02.06.1958
Sameinað þing: 50. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (2993)
Almennar stjórnmálaumræður
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti, góðir hlustendur. Menn heyrðu í kvöld formann hinnar hörðu stjórnarandstöðu, hv. þm. G-K., Ólaf Thors, ræða um efnahagsmálaaðgerðir núverandi ríkisstj., og það duldist engum, að hann sagðist vera á móti þeim, þær yrðu til ills eins, bara til bölvunar. En sagði hann þá ekki þjóðinni, hvernig hann og hans flokkur, Sjálfstfl., vildu leysa vanda framleiðsluatvinnuveganna, tryggja stöðvunarlausan rekstur vélbáta, togara og vinnslustöðva, tryggja fulla atvinnu og hallalausan ríkisbúskap? — Nei, hann sagði ekki orð um það í allri mælginni. Því smáræði gleymdi hann óvart í óðagotinu, sem á honum var. Hann hafði ekkert, bókstaflega ekkert til málanna að leggja nema innantóman belging og loftkennt orðaskvaldur, og gat frammistaða hans þannig með engu móti málefnalega séð aumari verið.
Það er skemmtilegt fyrir hlustendur að vita það, og þess vegna held ég, að ég verði að segja frá því, að fyrir nokkrum árum, þegar þessi sami Ólafur Thors var forsrh. og hafði einmitt lagt fyrir Alþ. tillögur stjórnar sinnar í efnahagsmálum, þá krafði hann stjórnarandstöðuna svara með hörðum orðum, heimtaði hennar úrræði á borðið án tafar. Alþingistíðindin bera því vitni, að þá beindi hv. þm. G-K., Ólafur Thors, orðum sínum til málsvara stjórnarandstöðunnar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta, hann sagði:
„Þessi hv. þm. gleymdi að segja, hvað hann vill láta gera. Ég skora nú á hann að leiða rök að því, að hægt sé að hverfa frá stefnu ríkisstj., og segja, til hvaða ráða hann ætlar þá að grípa í staðinn. Þá dugir ekki að segja: Leiðir má finna, eins og hann sagði hér áðan. Hann verður að finna þessar leiðir og sýna mönnum þær, því að á neikvæðum belgingi lifir enginn til lengdar.“
Þetta voru orð Ólafs Thors, og nú er komið að skuldadögum hans sjálfs. Nú verður stjórnarandstaðan, sem þykist tala fyrir munn mikils hluta þjóðarinnar, að segja hvað hún vill láta gera, hvaða leiðir hún telur nú æskilegar eða færar. Nú er rétta augnablikið til að sýna mönnum silfurgötur Sjálfstfl. Nú dugir ekki að standa uppi eins og þvara, því að það er vissulega satt, sem form. Sjálfstfl. hefur sagt: Á neikvæðum og innantómum belgingi lifir enginn til lengdar, sízt af öllu í pólitík.
Ef til vill er hv. þm. G-K. nokkur huggun í því, að hann stendur ekki einn uppi eins og þvara í þessu máli. Nei, nei, því fer fjarri. Þar standa við hlið hans og mynda eins konar þvöruskóg margir af helztu liðsmönnum hans í Sjálfstfl., svo sem eins og hv. 9. landsk., Ólafur Björnsson hagfræðingur og prófessor, og hv. 2. þm. Reykv., Björn Ólafsson heildsali, að ógleymdum hv. 6. þm. Reykv., Gunnari Thoroddsen borgarstjóra, og hv. þm. N-Ísf., Sigurði Bjarnasyni aðstoðarritstjóra. Og hvers vegna nefni ég nú sérstaklega þessa menn sem jafntillögulausa og úrræðalausa í málinu og hv. þm. G-K. Það er einfaldlega af því, að ég hef hér fyrir framan mig nál. fjárhagsnefnda Alþ. í báðum þd., og þar stendur þessi staðfesting á úrræða- og skoðana- og ráðleysi Sjálfstfl. skjalfest, svo að ekki er um að villast, því að þeir hv. 9. landsk., Ólafur Björnsson, og hv. 2. þm. Reykv., Björn Ólafsson, segja undir lokin í sínu minnihlutaáliti, með leyfi hæstv. forseta:
„Þótt við álítum, að breyta þurfi frv. í veigamiklum atriðum, þá flytjum við engar meiri háttar brtt. Til þess var hvorki tími né ástæða, eins og sakir standa.“
Og svo ljúka þeir nál. sínu í allri hógværð á þessum orðum:
„Fyrir örfáum minni háttar brtt., er við flytjum, verður nánari grein gerð í framsögu.“ Hér er að vísu ekkert af innantómum belgingi flokksformannsins. En nakið úrræðaleysið leynir heldur ekki á sér: Við flytjum engar meiri háttar brtt., til þess er enginn tími, bara örfáar minni háttar tillögur. — Mikið ósköp getur þetta nú verið vesældarlegt. Og þarna er þó á ferðinni einn af mestu fjármálamönnum Sjálfstfl. og lærðasti hagfræðingur hans, sem gerþekkir allt efnahagskerfið og hefur hvað eftir annað verið aðalráðgjafi síns flokks, þegar hann hefur verið að framkvæma eða undirbúa meiri háttar aðgerðir í efnahagsmálum, en samt er því borið við, að þeir geti engar tillögur gert vegna tímaskorts.
Og hvaða tíma höfðu þeir þó haft? Í fyrsta lagi hafði verið beðið eftir tillögum stjórnarinnar alllengi, og hver trúir því, að fjármálamenn og hagspekingar stjórnarandstöðunnar hafi ekki hugsað málið, á meðan þeir sátu og biðu. Eiga menn að trúa því, að þeir hafi bara húkt á þingbekkjunum hugsunarlausir um alvarlegustu vandamál þjóðarinnar með hendur í skauti og horft í gaupnir sér? Nei, því trúir enginn lifandi maður.
Sannleikurinn er sá, að eftir alla biðina fengu þeir líka rúman tíma til að kynna sér málið. Sjálfstfl. fékk frv. um útflutningssjóð ásamt grg. í hendur — að ég hygg — þann 10. maí. Hann fékk einnig allar upplýsingar, sem hann óskaði, ásamt ýtarlegum viðræðum við sérfræðinga þá, sem höfðu starfað að undirbúningi málsins með ríkisstj., og loks stóðu svo umræður um málið í Nd. í marga daga, sem sjá má af því, að nál. þeirra Ólafs Björnssonar og Björns Ólafssonar er gefið út þann 19. maí. Þannig hefur Sjálfstfl. a. m. k. haft málið til meðferðar í 9 sólarhringa, en samt ber hann fyrir sig tímaskort. Þetta er auðvitað hlægilegt. Þetta er að standa uppi eins og þvara.
Enn þá átakanlegra verður þó ráðleysi Sjálfstfl. í málinu, þegar litið er á frammistöðu hans manna í Ed. og enn er borið við tímaskorti hjá þeim. Þar gefa þeir hv. þm. N-Ísf., Sigurður Bjarnason, og hv. 6. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, út nál. þann 28. maí og hafa því haft fast að 3 vikum til tillögugerðar. En þrátt fyrir þetta segja þeir þar, eftir að þeir hafa sérstaklega lýst andúð sinni á því ákvæði frv., að allt almennt kaupgjald skuli hækka um ákveðinn hundraðshluta, þeir segja þetta, með leyfi hæstv. forseta:
„Enda þótt 3. minni hl. fjárhagsnefndar (þ. e. a. s. Sigurður Bjarnason og Gunnar Thoroddsen) telji, að breyta þyrfti þessu frv. í þýðingarmiklum atriðum, flytjum við engar brtt. varðandi meginefni og stefnu frv., enda hefur enginn tími gefizt til þess að undirbúa flutning þeirra á þeim örskamma tíma, sem nefndin hefur haft það til meðferðar.“
Þetta eru þeirra eigin orð. Engar tillögur varðandi meginefni og stefnu, aðeins um smáatriði og aukaatriði, enginn tími til slíks tillöguflutnings, og þó hafa þeir haft málið handa á milli í 3 vikur. Þetta kalla ég að standa uppi eins og þvara, og ég fæ ekki séð, að þessar eikur hallist um hársbreidd við hlið formanns síns.
Sannleikurinn er sá, að stjórnarandstaðan, Sjálfstfl., hefur orðið sér til einstæðrar minnkunar í þessu stórmáli. Hann stendur uppi úrræðalaus með öllu í efnahagsmálum þjóðarinnar og hefur meira að segja enga minnstu tilburði uppi til þess að dylja það, að hann sé tillögulaus og úrræðalaus.
En þjóðin spyr enn: Hverjar eru leiðir Sjálfstfl.? Hver eru hans úrræði? En hún fær víst ekkert svar. Þetta er meira og furðulegra ábyrgðarleysi, en hægt var að búast við fyrir fram, jafnvel af Sjálfstfl. En af því er þó ekki öll sagan sögð enn þá. Lengi fram eftir vetri gagnrýndi Morgunblaðið stjórnina mjög fyrir seinagang við afgreiðslu mála á Alþ. og stutta þingfundi. En þegar fram á vorið kom og vitað var, að stærstu mál þingsins, eins og efnahagsmálin og landhelgismálið, væru í uppsiglingu, þá fór að verða nokkur ókyrrð í liði stjórnarandstöðunnar, og svo einn góðan veðurdag vissu menn ekki fyrri til, en bæði 5. þm. Reykv., Jóhann Hafstein, og sjálfur form. stjórnarandstöðunnar á þingi, hv. 1. þm. Reykv., Bjarni Benediktsson, voru stokknir úr landi allt í einu, svo ósköp þreyttir, blessaðir. Jóhann Hafstein fór til Ameríku og Bjarni Benediktsson suður á Mallorca á Miðjarðarhafi til hvíldar og hressingar, og hafa þeir ekki sézt síðan. Fyrir þetta ábyrgðarleysi sætti form. Sjálfstfl. nokkurri gagnrýni í eigin liði, en hann varðist öllum ásökunum með því einu að spyrja: Hvað er þetta, góðir hálsar, trúa menn virkilega ekki Angantý og mér fyrir málunum? — Hvort sem það er nú svo, að þessa tvo heiðursmenn hafi langað til að standa uppi ráðlausir og tillögulausir í ráðlausum og tillögur lausum flokki í stærstu málum þjóðarinnar eða ekki, þá er hitt þó víst, að þeir hafa valið sér auðveldara hlutskiptið með lystireisu um Ameríku og sólböð og sjóböð suður á Mallorca.
Enginn flokkur hefur nokkurn tíma sýnt annað eins ábyrgðarleysi og Sjálfstfl. í þessu máli. Hv. stjórnarandstaða hefur gert sér tíðrætt um afstöðu verkalýðshreyfingarinnar til laganna um útflutningssjóð og vill halda því fram, að verkalýðshreyfingin sé löggjöfinni andvíg. Þetta er aðeins brot af sannleika.
Rétt er það, að allmörg stéttarfélög hafa sagt upp samningum, sum þeirra vafalaust til þess að ná fram nokkurri kauphækkun, en önnur þó aðallega til þess að fá fram ýmiss konar lagfæringar á orðalagi og samningsákvæðum, sem eðlilega þarf að laga í 3 ára gömlum samningum. Þetta út af fyrir sig sýnir því enga uppreisn verkalýðssamtakanna gegn þeim ráðstöfunum ríkisstj., sem hér er um að ræða.
Þá hafa hv. stjórnarandstæðingar verið að lesa upp nöfn þeirra stéttarfélaga, sem mótmælt hafi frv. um útflutningssjóð. Hafa þeir í því sambandi nafngreint 16 félög. Þetta sýnir raunar það eitt, að litlu verður Vöggur feginn, því að í Alþýðusambandi Íslands eru milli 160 og 170 félög. Hitt skil ég mætavel, að verkalýðsfélögin hefðu heldur kosið, að áfram hefði verið hægt að halda þeirri verðstöðvunarstefnu, sem upp var tekin sumarið 1956 og síðan verið fylgt með þeim árangri, að þrátt fyrir verulegar verðhækkanir vegna Súez-stríðsins hefur vísitala framfærslukostnaðar á seinustu 22 mánuðum aðeins hækkað um 6 vísitölustig eða rúmlega 3%. Þá hefur það og vakið vonir ýmissa um, að stöðvunarstefnan væri þegar búin að vinna sinn úrslitasigur, að síðan í sept. í fyrrahaust og til dagsins í dag, þ. e. á 8 mánuðum, hefur vísitalan aðeins hækkað um 1 stig, og má þannig heita, að hún hafi staðið í stað. Þetta er næsta ólíkt því, sem gerðist í stjórnartíð íhaldsins, þegar vísitalan hækkaði um 25 stig á einum 15 mánuðum.
Þrátt fyrir þessa staðreynd hafa málgögn stjórnarandstöðunnar sífellt klifað á því, að dýrtíðin væri alltaf að aukast. Til þess að sýna fram á, hversu rangt þetta er, skal ég nú aðeins nefna nokkrar tölur, sem sýna, hvernig verðlag ýmissa nauðsynjavara fór fremur lækkandi seinni hluta ársins 1957. Þannig kostaði 1 kg af strásykri 1. júní 1957 kr. 5.83, en 1. jan. s. l. kr. 4.76. Eitt kg af molasykri kostaði 1. júní 1957 kr. 7.58, en 1. jan. kr. 6.28. Brennt og malað kaffi kostaði fyrir ári kr. 46.40, en 1. jan. s. l. 42 kr. sléttar. Kolatonnið kostaði 1. júní s. l. 660 kr., en nú í ársbyrjun 570 kr. Hráolíulítrinn kostaði 1. júní 1957 kr. 1.07, en 1. jan. s. l. 79 aura. Og sementstonnið kostaði í ársbyrjun 1957 684 kr., en 1. jan. 1958 629 kr. Þannig mætti nefna miklu fleiri dæmi, en þetta verður tímans vegna að nægja.
En nú kunna menn að spyrja: Hvers vegna var þá ekki haldið áfram stöðvunarstefnunni? Því er fljótsvarað. Um það fékkst ekki samkomulag milli stjórnarflokkanna. Hins er heldur ekki að dyljast, að þó að slíkt samkomulag hefði fengizt, hefði með engu móti orðið hjá því komizt að útvega með einhverjum hætti þær 150–200 millj. kr., sem afla þurfti aðallega vegna aflabrests á seinasta ári í útflutningssjóð og ríkissjóð, til þess að þeir gætu staðið við lögbundnar skuldbindingar sínar. Og þess bið ég menn að minnast, að slíkt var auðvitað ekki hægt að gera, án þess að af því leiddi einhverjar verðhækkanir. Þegar svo var vitað, að nokkuð mörg verkalýðsfélög hugðust segja upp samningum sínum á þessu vori, mátti telja vonlítið um, að stöðvunarleiðinni yrði haldið áfram með árangri úr því.
Enginn getur því haldið því fram, að neinni leið, sem ekkert kostaði, hafi verið hafnað. Slík leið er auðvitað engin til. Ég sé líka mér til mikillar ánægju, að þetta er hreinlega játað í nál. þeirra sjálfstæðismanna, hv. 9. landsk., Ólafs Björnssonar, og hv. 2. þm. Reykv., Björns Ólafssonar. En þeir segja svo í nál. sínu, með leyfi hæstv. forseta:
„Sjálfstæðismönnum hefur raunar lengi verið ljóst, að engin úrræði eru til, til lausnar efnahagsvandamálunum, sem ekki hljóta að hafa í för með sér óþægindi og kjaraskerðingu í bili.“
Spurningin er því einfaldlega sú, hvort réttara hafi verið að fara gengislækkunarleiðina eða þá miðlunar- og samkomulagsleið, sem farin var. Við ráðherrar Alþb. höfnuðum gengislækkunarleiðinni algerlega, og voru þó vissulega uppi háværar kröfur um, að hún yrði farin. En hefði hún þá orðið verkalýð landsins hagkvæmari? Hefðum við þá fengið minni verðhækkanir? Hefðu lyf, námskostnaður og lífsnauðsynjar fólksins þá ef til vill hækkað minna í verði, en við þá samkomulagsleið, sem farin var?
Nei, það er vitað, að til þess að veita framleiðsluatvinnuvegunum svipaða aðstoð og nú er gert með þessum aðgerðum hefði ekki dugað minna, en upp undir 120% gengislækkun. Af henni hefði — að áliti hagfræðinga — leitt mjög mikla kjaraskerðingu launafólks, og vísitalan hefði a. m. k. hækkað fljótlega um 40 stig, Það er einnig upplýst, að þótt aðeins hefði verið farið í 87% gengislækkun og kaupi haldið óbreyttu að öðru leyti en því, sem það hefði hreyfzt eftir vísitölukerfinu, þá mundu samt hafa farið af stað víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds, er að lokum hefðu hækkað hvort tveggja um nálega 65%, og þó er talið fyllilega sannanlegt, að ný gengislækkun mundi hafa reynzt óhjákvæmileg, löngu áður, en þessar víxlhækkanir hefðu runnið sitt skeið á enda, og þannig koll af kolli.
Ég verð tímans vegna að sleppa því, sem ég vildi segja um afstöðu verkalýðshreyfingarinnar til þessara efnahagsmála og þeirra úrlausna, sem ríkisstj. hefur gripið til, til lausnar þeim, en mun gera því máli skil í ræðutíma mínum á morgun.
Ég vil að lokum aðeins víkja að því, að þó að ég hafi talað um þær efnahagsmálaaðgerðir, sem gerðar hafa verið með frv. um útflutningssjóð, þá tel ég þó ótvírætt, að ákvörðunin um lausn landhelgismálsins sé okkar stærsta efnahagsmál í dag. Það er að mínu áliti mál málanna, grundvöllurinn, sem þjóðin mun byggja á í framtíðinni. Með ákvörðuninni um stækkun landhelginnar er Ísland orðið stærra land og betra land, og það eitt er víst, að við, ráðherrar Alþb., hefðum fórnað miklu, ef stjórnarsamstarfið hefði verið rofið á svokölluðum efnahagsmálum í þrengri merkingu, því að það er sannfæring mín, að þá væri landhelgismálið nú ekki leyst, heldur sennilega orðið að samningabitbeini milli þjóða.
Ég vil svo að gefnu tilefni að lokum spyrja hæstv. utanrrh. þess, hvort það hafi aldrei komið til mála að veita erlendum skipum veiðirétt innan íslenzkrar landhelgi, og mér þætti enn þá ánægjulegra, ef ráðherrann gæti upplýst það, t. d. í umr. á morgun, að slík undanþága útlendum veiðiskipum til handa skuli aldrei koma til mála.
Ég þakka svo þeim, sem hlýddu, og býð góða nótt.