþ. var í Nd., miðar að því að tryggja það, að flokkur hans, Framsfl., geti notað með fullum árangri, m.a. flokksmerkt hús sitt, sem er í nágrenni við stærsta kjörstaðinn hér í Reykjavík. Það þarf að breyta þessu frv. hæstv. ríkisstj., til þess að hægt sé að hengja mynd af Eysteini Jónssyni, hæstv. fjmrh., utan á íshúsið fyrir sunnan fríkirkjuna. En þegar bent er með gildum rökum á margvíslega agnúa á þessu frv., margvíslegar mótsagnir, sem í því felist, þá er ekki hægt að breyta stafkrók. En það verður að breyta frv, og senda það aftur til hæstv. Ed., til þess að hægt sé löglega að hengja merki Framsfl. utan á samkomuhús hans hér í Reykjavík.

Ég segi: Eitt með öðru ber þetta greinilega vott um þá einstæðu hentistefnu, sem hér er að verki. Þannig er allt miðað við stundarhagsmuni einstakra pólitískra flokka í sambandi við þá breytingu á kosningalögunum, sem hér liggur fyrir. Þar er hvergi gerð tilraun til þess að komast að varanlegri niðurstöðu um skynsamlegar reglur, sem átt geti þátt í því að treysta grundvöll íslenzks lýðræðis í framtíðinni. Réttlætið er algerlega aukaatriði. Pólitísk misnotkun þess valds, sem í dag liggur í höndum svokallaðrar vinstri stjórnar, er aðalatriðið.

Ég vil ljúka máli mínu að þessu sinni með því að segja það sem mína skoðun, að slíkt mál sé hvorki vænlegt til aukins fylgis við þá, sem beita sér fyrir því, né sigurs, og ég treysti það á heilbrigða dómgreind almennings, ekki aðeins hér í Reykjavík, heldur og um land allt, að öll vinnubrögðin í sambandi við flutning þessa máls og offorsið við að knýja það í gegnum þingið muni verða enn einn naglinn í hina pólitísku líkkistu vinstri stjórnarinnar.