02.06.1958
Sameinað þing: 50. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (2988)
Almennar stjórnmálaumræður
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti, góðir Íslendingar. Það sannast af orðum sumra ræðumanna hér á undan, að þegar skortir rök, grípa menn til hávaðans og stóryrðanna. Þetta sannar enn einu sinni glöggskyggni íslenzkrar alþýðu, sem bjó til orðtakið: „Það bylur hæst í tómri tunnu.“ En annars ætla ég ekki að elta ólar við ýmsar firrur stjórnarandstöðunnar, en reyna að gera nokkra grein fyrir málum almennt. Þó get ég ekki með öllu gengið fram hjá helztu rökblekkingunum, sem reynt hefur verið undanfarið að beita gegn ríkisstj.
Það, sem einkennt hefur ræður hv. þm Sjálfstfl. undanfarið um efnahagsmálin, hefur verið og er, að þeir hafa ekkert sjálfir til málanna að leggja, ekki eina einustu till. Í mesta vandamáli þjóðarinnar, ekki eitt orð um það, sem flokkur þeirra vill gera. Ég fullyrði, að naumast mun á byggðu bóli finnast stjórnarandstaða fjölmenns stjórnmálaflokks, sem engar till. hefur fram að bera í vandamálum þjóðar sinnar.
Grundvallarregla þingræðis og lýðræðis er sú, að ríkisstj. leggi fram till., en stjórnarandstaðan geri a. m. k. í stærstu málum grein fyrir því, hvað hún vill gera. Síðan er hvort tveggja rökrætt fyrir opnum tjöldum, og að því búna dæmir þingið og þjóðin, þótt síðar verði. Þessi regla hefur að vísu verið brotin sums staðar, nú siðast um árabil í Frakklandi með þeim afleiðingum, sem við blasa og ekki þarf að ræða hér.
En hver er ástæðan til þess, að Sjálfstfl. brýtur á þennan hátt almennar þingræðisreglur? Það er til þess að geta leikið tveim skjöldum. Það er til þess að geta komið betur við neikvæðu, ábyrgðarlausu skrumi, sem hann álítur líklegast til þess að halda kjósendafylgi.
Hv. þm. Björn Ólafsson sagði það raunar skýrt, að vísu með óbeinum orðum, hver ástæðan væri. Hann sagði hér á Alþ. nýlega, að allir flokkar vildu leysa efnahagsmálin, en enginn þyrfti að ímynda sér, að það væri framkvæmanlegt, án þess að það hefði í för með sér nokkurn sársauka í bráð. Hér hafa menn skýringuna. Til þess að útflutningsframleiðslan stöðvist ekki, verður að flytja til hennar fjármagn, en þetta fjármagn verður einhvers staðar að taka. Til þess að valda ekki óánægju hjá neinum, vill Sjálfstfl. ekki gera till. um, hvar eigi að taka þessa peninga. Til þess að geta alið á óánægjunni hjá öllum, kallar hann tilfærsluna drápsklyfjar á almenning, en á sama tíma elur hann á því með öllu móti, að útflutningsframleiðslan fái of lítið. M. ö. o.: útflutningsframleiðslan fær of lítið, en samt er tekið of mikið handa henni með álögum.
Þessi málfærsla dæmir sig sjálf. Sjálfstfl. finnur, og það fundu menn í ræðunum hér á undan, og það sannast enn, að „í sérhverri ásökun afsökun var, sem eitri í kaleikinn bætt.“ Sjálfstfl. finnur það sjálfur undir niðri, að hann mun hjá mörgum hljóta ámæli af þessari málfærslu. Þess vegna reynir hann að tína ýmislegt til sér til varnar, og vörnin er helzt sú, að vegna þess að ríkisstj. láti ekki sjálfstæðismönnum í té nægilegar upplýsingar, helzt úttekt á efnahagsmálaástandinu, geti þeir ekki gert neinar till., til þess vanti þá algerlega sérfræðilegt vit og sérfræðilega þekkingu.
Þegar stjórn Ólafs Thors var við völd, lét hann árið 1955 fjóra hagfræðinga gera álitsgerð um efnahagsmál. Andstæðingarnir fengu ekkert að vita um niðurstöður þessa álits, því síður að sjá það. Við stjórnarsinnar fengum að lesa það sem algert leyndarmál. Síðan var það heimtað af okkur. Og þegar ég kom í stjórnarráðið, fundum við eftir langa leit tvö eintök af þessu, upplagið virðist hafa verið eyðilagt og eintök þessi komizt undan af vangá. Þannig voru vinnubrögðin þá hjá vandlæturunum nú. En núv. ríkisstj. hefur látið fjölmenna n. frá stéttasamtökunum fylgjast nákvæmlega með, jafnframt því sem skýrslur hafa verið gerðar um efnahagsástandið. Núverandi stjórn afhenti stjórnarandstöðunni efnahagsmálafrv. með grg., áður en það var lagt fram á Alþ., og gerði jafnframt ráðstafanir til þess, að sérfræðingurinn, sem aðallega vann að málinu, gæfi stjórnarandstöðunni allar þær upplýsingar, sem hún bæði um. Síðan er langur tími liðinn, án þess að þetta hafi verið notað að nokkru ráði.
Fyrirsláttur Sjálfstfl. er auðvitað blekkingar einar, því að hvernig í ósköpunum á flokkurinn að geta beitt sér af miklum móði gegn frv. ríkisstj., gerðu skv. upplýsingum sérfræðinga, fyrst hann segist sjálfur ekki hafa sérfræðilega þekkingu til þess að gera neinar till. sjálfur, af því að hann hafi engar sérfræðilegar upplýsingar fengið frá ríkisstj.? Sjálfstfl. er með þessu búinn að lýsa yfir því, að hann er eins og prófdómari, sem á að gefa manni, sem er að taka próf, einkunn fyrir frammistöðuna og segir um leið og hann gefur einkunnina: Ég kann að vísu ekkert í þessari grein og hef þar enga sérþekkingu. — Hver tæki mark á einkunnargjöf slíks prófdómara? En þetta er það, sem Sjálfstfl. hefur verið að basla við að skýra fólki frá undanfarið, og með því hefur hann lýst yfir, að ekkert mark sé takandi á aðfinnslum hans, því að sá, sem játar, að hann hafi ekki þekkingu til að gera till., játar um leið, að hann hafi ekki vit á að finna að.
Auðvitað eiga sjálfstæðismenn aðgang og hann greiðan að sérfræðilegum upplýsingum um efnahagsmál þjóðarinnar. Hv. alþm. Ólafur Björnsson, prófessor í hagfræði við háskólann, einn af þm. flokksins, hefur samið flestar álitsgerðir um efnahagsmál frá 1946 til 1956, meðan sjálfstæðismenn voru í ríkisstj. Hann á greiðan aðgang að upplýsingum hjá hagfræðideild Landsbankans, hagdeild Landssambands ísl. útvegsmanna, Fiskifélaginu o. fl. Það má því öllum vera ljóst, að ástæðurnar fyrir því, að sjálfstæðismenn gera engar till., eru þær einar, sem ég hef áður greint,
En þess vegna fer ég svo mörgum orðum um þetta atriði, að ég álít, að kjósendur þurfi að gera sér ljóst, að þarna er um þjóðhættuleg vinnubrögð að ræða af hálfu stjórnarandstöðunnar, og þeir verða að láta Sjálfstfl. vita, að eftir þessu er tekið.
Ég mun nú gera nokkra grein fyrir viðhorfinu í efnahagsmálum og minnast fyrst örfáum orðum á gang þeirra mála undanfarin ár.
Einn eftirminnilegasti atburður, sem skeð hefur á Íslandi, gerðist árið 1946, þegar stjórnað hafði verið þannig í mesta góðæri, að útflutningsframleiðsla þjóðarinnar hafði verið gerð gjaldþrota. Það skeði á jólaföstunni 1946, að ríkissjóður Íslands varð að taka ábyrgð á töpum útflutningsframleiðslunnar. Töpin voru þjóðnýtt og hafa af ástæðum, sem síðar verða nánar greindar, vaxið árlega síðan. Sumir sjálfstæðismenn höfðu þá beinlínis prédikað blessun verðbólgunnar og það í sama mund og hún var að gera alla útflutningsframleiðsluna gjaldþrota 1946. Á Alþingi 1946 sagði þáverandi forsrh., Ólafur Thors, að dýrtíðin væri heppileg leið til þess að dreifa þjóðarauðnum meðal þegnanna, þótt hvert mannsbarn ætti nú að vita, að hið gagnstæða er staðreyndin. Talað var um blóðþrýstinginn í efnahagsmálum, sem þyrfti að vera hæfilegur. Ef dýrtíðin kæmist á hættulegt stig, þyrfti bara að gera réttar ráðstafanir á réttu augnabliki, það var pennastrikið fræga.
Ég hygg, að hv. alþm. Ólafur Thors sé eini forsrh. í heiminum, sem hefur prédikað blessun dýrtíðarinnar. Þetta minnir í sannleika sagt á framferði kuklara, sem héldu sig vera kunnáttumenn og þjóðsögur segja að vakið hafi upp drauga, síðan ekki ráðið við uppvakningana og ekki kveðið þá niður. Uppvakningar þessir urðu svo að meinvættum í stórum byggðarlögum, hvimleiðum fylgjum, sem minntu á sjálfbirgingsskap og vanhyggju kuklaranna, og það versta við verðbólgudrauginn er, að hann er uppi með þjóðinni til þessa dags. Eftir að þetta ástand var kallað yfir þjóðina, hafa styrkirnir til útflutningsframleiðslunnar sífellt hækkað.
Þau lög gilda hér í landi, að kaupgjald og verðlag hækkar sjálfkrafa í sambandi við minnstu hækkun framfærsluvísitölu. Sérfræðingar, innlendir og erlendir, hafa sýnt fram á það með skýlausum rökum, sem hver skyni borinn maður sér í hendi sér, að þessa sjálfvirku vísitöluverkun hefur engin þjóð í fjárhagskerfi sínu né getur haft, ef hún vill gera sér von um að komast úr svikamyllu dýrtíðarinnar. Sjálfvirk vísitöluverkun kaupgjalds og verðlags samkv. framfærsluvísitölu er eins og sjálfhreyfivél, sem viðheldur svikamyllunni, hvaða fjármálaráðstafanir sem við gerum að öðru leyti.
Af þessum ástæðum og vissulega ýmsum fleirum, svo sem of mikilli fjárfestingu og of miklum útlánum, erum við staddir í efnahagsmálum þjóðarinnar eins og raun ber vitni í dag.
Og nú skulum við athuga viðhorfin í byrjun þessa árs. Tekjur útflutningssjóðs stóðust ekki áætlun 1957 af ástæðum, sem eru margraktar. Fyrirsjáanlegur var enn meiri halli á árinu 1958, ef útflutningsframleiðslan átti að fá það, sem hún þurfti, til þess að stöðvast ekki. Það varð að grípa til nýrra úrræða. Ef útflutningsframleiðslan fengi enga fjárhagslega aðstoð í dag, mundi hún öll stöðvast á sama augnabliki. Ástæðurnar eru þær, að útflutningsframleiðslan er með lögum skyldug til þess að selja gjaldeyrisbönkunum erlendan gjaldeyri, sem hún aflar, fyrir lögboðið, skráð verð í íslenzkum krónum. Þessar íslenzku krónur, sem framleiðslan fær, eru ekki nema nokkur hluti af því, sem það kostar hér á landi að framleiða útflutningsvörur. Ráðið sýnist einfalt og óbrotið fljótt á litið. Það verður að greiða framleiðslunni hæfilega margar íslenzkar krónur, þ. e. fleiri krónur en nú er, fyrir erlendan gjaldeyri, sem hún aflar, svo að hún geti greitt framleiðslukostnaðinn og framleiðslan stöðvist ekki. En einmitt þetta að greiða fleiri íslenzkar krónur fyrir hinn erlenda gjaldeyri — er að hækka erlendan gjaldeyri í verði og lækka gengi íslenzku krónunnar. Með þessu móti fær framleiðslan það, sem hún þarf til þess að standast útgjöldin. En gallinn er sá, að þetta helzt aðeins nokkurn tíma. Vörur, sem fluttar eru inn frá útlöndum samkvæmt þessu nýja gengi, yrðu keyptar fyrir erlendan gjaldeyri, sem kostar fleiri íslenzkar krónur en áður, og í samræmi við það hækka erlendar vörur í verði. En framfærsluvísitalan heldur áfram að hækka samkv. sjálfvirku reglunni vegna hækkandi vöruverðs. Kaup hækkar og þá um leið landbúnaðarvörur og innlend þjónusta. Með þessu tapast jafnvægið í fjármálakerfinu að nýju, útflutningsframleiðslan fær ekki nægilega margar krónur til þess að geta staðizt kostnaðinn.
Það er að vísu eðlilegt í sambandi við gengisbreytingu að leggja ný innflutningsgjöld á miður nauðsynlegar vörur til þess að greiða niður nauðsynlegustu vörur, raunverulega í sama mæli og þeim er hlíft við innflutningsgjöldum nú í hinum nýju lögum. Þó mundi gengisbreytingin, sem hér að framan er lýst, valda nokkru meiri hækkun á vísitölu, en ákvæði laganna, sem hér liggja fyrir um útflutningssjóð, vegna þess að með því að fara þá leið, sem valin er í margnefndum lögum, er útflutningnum mismunað, og þess vegna verða útflutningsuppbæturnar nokkru minni, en með gengisbreytingu, þar sem allir atvinnuvegir fá sömu útflutningsuppbætur, sitja allir við sama borð.
Hægt væri að gera gengisbreytingu með fleiri leiðum, en ég hirði ekki að rekja það hér, því að þær hafa sömu áhrif. Niðurfærsluleiðin hefur verið athuguð og af öllum sérfræðingum talin ófær vegna þess, hvað við erum langt komnir á dýrtíðarbrautinni. Yrði þá að taka upp nýja mynt og breyta hlutfallinu milli verðgildis innlends og erlends gjaldeyris eftir sem áður. Það er því vitað, að ekki er nú lengur um aðrar leiðir að ræða, en gengisbreytingu eða uppbótaleiðina eða millileið milli þeirra, þar sem byrjað er að stiga skrefin í áföngum. Það er sú leið, sem hér er valin til jafnvægis.
Leiðin, sem valin er í þessum lögum, er því að miklu leyti ný. Þar er m. a. gert ráð fyrir, að það verði ekki aðeins landbúnaður og sjávarútvegur, sem fái útflutningsbætur, heldur allur atvinnurekstur, sem rísa kann á legg, og eru þarna opnaðir útflutningsmöguleikar fyrir nýjar atvinnugreinar. Útflutningsuppbæturnar eru gerðar einfaldari og skiptast í þrjá flokka, 55%, 70% og 80%. Bátar og togarar sitja nú við sama borð. Faxaflóasíld lítið eitt lægri og Norðanlandssíld og hvalafurðir 55%. Venjulegum bótum á smáfisk og fleira er þó haldið. Til þess að greiða þessar bætur er teknanna aflað þannig, að gjaldeyrir til meginhluta innflutningsins verður að kaupa með 55% álagi. Þó er gjaldið fyrir nauðsynjavörum, sjúkrakostnaði og námskostnaði lægra, þ. e. 30%. Þessi gjöld innheimta bankar. En til þess að jafna metin eru svo lögð til viðbótar innflutningsgjöld á vörur, sem áður voru mjög hátollaðar.
Eins og áður segir, fá nýjar útflutningsgreinar notið sín, en jafnframt eru greiddar 55% uppbætur á þann gjaldeyri, sem flugsamgöngur við útlönd, siglingar, ferðaþjónusta o. fl. afla. Þetta er algert nýmæli. Það er jafnframt í samræmi við þá nýju meginreglu laganna, að greiða skuli bætur á keyptan gjaldeyri, að lögboðið er jafnframt yfirfærslugjald á allan seldan gjaldeyri. Þetta ákvæði laganna er því verulegur áfangi á leið til jafnvægis. Með því næst það, sem er mjög mikils virði, að meira samræmi fæst milli erlends vöruverðlags og innlends, en það ósamræmi var orðið mjög hættulegt fyrir innlenda þjónustu og framleiðslu svo og ósamræmið milli erlendra vara innbyrðis. Margs konar innlend framleiðsla og iðngreinar fá nú betri aðstöðu, svo sem skipaviðgerðir, bátasmíðar o. fl.
Ef farin hefði verið hrein gengisbreytingarleið, fengju allar útflutningsgreinar sömu aðstoð. Þetta kostar nokkru meira álag á innflutninginn í svipinn, hærri framfærsluvísitölu, meiri kauphækkanir. En með því að fara þá leið, sem frv. gerir ráð fyrir, verður öflun fjár nokkru minni og framfærsluvísitalan hækkar verulega, en minna, og kaup- og framfærslukostnaður einnig. Þótt þessi leið sé nýr áfangi í rétta átt, eru gallar hennar þeir frá sjónarmiði framleiðslunnar, að vegið er og metið, hve mikið hver útflutningsgrein þurfi og einnig hve mikilla tekna þurfi að afla, og þá hætt við, að hvort tveggja verði of laust áætlað til þess að hlífast við álögum.
En það mega menn gera sér ljóst, að þótt þessi leið kosti í bráð nokkru minni hækkun á framfærsluvísitölunni, en hrein gengisbreyting og þótt vísitöluskrúfan hafi verið tekin úr sambandi til haustsins með því að lögfesta 5% kauphækkun, hlýtur dýrtíðin að halda áfram þar á eftir, nema sjálfhreyfivél vísitölunnar verði stöðvuð með gerbreytingu á vísitölukerfinu í haust og komið í samræmi við það, sem nálægar þjóðir hafa í þessu efni.
En verður þetta gert? Það er undir því komið, hvort stéttasamtökin telja það samrýmast hagsmunum sínum eða þau álíta hitt gróða, að setja vísitöluspóluna, eins og hún nú er oft kölluð, aftur í gang. Enn fremur er mjög hætt við, að allar þessar ráðstafanir séu unnar fyrir gýg, ef ofþensla verður í útlánum og fjárfestingu nú á næstunni.
Sjálfstæðismenn hafa beitt furðulegum baráttuaðferðum í sambandi við þetta mál. Sú er einna helzt, eins og við heyrðum núna í ræðunum, að hefja látlausan áróður út af álögunum, rétt eins og þær renni í vasa ráðherranna. Þeir halda því fram, að útflutningsframleiðslan fái of lítið, eins og ég sagði áðan, að hún muni stöðvast, en hvernig ætti þá tekjuöflunin handa útflutningsframleiðslunni að vera of mikil? Augljóst er, að þetta fær ekki staðizt.
Spurningin er þá sú ein eftir: Er hægt að afla þessara tekna með einhverjum öðrum hætti, þannig að léttara komi niður á almenningi? Þeir hafa ekki komið fram með neinar tillögur um slíka tekjuöflun nú, enda hefur af mörgum sérfróðum mönnum verið reynt til þrautar, að það er naumast framkvæmanlegt. Þar með fellur þessi áróður dauður.
En hvað vill Sjálfstfl.? Hv. alþm. Gunnar Thoroddsen sagði það sína persónulegu skoðun, að það hefði átt að framkvæma gengisbreytingu. Sama hefur skinið gegnum ræður fleiri sjálfstæðismanna. Sjálfstæðismenn hafa fyrr valið gengisbreytingarleiðina. Að því stóðu þeir fyrir 8 árum, og hvernig var sú leið? Það kom fram í 2. gr. frv. til l. um gengisbreytingu frá 1950, en fyrri málsgr. hennar hljóðar þannig:
„Eftir gildistöku laga þessara er ríkisstj. á ráðherrafundi rétt, að fengnum tillögum bankaráðs og bankastjóra Landsbanka Íslands, að ákveða gengi íslenzku krónunnar. Gengisskráning skal miða að því að koma á og viðhalda jafnvægisgengi, þ. e. að sem mestur jöfnuður sé í greiðslum við útlönd án gjaldeyrishafta.“
Þeir vildu láta ráðherrafund ákveða gengisbreytinguna, hvenær sem ríkisstj. teldi henta. Þetta ákvæði var fellt niður vegna andstöðu. Enginn skilji orð mín svo, að ég sé að lá Sjálfstfl., þótt hann vilji gengisbreytingu. Hún getur sannarlega komið til greina og að haldi, ef hún er gerð í samstarfi við stéttasamtökin, og þarf þá ekki heldur að vera þeim óhagstæð. En þegar sjálfstæðismenn hefja róg út af því, að neyzluvörur hækki, og telja upp langa runu af framleiðsluvörum sjávarútvegs og landbúnaðar, sem hækki svo og svo mörg prósent, þá skulu tilheyrendur minnast þess, að með þeirri leið, sem valin er, hækka þær miklu minna, en ef gengisbreyting væri gerð. Með hreinni gengisbreytingu mundu vörur til framleiðslunnar hækka um miklu meira, en verður samkv. þessum lögum. Sjúkrakostnaður og námskostnaður hefði hækkað þrisvar sinnum meira, en samkv. lögunum. En ef engar álögur væru á lagðar, ekkert gert, fengju menn eftir stuttan tíma engan erlendan gjaldeyri, því að framleiðsla hans stöðvaðist. Þann kost mundu fæstir kjósa.
Ég læt hér staðar numið um dýrtíðarmálin og vík að öðru stórmáli, landhelgismálinu. Það mun ekki vera dregið í efa, að það er næst sjálfstæðismáli okkar Íslendinga eitt allra stærsta mál þjóðarinnar. Undir sigri í því máli er komið fjárhagslegt sjálfstæði Íslands. Við höfum séð, hvernig fiskimiðin hafa farið við Skotland, í Norðursjónum, við Færeyjar, og vísindamenn okkar hafa sannað, hvert stefnir hér við land. Það er lífsnauðsyn, að landbúnaður og sjávarútvegur, sem aflar að mestu erlends gjaldeyris, geti haldizt í hendur sem tvær þróttmiklar atvinnugreinar. Við eigum svo fáar auðlindir, Íslendingar, að ef fiskimiðin yrðu eyðilögð vegna ofveiði, væri vá fyrir dyrum.
Ríkisstj. hefur komið sér saman um sameiginlega afstöðu, sem skýrt hefur verið frá opinberlega, og er vonandi, að sameiginleg afstaða allra flokka og allrar þjóðarinnar fáist um hana, enda benda allar líkur til þess. Í þessu máli verður öll þjóðin að standa saman sem einn maður án tillits til stjórnmálaskoðana, annað væri óafsakanlegt. Við Íslendingar teljum okkur eiga þann rétt, sem við ætlum að taka. En fjárhagslegir hagsmunir nálægra þjóða vegna fiskveiða við Ísland eru miklir, og þótt við vonumst eftir réttsýni, verðum við að vera þess albúnir að taka á okkur mikil óþægindi og jafnvel fórnir, ef þarf, til þess að ná í þessu máli því marki, sem við höfum sett okkur og lífsafkoma þjóðarinnar byggist á um ókomin ár.
Utanríkisstefna ríkisstj, hefur verið óbreytt, síðan hún tók við völdum. Í ályktuninni frá 28. marz segir, að vegna breyttra viðhorfa síðan 1951 teljist eðlilegt, að varnarliðið fari úr landi. Um leið og þetta breytta viðhorf í friðarátt, þessi forsenda var ekki til staðar, leiddi það af sjálfu sér, að tillagan varð ekki framkvæmd um sinn. En það er staðreynd, að þegar samtöl áttu að hefjast um brottför varnarliðsins, var ófriðarhættan slík, að fáum eða engum kom til hugar í alvöru að krefjast brottfarar varnarliðsins, eins og á stóð. Það eru því aðstæðurnar, sem hafa breytzt, og því miður ekki horfur á því nú, að þær breytist til batnaðar, þó að vonandi sé að, að því komi sem fyrst.
Ég hef lesið í blöðum, að menn velti því fyrir sér, hvort leyfðar muni verða hér eldflaugastöðvar og atómsprengjur. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að ég hef sagt það skýrt í svarbréfi til fyrrv. forsætisráðherra Sovétríkjanna, að stöðvar varnarliðsins hér eru umsamdar varnarstöðvar, þess vegna komi eldflaugastöðvar eða atómsprengjustöðvar til árása á aðrar þjóðir, ekki til greina.
Vegna þess að stjórnarandstæðingar hafa oft haft það milli tannanna, að stjórn og þingmeirihluti hafi verið aðgerðalítill, vil ég leyfa mér að minnast fáum orðum á gang nokkurra mála, síðan núverandi ríkisstj. tók við völdum.
Framleiðslan hefur verið rekin án stöðvana. Atvinna hefur verið mikil og jöfn. Sett ný löggjöf um landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Bætt rekstrarafkoma sjávarútvegsins. Bætt kjör fiskimanna. Sett löggjöf um réttindi verkafólks. Aukið fjármagn, fjárframlög og lán til rafmagnsframkvæmda dreifbýlisins. Íbúðarlánasjóðslög sett og mikið fjármagn útvegað til húsbygginga í sveit og við sjó. Margs konar framkvæmdir og framfarir um land allt, sem dregið hafa úr fólksstraumnum til Faxaflóasvæðisins. Aukið atvinnubótafé. Keyptir 12 250 tonna togbátar auk minni vélbáta. Útvegað stórlán til Sogsvirkjunarinnar, mál, sem komið var algerlega í eindaga, þegar stjórnin tók við. Fullgerð nokkur stór fiskiðjuver, sem strönduð voru vegna fjárskorts, þegar ríkisstj. tók við. Útvegað fé til þess að fullgera sementsverksmiðju, sem einnig var komin í strand vegna fjárskorts. Útvegað fé handa fiskveiðasjóði, ræktunarsjóði, byggingarsjóði o. fl., en sjóðir þessir voru tómir, er núverandi ríkisstj. tók við. Lög sett um vísindasjóð. Lög sett um lífeyrissjóð togarasjómanna. Endurbætt búfjárræktarlög. Ný og endurbætt löggjöf um félagaskatt lögfest. Nýjar ráðstafanir í efnahagsmálum, sem eru verulegur áfangi í rétta átt. Um landhelgismálið hef ég áður rætt.
Ég hygg, að þetta yfirlit, þótt fáort sé, nægi til að gefa réttari mynd af því, sem skeð hefur, en ósanngjarnar og hvatvíslegar fullyrðingar og stóryrði sjálfstæðismanna um, að engu hafi verið til vegar komið.
Ég vík þá aftur að efnahagsmálunum. Andstæðingarnir og ýmsir aðrir spyrja mjög um það, hvað skeður í haust, nýju lögin séu ekki hin varanlegu úrræði, sem þeir segja, að ég hafi lofað. Vitanlega eru engin fullkomlega varanleg úrræði til í efnahagslífi neinnar þjóðar. Þótt efnahagslífið sé heilbrigt, er það undirorpið margháttuðum breytingum, sem sífellt þarf að snúast við með ýmsum hætti. Hitt hef ég sagt, að ég hef ekki trú á því, að viðhlítandi úrræði í efnahagsmálum fáist, nema varanleg, ábyrg samvinna takist milli stéttasamtakanna og ríkisstj. og milli þeirra skapist traust, byggt á gagnkvæmum skilningi og þekkingu á þörfum stéttasamtakanna og þjóðarinnar í heild.
Margir forustumenn verkalýðssamtakanna höfðu það fyrir vígorð í seinustu kosningum, að barátta fyrir bættum kjörum ætti að breytast úr verkfallsbaráttu í úrræði, sem fundið væri í þingsölunum. Heitið var á kjósendur að veita fleiri frambjóðendum þeirra umboð á Alþ. Samtökin lýstu yfir því, að þau hefðu skilning á því og sönnur fyrir því, að vinnustöðvanir og verkföll væru ekki aðeins þjóðfélaginu skaðleg, heldur einnig þeirra eigin hagsmunum. Þess vegna vildu samtökin flytja hagsmunabaráttuna inn í þingið í stað verkfalla og vinnustöðvana. Verkalýðsfélögin voru eitt sinn svo veik, að sá, sem skráður var í verkalýðsfélagi, fékk naumast vinnu. Nú fær enginn vinnu, nema hann sé skráður í verkalýðsfélagi. Ef sjómenn gerðu verkfall, var fyrr á tímum jafnvel haft í hótunum að setja þá í fangelsi fyrir strok af skipi. Þetta og fleira er sem betur fer svo gerbreytt, að nú segja verkalýðsfélögin stundum með nokkru stolti, að þau hafi ekki tapað verkfalli í mörg ár. En verkalýðssamtökin hafa til skamms tíma enga aðstöðu haft til þess að kynna sér, þótt þau gjarnan vildu, hag framleiðslunnar og efnahagslífið í heild. Þau hlutu því að segja upp samningum og gera verkföll meira og minna af handahófi.
Eftir að núverandi ríkisstj. tók við völdum, hófst ný vinnuaðferð. Þegar efnahagskerfið og dýrtíðarmálin voru rannsökuð 1956, voru að störfum 2 nefndir, 6 manna og 19 manna, sem fylgdust með rannsóknum og skýrslugerðum um efnahagsástandið og greiðslugetu framleiðslunnar. Það hefur verið sannað fyrir þessum nefndum, að framleiðslan stöðvast, ef ekki er flutt til hennar nýtt fjármagn, og það er ekki unnt að afla þessara peninga, svo að léttara komi niður á almenningi, en gert er með lögunum um útflutningssjóð o. fl. Það er því auðsætt, að ekki er meira til að skipta, en skipt er.
Núverandi ríkisstj. hefur lagt á stóreignaskatt, þótt það hafi áður verið gert fyrir fáum árum, til þess að jafna metin og bæta hag almennings. Álagning verzlunarinnar er ákveðin svo lág, að hvergi mun í nálægum löndum lægri, og jafnvel kaupfélög verkamanna kvarta. Hvar á að taka meira til að skipta? Eitt benda menn á: of mikla eyðslu hins opinbera. Þetta er vissulega í athugun. Það er erfitt að kippa til baka greiðslum, sem á eru komnar, og margir, sem telja sig fylgjandi sparnaði, eru þar stundum tregari til samþykkis, en ætla mætti. Það, sem mögulegt er að spara án stórfelldra lagabreytinga, er svo hverfandi upphæð, að tiltölulega lítil áhrif hefur, en það er til fyrirmyndar sem fordæmi og mun verða unnið að þessu eftir megni.
En þegar þessar upphæðir verða ekki lengur til ásteytingar og fulltrúum stéttasamtakanna sýnt og sannað, að framleiðslan getur ekki látið meira í té, þá er enginn ávinningsmöguleiki eftir nema einn, og hann er sá að auka framleiðsluna, bæta rekstur hennar, svo að hún gefi meira til að skipta. Og það stendur sannarlega ekki á núverandi ríkisstj. Það er einmitt stefna hennar að vinna að því með stéttasamtökunum eftir ýtrustu getu þjóðarinnar, ásamt réttlátri skiptingu hinna auknu þjóðartekna.
Ég geri mér fyllilega ljóst, að þetta verk, traust samvinna ríkisstj. og stéttasamtakanna, sem nú ríður mest á að takist, er ekki auðvelt né fljótunnið verk. Það er mikið átak fyrir sterka verkalýðshreyfingu að flytja valdið frá verkfallsbaráttu með óskhyggju inn á Alþ., þar sem taka þarf ákvarðanir í samræmi við staðreyndir. Þegar fulltrúum, sem taka þátt í nefndum fyrir verkalýðshreyfinguna, hefur verið sýnt og sannað, hvernig ástatt er, þarf sterka ábyrgðartilfinningu og kannske nokkra sjálfsafneitun, kannske að stofna sér í þá hættu, að þeim verði ekki falin fulltrúastörf áfram, til þess að fara til síns félags og segja: Ég hef fengið að kynna mér allt ástandið. Það hafa verið farnar þær leiðir, sem hagstæðastar eru fyrir verkalýðssamtökin. Það er hvorki réttmætt né í samræmi við hagsmuni okkar að gera frekari kröfur í bráð, — og bæta svo við: Þetta er vegna þess, að þegar framleiðslan getur ekki greitt meira, eins og nú er, veldur hækkuð vísitala með hærra kaupgjaldi því einu, að nýjar álögur verður að leggja á, til þess að framleiðslan stöðvist ekki. Afleiðingin er sú ein, að verðbólgan verður óviðráðanleg sjálfum okkur og öllum til tjóns.
Það er raunverulega þetta hlutverk, sem fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar taka að sér, þegar hún óskar að flytja vald sitt inn í þingið. Það er ólíkt auðveldara að vera laus við valdið og þá ábyrgð, sem því verður að fylgja, tala í anda stjórnarandstöðunnar og segja í anda hennar: Við viljum fá fleiri krónur, og við skulum fá þær, hvað sem öðru líður. Það hlýtur að vera meira til að skipta, það hlýtur að mega fara aðrar leiðir, — og þar fram eftir götunum, þótt það stangist við staðreyndir. Þannig er hægt að tala, kannske á vissan hátt með árangri, en þannig er ekki hægt að stjórna þjóðfélaginu. Þetta þýðir að afsala sér þátttöku í stjórn landsins og fá hana öðrum í hendur.
Fulltrúar verkalýðsfélaganna hafa verið látnir fylgjast með rannsókn á efnahagskerfinu og framleiðslunni, eins og ég áður sagði, auk þess sem yfirlitsræður fjmrh., síðan ríkisstj. tók við, hafa verið mjög greinargóð úttektargerð um ástandið.
Ég hef nú fengið hæfustu menn til þess að semja ýtarlegar skýrslur til birtingar samkv. niðurstöðum rannsókna síðustu ára, til þess að öllum þeim landsmönnum, sem vilja, verði gefinn kostur á að kynna sér þær til hlítar. Eina leiðin til viðreisnar er sú, að sem allra flestir taki þátt í því starfi með góðvilja, skilningi og þekkingu.
Með flutningi þessarar útvarpsræðu frá Alþ. hef ég skýrt ykkur, góðir Íslendingar, frá því, svo rétt og greinilega sem ég get, hvernig viðhorfið er og undir hverju það er komið, hvort og hvernig fram úr vandanum rætist. Mikilsverðum áfanga hefur verið náð í efnahagsmálunum. Grundvöllurinn hefur nú verið lagður til að byggja á. Það er komið undir manndómi þeirra, sem að þessum málum standa, og skilningi þjóðarinnar, að takast megi að ná markinu og treysta og fullkomna verkið.